07.03.1936
Efri deild: 18. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)
64. mál, ólöglegar fiskveiðar
Magnús Guðmundsson:
Út af því, sem hæstv. forsrh. sagði, vil ég segja það, að ég hafði ekki sterk orð um það, að þetta væri stjórnarskrárbrot, en hitt sagði ég, að það væri brot á þeirri venju, sem fylgt hefir verið um þetta atriði síðan við fengum leyfi til að gefa út bráðabirgðalög. Ég sagði, að engin ástæða hefði verið til að víkja frá þessari föstu reglu nú, ekki sízt þar sem hæstv. forsrh. hefir verið á konungsfundi, síðan hann gaf út þessi bráðabirgðal. Það segir í stjskr., að konungur geti gefið út bráðabirgðal. milli þinga. Einnig að þau skuli jafnan lögð fyrir næsta þing á eftir. Óneitanlega er það eðlilegast, án þess að ég haldi því fram, að það þurfi endilega að vera svo, að sami aðili leggi frv. fyrir Alþingi, þ. e. ráðh. f. h. konungs. Þar sem nú þessari venju hefir verið fylgt hingað til, nú um 30 ára skeið, vil ég ekki fyrir mitt leyti láta ómótmælt, þegar hún er brotin.
Hæstv. forsrh. kveður það vera venju á Norðurlöndum, að slík l. séu lögð fyrir sem þingmannafrv., eða a. m. k. þekki hann dæmi þess. Ég vefengi þetta, hæstv. ráðh. Og það er vegna þess, að mér er kunnugt, að það er hrein undantekning á Norðurlöndum, a. m. k. í Danmörku, ef gefin eru út bráðabirgðalög, og ég trúi ekki, að þá sjaldan það kemur fyrir, þá séu þau ekki á þingunum flutt sem stjfrv. Það þykja meira að segja tíðindi þar, ef einstakir flokkar eða nefndir flytja þar almenn frv., auk heldur bráðabirgðalög fyrir stj. Hjá okkur er þetta allt öðruvísi. Og jafnvel er nú svo komið, að stj. flytur eiginlega engin frv. nú orðið. Ég held, að til þessa hafi hæstv. forsrh. ekki flutt eitt einasta mál á þessu þingi. — Ekki er því til að dreifa að hæstv. ráðh. gæti ekki fengið heimild hjá konungi í þessu efni, því að bæði var hann nýlega á konungsfundi og ennfremur gat hann fengið hana með fáorðu símskeyti.
Hæstv. ráðh. sagði, að það mætti leggja frv. fyrir breytt, ef tilganginum væri náð samt sem áður. Ja. hvaða tilgangi? Tilgangurinn er sá, segir í stjskr., að bráðabirgðal. séu lögð fyrir í frv.formi, og ef hægt er að breyta þeim eins og vill, þá getur orðið allt annað mál úr því. Það geta verið vítaverð ákvæði í frv. eða bráðabirgðal., eins og þau voru staðfest af konungi. en meinlaus orðin, eins og ráðh. flytur þau, eftir að hafa hugsað sig nægilega vel og lengi um. Það er því alls ekki nægilegt að líta til tilgangsins, sem liggur á bak við. Tilgangurinn hér er sá, að stj. verði gagnvart þinginu að bera ábyrgð á því, sem hún hefir gert í þessu efni. Og ef hún má breyta l. eins og hún vill, áður en þau eru lögð fyrir þingið sem nýtt frv., getur enginn sagt, að nefndum tilgangi sé náð.
Það er rétt, sem hæstv. forsrh. sagði, að það er bara formsatriði, sem um er að ræða, en ekki sjálft frv. Af því að það stendur til að breyta frv. fyrir 2. umr., þykir ekki ástæða til að fara út í efnishlið þess nú. Enda segi ég fyrir mig, að ég hefi ekki lesið ennþá þær breytingar.