28.04.1936
Neðri deild: 58. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í B-deild Alþingistíðinda. (1220)

64. mál, ólöglegar fiskveiðar

Thor Thors:

Hæstv. forsrh. var svarafátt við ásökunarræðu þeirri, sem ég beindi til hans við síðustu umr. Ræða hans nú var aðeins endurtekning á því nauðaómerkilega fálmi, sem hann var þá að reyna sér til varnar. Hann er að reyna að tengja þetta mál, sem hér liggur fyrir, við það dæmalausa hneyksli, sem nú hefir nýlega komizt upp, að stjórnarvöldin hafa notað lögregluna til þess að hlera einkamál manna í símanum. En þessi mál eru gersamlega óskyld og koma hvort öðru ekkert við. Hæstv. ráðh. veit vel. að það var hending ein og ekkert annað, að hv. 5. þm. Reykv. kom fram með fyrirspurn sína um símanjósnirnar sama daginn og þetta mál var hér til umr. Munurinn er sá, að hæstv. ráðh. hefir alla tíð verið heimilt að láta skoða öll skeyti til togaranna og frá þeim, en símanjósnirnar eru í senn þvert ofan í öll lög og siðferðisreglur.

Ég vil þá nokkuð víkja að hinni svokölluðu svarræðu hæstv. ráðh. Ég hafði sagt, að hv. þm. S.-Þ., sem fór með völd dómsmrh. í 4 ár, væri stórkostlega ámælisverður fyrir það að hafa aldrei allan þann tíma notað sér heimildina í lögum frá 1917 og reglug. frá 1918 um skeytaeftirlit togara, þrátt fyrir það, að stjórnarandstæðingar hefðu hvað eftir annað bent honum á það, að þessi heimild væri fyrir hendi. Svör hæstv. forsrh. við þessari ásökun minni eru nú þau, að hv. núv. þm. S.-Þ. muni ekki hafa þótt ákvæði laganna um þetta efni nægilega skýr og ótvíræð! Þetta er ákaflega fróðleg og skemmtileg skýring, þegar þess er gætt, að í hlut á maður, sem umgekkst lögin jafnvarlega og hv. þm. S.-Þ. gerði í sinni ráðherratíð. Þessi viðbára ráðh. er því ekkert annað en hin augljósasta blekking, svo augljós, að hún er sprenghlægileg.

Ég sagði ennfremur, að hæstv. ráðh. sjálfur væri stórkostlega ámælisverður fyrir það að setja ekki, strax og hann tók við stjórn, þær reglur, sem hann taldi nauðsynlegar um rekstur loftskeytastöðva og skeytaskoðun, til þess að koma í veg fyrir misnotkun. Að ráðh. gerði þetta ekki, sýnir bezt, að hinn málefnislegi áhugi hefir ekki verið ýkjamikill hjá hæstv. ráðh. Hann réðst með offorsi á hv. þm. G.-K. og hv. 1. þm. Skagf. fyrir að hafa ekki gert slíkar ráðstafanir, er þeir voru dómsmrh. En ef engin heimild var til slíks í lögum, eins og hv. ráðh. heldur fram, hvernig áttu þeir þá að gera það?

Nei, munurinn er hér sá, að hvorki hv. 1. þm. Skagf. né hv. þm. G.-K. hafa ráðizt á íslenzka útgerðarmenn með svívirðingum og dylgjum fyrir óleyfilegar skeytasendingar, eins og hv. þm. S.-Þ. og hans fylgifiskar. Sá grunur, sem hv. þm. S.-Þ. og hæstv. dómsmrh. þykjast hafa haft, var ekki til hjá fyrrv. ráðh. Sjálfstfl., og þá var vitanlega engin ástæða fyrir því að fara að beita heimildinni, þótt þeir vissu, að hún væri til. — Hæstv. ráðh. spurði, hvers vegna við sjálfstæðismenn greiddum atkv. með frv. nú. Það get ég sagt honum. Við treystum honum ekki til þess að notfæra sér þá heimild, sem fyrir er í lögum, fremur nú en áður, og því þurfi ákvæði þessa frv. sem spora á hann. Skoðun flokksins á málinu er alveg óbreytt, en það hefir sýnt sig, að nýrra ráðstafana þarf til þess að knýja dómsmrh. stjórnarliðsins til þess að gera skyldu sína í þessum efnum.

Hæstv. dómsmrh. kveðst hafa fengið þakkir víða að fyrir aðgerðir sínar í skeytasendingamálinu. Já, sér er nú hver röggsemin, að aðhafast ekki nokkurn skapaðan hlut í heilt ár, þangað til loksins að dulmálslykill flýtur upp í hendurnar á honum, þrátt fyrir öll skrif flokksblaða hans árum saman um þetta mál og árásir og ásakanir hv. þm. S.-Þ. í garð útgerðarmanna.

Ég vil láta það í ljós, að ég er hræddur um, að frá teknisku sjónarmiði séu lögin ekki nógu vel útbúin, og sum ákvæði þeirra geti orðið til trafala, t. d. skrásetning allra skeyta um síldveiðitímann, þegar engin landhelgi er í raun og veru til. En í 3. gr. segir á þessa leið:

„Öll skeyti til og frá veiðiskipum eða milli veiðiskipa — hvort heldur eru loftskeyti, talskeyti eða lofttal — skulu rituð á skeytaeyðublöð, og send landssímastjórninni að liðnum hverjum mánuði, en landssíminn geymir þau a. m. k. í 5 ár.“

Hér er tekið fram, að öll loftskeyti skuli vera skrásett. En allir, sem þessum efnum eru nokkuð kunnugir, vita, að talstöðvar í vélbátum eru mikið notaðar til þess að rabba saman um síldveiði, afla og horfur um síldveiðitímann, þegar engin landhelgi er til. Skrásetning slíkra samtala er því varla annað en óþörf og skaðleg skriffinnska. — Við hv. 8. landsk. höfðum óskað eftir því, að landssímastjóri kæmi á fund allshn., er hún hafði þetta mál til meðferðar, en úr því varð ekki. Það er því á ábyrgð stjórnarflokkanna, að frágangur frv. er eins og hann er, og þeir verða að taka á sitt bak þá óánægju, sem þetta ákvæði frv. og ef til vill fleiri kunna að vekja meðal sjómanna.