04.05.1936
Efri deild: 63. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 842 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)
92. mál, forgangsréttur til embætta
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég sé, að í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að þeir kandídatar, sem hafa tekið próf í íslenzkum fræðum, eigi að hafa forgangsrétt til kennslu í íslenzkri tungu, sögu og bókmenntum við alla skóla ríkisins, þegar kennslan nemur fullu kennarastarfi. Mér skilst, að þetta eigi að vera við alla æðri skóla, en vildi þó spyrja hv. menntnm. hvort þetta eigi einnig við barnaskóla. Sé sé ekki, þá er sjálfsagt að gera hér undantekningu. En mig grunar, að þetta eigi ekki við barnaskóla.