23.03.1936
Neðri deild: 31. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (1251)

12. mál, meðferð einkamála í héraði

*Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Þegar þetta mál kom fyrst fram á síðasta þingi, þá gerði ég við 1. umr. nokkra grein fyrir innihaldi þessu frv. Sé ég ekki ástæðu til að endurtaka þær skýringar nú. Ég vil aðeins geta þess, að frv. er endurbót á íslenzkri réttarfarslöggjöf í einkamálum. Fyrst og fremst með því að sameina í eina heild öll ákvæði, sem farið er eftir í þessu efni. Í öðru lagi með því að sníða ákvæði l. á þá leið, að það flýti rekstri mála og geri auðveldari fyrir alla aðilja. Þetta er m. a. gert með munnlegum málaflutningi, sem verði aðalreglan fyrir undirrétti, í stað þess að verið hefir skriflegur. Þá er og styttur frestur í ýmsum tilfellum, og mörg eru fleiri ákvæði, sem miða að því, að mál megi fyrr ljúkast. Í þriðja lagi er ætlazt til með frv., að mál megi ljúkast á þá lund, sem landslög mæla fyrir um, og er reynt að búa sem tryggilegast um það. Til þess er m. a. ákvæðið um aðiljaskýrslur, sem allshn. og þeir aðrir, sem um málið fjalla, eru fullvissir um, að leiði til réttari niðurstöðu í málum heldur en treysta má nú, vegna þess að þess hefir ekki verið kostur ,ð leiða aðilja fyrir rétt og láta þá segja undir refsiábyrgð, hvernig málsatvikum er háttað. En það hefir þótt við brenna, þegar menn standa utan við og segja aðeins málaflutningsmönnum sínum frá málavöxtum, að þeir dylji ýmsar upplýsingar og fari sumstaðar ekki rétt með. En það er búizt við að fá tryggari upplýsingar, sem leiði til öruggari niðurstöðu, þegar aðiljaskýrslur verða teknar eftir því, sem frv. mælir fyrir.

Allshn. er því á einu máli um það, að mæla mjög eindregið með því, að frv. nái fram að ganga, og byggir skoðun sína á því, að okkar réttarákvæði séu mörg næsta úrelt og ekki í samræmi við kröfur tímans. Enda er það svo, að mörgum okkar réttarfarsákvæðum svipar til þeirra, sem giltu á Norðurlöndum fyrir nokkru síðan, en hafa verið endurbætt upp í svipað fyrirkomulag því, sem ætlazt er til að lögfesta með þessu frv.

Eins og getið er um í nál. sendi n. þetta frv. á síðasta þingi til tveggja aðilja, sem búast mátti við, að gætu gleggst um það dæmt, hvort ákvæði frv. væru til bóta og þá bent á aðra leið, ef þeim þætti ástæða til. Þessir aðiljar voru lagadeild háskólans og Málaflutningsmannafélag Íslands. Lagadeildin hefir því miður ekki getað sent umsögn sína, sem stafar af því (eins og greinir í nál.), að einn lagakennarinn hefir verið mjög forfallaður vegna veikinda, annar, sem aðeins er settur, hefir haft óvenju miklum störfum að gegna í háskólanum undanfarið, og þriðji kennarinn hefir af sorgaratburðum. sem fyrir hann komu, ekki getað tekið þátt í venjulegum störfum um tímat. Allshn. sá sér því ekki fært að bíða eftir þessu áliti, þar sem hún hefir og mikla ástæðu til að ætla, að lagadeildin sé meðmælt þeim meginbreyt., sem í frv. felast. Veit ég, að ég má segja það eftir persónulegu viðtali við a. m. k. tvo af kennurum háskólans, að d. muni vera frv. í aðalatriðum sammála.

