18.03.1936
Efri deild: 27. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)
64. mál, ólöglegar fiskveiðar
Magnús Guðmundsson:
Ég kæri mig ekki um að fara út í miklar deilur um þetta. Ég vildi aðeins benda á það ósamræmi, sem hér kemur fram í refsiákvæðunum. Ég get ekki skilið, að það sé undir neinum kringumstæðum verra að aðstoða við brot heldur en að fremja brotið sjálft, og þetta fer algerlega í bága við þær reglur, sem liggja til grundvallar öllum okkar refsirétti. Hirði ég svo ekki að ræða frekar um það, en ef hlaupa á eftir því, sem mönnum finnst eftir því, hvernig hægt er að uppæsa þá með blöðum og þess háttar, þá er víst hægt að komast nokkuð langt með refsiákvæði. Mér fyrir mitt leyti finnst verra að fara inn í landhelgina og toga þar heldur en t. d. að hjálpa mönnum á eftir að komast undan refsingu fyrir að hafa gert það. Hvað snertir nauðsynina á því að gefa út bráðabirgðalög, þá finnst mér hæstv. ráðh. hafi sjálfur sannað, að það var ekki nauðsynlegt. Það sem ég held fram, er, að það hefði verið hægt að setja nákvæmlega sömu reglurnar eftir l. frá 1917 eins og settar eru með þessum l. En þar sem 1. eru nú komin í það horf, að ég hefi ekkert verulegt við þau að athuga, þá er ekki ástæða til að gera þetta að deilumáli, önnur en sú, að það ber auðvitað hverri stj. að forðast að gefa út bráðabirgðalög, nema í brýnustu nauðsyn, því að það skilyrði setur stjskr.