07.03.1936
Efri deild: 18. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)

64. mál, ólöglegar fiskveiðar

*Magnús Jónsson:

Ég skal ekki heldur vekja umr. um þetta mál nú. En ég vil aðeins segja nokkur orð út af því, sem hv. þm. S.-Þ. sagði — en náttúrlega hefir hann ekki tollað hér í hv. d. til þess að fylgjast með umr. —, að stór stefnuhvörf hafi orðið á Alþingi í þessu efni. Hann sparaði ekki heldur í vetur, þegar frv. kom fram um þetta efni, að hælast um, að nú stæðu fleiri og voldugri menn á bak við þetta mál heldur en þegar hann barðist einn fyrir þessu máli fyrr á þingum. Það hefir nú ekkert það fram komið, sem réttlæti þá fullyrðingu, að stefnuhvörf séu orðin. Og ég get lýst yfir því fyrir mína hönd og margra annara, sem hafa verið á móti þeim frv., sem hann hefir borið fram um svipað efni, að ágreiningurinn var í raun og veru alls ekki um efni málsins. Ágreiningurinn var um það, hvort þörf væri á þeirri löggjöf, sem var borin fram. Og þá dróst náttúrlega margt inn í, svo sem eins og það, með hversu ákaflega einkennilegum hætti málið var borið fram, þannig að það gaf tilefni þeirrar uppnefningar, sem raun bar vitni, eins og siður er um mörg frv., sem þessi þm. stóð að í sinni ráðherratíð. En höfuðatriðið var það, hvort þörf væri á nýrri löggjöf um þetta eða ekki. Ég býst við, að í þessu séu menn algerlega óbreyttrar skoðunar, og sú skoðun hefir einmitt verið staðfest í sambandi við þann málarekstur, sem nú hefir farið fram og varð tilefni þessa frv. Því að ég veit ekki betur en að einmitt í skjóli annara lagaákvæða hafi verið framkvæmdar miklar rannsóknir í þessa átt, áður en bráðabirgðal. voru gefin út. Og það má því ætla, að framkoma þessara bráðabirgðal. og að þau eru lögð fyrir þingið samkv. stjskr. sé ein af þessum mörgu dúsum, sem verið er að stinga upp í þennan hv. þm., svo sem til að bæta fyrir hin mörgu vonbrigði, sem hann eðlilega varð fyrir, þegar gengið hefir verið framhjá honum og honum ekki trúað fyrir mestu ábyrgðarstörfum flokksins, þegar hann myndaði stj. eftir síðustu kosningar. Þessar dúsur er nú alltaf öðruhverju verið að rétta að hv. þm. til þess að reyna að friða hann.

Hitt var aðalatriðið og ágreiningsatriðið, hvort þegar væru til næg lagafyrirmæli í þessu efni. Margir álíta, að svo væri, og reynslan hefir sýnt það, og ég veit ekki til, að neitt hafi breytzt í þessu efni. Og ekki veit ég, hvaðan hv. þm. er komin sú vizka, að afstaða manna til þessa frv. hafði nokkurn hlut breytzt. En á það ber að líta, að það getur verið hægt að fylgja máli, þegar því er stórfelldlega breytt og það kemur fram í nýrri mynd, þó að það sé ófært að ljá því fylgi eins og það kom frá þessum hv. þm. upphaflega, með öllum þeim umbúðum og agnúum, sem því fylgdu þá.