Málaflutningsmannafélag Íslands tók málið til rækilegrar athugunar, skipaði n., sem fór í gegnum frv. og benti á nokkrar breyt., sem hún taldi til bóta á því. Álit n. var lagt fyrir almennan fund í félaginu, sem einróma samþ. till. og álitsskjal n. innan félagsins. En heildarniðurstaða þessa álits er á þá leið, að mælt er mjög eindregið með því að samþ. frv., en bent er hinsvegar á. nokkrar breyt., og tel ég þær horfa til bóta á frv. Allshn. athugaði þessar brtt. sérstaklega, og leiddi sú athugun til þess, að þær brtt. voru teknar upp, sem n. leyfir sér að bera fram á þskj. 189. Eru nokkrar þeirra fullkomlega í samræmi við ábendingu frá málaflutningsmannafélaginu.

Ég skal nú í fáum orðum gera grein fyrir brtt. n. Fyrsta brtt. er smáleiðrétting á frv., þar sem láðst hafði að geta, að vitnað er í 82. gr. frv. til tryggingar því, að það væri augsýnilegt, að leitað skuli um sættir aðeins af héraðsdómara, en ekki sáttanefnd, í þeim málum, sem áður hafa verið rekin fyrir gestarétti samkv. sérstakri heimild í l. frá 1905 um varnarþing í veðskuldamálum. Það var alltaf meining þeirra manna, sem frv. sömdu, að þessu skyldi vera svo háttað, en var ekki nógu skýrleg, tekið fram í 5. gr. frv.

2., 3. og 4. brtt. eru aðeins formsbreytingar viðkomandi starfi sáttanefndar, sem miðaðar eru við Reykjavík sérstaklega, þar sem langflest mál koma fyrir sáttanefnd. Og þetta er nánast eftir ábendingu frá þeim manni, sem um margra ára skeið hefir starfað í sáttanefnd Reykjavíkur, skrifstofustjóra Alþingis, Jóni Sigurðssyni. Hefir hann bent á þessi atriði samkv. fenginni reynslu sáttanefndar um framkvæmd bókhalds síns viðkomandi sáttaumleitunum, og allshn. hefir fallizt á röksemdir hans.

5. brtt. fjallar um það, að þegar þörf þykir á því að heyja dóma fyrir lokuðum dyrum vegna, glundroða, sem ella kynni að eiga sér stað, eða vegna þess að málið er svo vaxið, að það særir blygðunartilfinningu manna, þá skuli dómari kveða upp úrskurð um þau atriði. Þetta er í samræmi við það, sem tíðkast annarsstaðar, þar sem dómþing eru háð í heyranda hljóði, og á að vera til þess, að það sé ekki órökstutt, að réttarhald fari ekki fram í allra áheyrn. B-liðurinn er aðeins formsbreyting.

6. brtt. er þess efnis, að leyfisgjald fyrir að flytja mál fyrir undirrétti sé 50 kr. í stað 100 kr. í frv. Málaflutningsmannafélagið mótmælti því, að gjaldið væri svo hátt, enda gat allshn. fallizt á að lækka það, þegar á það er litið, að stimpilgjald af skipunarbréfi til embættis er ekki nema 25 kr.

7. brtt. er á þá leið, að málaflutningsmönnum skuli vera skylt að hafa skrifstofu opna á ákveðnum tíma og tilkynna það dómara. „Setudómara“ í brtt. er prentvilla, sem ég vona, að nægilegt sé að leiðrétta hér með.

Eftir 8. brtt. skulu ekki aðeins héraðsmálaflutningsmenn, heldur einnig hæstaréttarmálaflutningsmenn hafa með sér félagsskap og velja fulltrúa úr sínum hópi.

Málaflutningsmannafélagið gerði aths. út af ákvæðum frv. um þetta, og þótti okkur rétt að ákveða, að allir málaflutningsmenn skyldu mynda með sér félagsskap til þess að gæta hagsmuna sinna og hafa eftirlit með því, að allir innan stéttarinnar hagi sér eins og svo ábyrgðarmiklu starfi sæmir. B-liður brtt. er á þá leið, að stj. félags löggiltra málaflutningsmanna geti veitt einstökum félagsmönnum áminningar og jafnvel lágar fésektir fyrir ávirðingar í starfi þeirra. Þetta er í samræmi við það, sem erlendis tíðkast. Þar ber öllum málaflutningsmönnum skylda til þess að mynda með sér félagsskap, og skal stjórn félagsins gæta þess, að meðlimir þess hagi sér eins og sómi stéttarinnar krefst, og má jafnvel svipta. þá rétti til starfa. Við höfum þó ekki viljað ganga svo langt, heldur látið nægja að gefa félagsstjórninni vald til áminninga og smásekta.

