25.04.1936
Neðri deild: 56. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 818 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)
64. mál, ólöglegar fiskveiðar
*Pétur Halldórsson:
Herra forseti! Ég skal ekki vera langorður, en ég finn mig knúðan til þess að segja nokkur orð út af ræðu hæstv. forsrh., sem mér fannst alleinkennileg. Hann sagði, hæstv. ráðh., að brotið hefði verið upp á þessu máli, þeim umræðum, sem orðið hafa út af hlustun þeirri, sem átt hefir sér stað í bæjarsímann undanfarnar vikur, af mönnum þeim, sem brotlegir hefðu gerzt um skeytasendingar til innlendra og útlendra togara nú að undanförnu. Þetta er hrein fjarstæða. Slíkur málflutningur sem þessi er óþolandi og ekki samboðinn manni, sem gera verður þá kröfu til, að sé a. m. k. siðaður maður. Þær umr., sem hér hafa farið fram, eru í sambandi við það, sem ég vakti fyrstur máls á hér í d. síðastl. þriðjudag að bæjarmenn myndu vera á einu máli um það, að tryggja bæri betur en gert hefir verið betri og öruggari umgang um símastöðina hér og í Hafnarfirði. Í sambandi við þessar umr. hefir það komið fram, ýmsum á óvart, að það er ekki í fyrsta skipti, að hlustað hafi verið á símtöl manna frá miðstöð bæjarsímans nú í þetta skipti, heldur hafi það átt sér stað áður. Þá gat hæstv. ráðh. þess, alveg án tilefnis frá mér, að hann hefði einu sinni áður fyrirskipað skeytaskoðun án úrskurðar. Hann hafi einu sinni rofið friðhelgi símans sem dómsmrh. Með þessu hefir ráðh. því viðurkennt, að hann hafi þó einu sinni gefið fordæmi um, að stjórnarvöldin gætu komið á eftirliti með notkun manna á þessum tækjum. Að þessu leyti er því hér um annað mál að ræða en ráðh. vildi vera láta. Með þessu hefir hann viljað leggja áherzlu á, að skeytaskoðunin væri allt annars eðlis en að læðast aftan að mönnum og hlusta í talsíma þeirra. Hvað hlustunina snertir, þá þykir mér undarlegt, að hæstv. ráðh. skuli neita að gefa upp þau númer, sem hlustað hefir verið í. Það er og furðulegt, vegna þess að þessi ráðstöfun hefir þegar komið að fullum notum, þar sem búið er að framkvæma hana, og eins og hv. þm. V.-Sk. tók fram, þá eru þessir hlutir hér eftir eins og hver önnur skjöl í sögu þessa máls. Að endingu skal ég taka það fram, að mér þykir vænt um, að ekki skuli eiga að hætta við þetta mál við svo búið, heldur halda því áfram, eins og hv. þm. G.-K. hefir lýst yfir.