9. brtt. er efnisbreyting. Var drepið á þessa breytingu í álitsskýrslu málaflutningsmannafélagsins, án þess þó að nánar væri þar út í það atriði farið. En allshn. varð sammála um að taka það upp að greina sundur sakarefni. — Segjum svo, að mál hefjist út af árekstri skipa. Þá ber vitanlega fyrst að athuga það, vort stefndur á sökina. Ef stefndur á hana ekki, koma auðvitað kröfur um bætur ekki til greina, en sé hann sekur fundinn, er fyrst um það að ræða, hve miklar bæturnar eigi að vera. Því er rétt að taka, fyrra atriðið til meðferðar fyrst, en hefja ekki þegar mál út af skaðabótunum, og spara, þannig málflutning, ef fyrra atriðið útilokar það síðara.

Þetta er í samræmi við þann aðaltilgang frv., að flýta fyrir málunum og fá á þeim sem öruggasta lausn.

Þá er 10. brtt. við 109. gr. Við viljum láta það koma skýrt fram, að málflutningur fyrir undirrétti skuli að öllum jafnaði vera munnlegur, en hitt séu undantekningar. Þetta er greinilega tekið fram í 10. brtt., og eru ákvæði hennar mjög í samræmi við það, sem tíðkast í hæstarétti. Allir þar, bæði dómarar og málaflutningsmenn, eru sammála um það, að munnlegi málaflutningurinn sé bæði eðlilegri og betri en hinn skriflegi, enda hefir allt gengið í þá átt þar að afnema skriflega málaflutninginn, eftir því sem sem mögulegt er. 10 ára starf hæstaréttar hefir fært mönnum heim sanninn um yfirburði hins munnlega málaflutnings. Við viljum slá hinu sama föstu í undirrétti með 10. brtt.

11. brtt. er ekki efnisbreyting. Aðeins er þar kveðið skýrara á um það, að aðili skuli leiddur fyrir rétt eins og vitni almennt. Við vildum orða þetta svo ljóst, að það gæti ekki orkað tvímælis.

Í 12. brtt. er nánar ákveðið um það, að dómari eiga að leyfa málaflutningsmanni að spyrja vitni, en ekki aðeins geti leyft það. En dómarinn verður auðvitað að vaka yfir því, að vitnin séu ekki þvæld eða spurð ósæmilegum spurningum né um það, sem ekki kemur málinu við. Dómarinn á að vera. svo kunnugur málinu eftir framlögðum gögnum, að honum veitist auðvelt að hafa nauðsynlegt eftirlit með slíkum vitnaspurningum.

Í 13. brtt. er því bætt inn í 172. gr., að vottorð formanns niðurjöfnunarnefndar í gjafsóknarmálum skuli í té látið tafarlaust og ókeypis.

Þá er 14. brtt., sem er þess efnis, að í fjölskipuðum dómi skuli birt ágreiningsatkvæði, t. d. í ,,sjódómi, verzlunardómi og iðnaðardómi.

Ég vil að lokum mæla eindregið með því í nafni allshn., að þessar brtt. nái fram að ganga. Við teljum, að frv. með þessum breyt. sé framför og réttarbót, sem alþjóð sé fengur í, og verði til þess að flýta málum og gera lausn þeirra öruggari. Með þessari löggjöf losnum við við hinn gamla, tafsama, skriflega málaflutning, sem auk þess var ekki eins öruggur sem hinn munnlegi. þar sem aðiljar sjálfir fást eigi ávallt fyrir dóm, þegar skriflegum málaflutningi er beitt.