26.03.1936
Neðri deild: 34. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)

12. mál, meðferð einkamála í héraði

*Magnús Torfason:

Ég heyrði það á hv. frsm., að honum var annt um, að þetta frv. fengi greiðan framgang hér í d. og að hann ætlast til þess fyrir sitt leyti, að frv. verði afgr. sem lög frá þessu þingi. — Það stendur í 222. gr. frv., að l. eigi að ganga í gildi í. sept. 1936. Eftir því á undirbúningur undir þessa breyt. að vera sem skemmstur. Mér skilst, að dómarar eigi að nota sumarfríið til þess að undirbúa hana. Ég held, að þetta sé fullmikið bráðlæti. Mér er kunnugt um, að þegar gerðar eru meiri háttar breyt. á réttarfarslöggjöfinni í öðrum löndum, þá eru skipaðar n. til þess að athuga málið, og hafa þær langan tíma til að undirbúa breyt. Svo er komið með þær inn í þingin og er þeim velt þar ár eftir ár, þar til samkomulagi er náð um það hvernig á að afgr. þá lagabálka. En hér er verið að leggja til, að þessi lög verði hespuð af einu þingi. Ég álít, að það hefði ekki veitt af að þvæla um þau á tveim þingum, þannig að hvor d. fyrir sig hefði haft það heilt þing til meðferðar. — Nú er það vitanlegt, að þetta frv. hefir verið undirbúið af sérfróðum mönnum góðum og gætnum. Ég held líka, að það sé enginn vafi á, að þessi löggjöf stefnir í rétta átt og að hún er að mörgu leyti til bóta. En það er heldur enginn vafi á hinu, að það er full þörf á að athuga frv. betur en gert hefir verið.

Við skjótan yfirlestur virðist mér frv. of einhæft, og er það sýnilega miðað við staðhætti og starfsmenn hér í Rvík, enda er það undirbúið af lögfræðingum, sem aðallega eru kunnugir meðferð mála þar. Ég skal nú færa þessum orðum mínum stað með því að benda á nokkur atriði í frv., sem ég tel, að betur hefðu mátt fara. — Í 2. gr. frv. sagt, að bæjarstjórnir í kaupstöðum skuli skipa sáttamenn. Ég veit nú ekki fullkomlega, hvað á að felast í þessum orðum; en ég hélt, að meiningin væri sú, að þær ættu að velja sáttanefndarmenn, og ef svo væri. þá yrði það gert samkv. hlutfallskosningu. Og þá er það pólitískt vald, sem á að framkvæma þessa skipun. Þetta bendir fyllilega til þess, að það veltur gersamlega á agitationum hins pólitíska valds, hverjir verða sáttasemjarar, og veit ég ekki, hvort það er rétt. Amtmennirnir skipuðu áður sáttanefnarmenn í hreppunum, og sýslumenn hafa gert það nú um alllangt skeið, og hefi ég ekki orðið þess var, að það færi illa á því; en nú eiga hreppsnefndir að skipa þá samkv. þessu frv. Þar sem þetta er einn mikilsverður liður í réttarfarsmálunum, finnst mér eðlilegra, að dómararnir, sem eiga að byggja á gerðum sáttanefndu, skipi sáttanefndarmenn. Hinsvegar hefir því fyrirkomulagi, sem gert er ráð fyrir í frv., verið framfylgt í Rvík og kaupstöðunum nú um skeið, og hefir það ekki orðið til bóta. Það hefir jafnan mikið að segja fyrir meðferð og úrslit mála, að í sáttanefndum séu gegnir og góðir menn. Þess vegna má ekki láta sér standa á sama um það, hverjir til þess veljast. Skipunarvaldið mun bezt komið hjá dómurunum m. a. vegna þess, að þeir hafa hagsmuna að gæta um það, hvernig sáttanefndir rækja störf sín. Því betur sem þær inna þau af hendi, því færri mál koma til dómar. Úr því að verið er að breyta þessum lögum á annað borð, þá álít ég rétt að víkka nokkuð verksvið sáttanefnda. Ég sé t. d. ekki, hvers vegna eigi má trúa þeim fyrir einföldum skuldamálum, einkum að því er kemur til útivistardóma. Með því mætti áreiðanlega spara mönnum talsverð fjárútlát. Þetta ákvæði 2. gr., um að hreppsnefndir skuli skipa sáttamenn, virðist vera í ósamræmi við síðustu málsgr. 4. gr., þar sem sýslumönnum, og í bæjum lögmönnum, er ætlað að meta ástæður manna til undanfærslu frá sáttastarfinu. Hvers vegna er bæjarstjórnum og hreppsnefndum ekki ætlað að skera úr því?

Þá er í 8. gr. sagt, að sáttamaður skuli rita á kæru ákvörðun sína um stað og stund sáttafundar. En ég tel réttara, ef það væri til hægðarauka fyrir aðilja, að ákveða sáttafundarstað þingstað hreppsins; það er sá staður, sem bezt er í sveit komið samkv. nálega 1000 ára reynslu hér á landi, um það hvar slíkar samkomur eiga að vera. Ég sé enga ástæðu til annars en að sáttaþing séu látin fara fram á þingstað hreppsins, ef annað er ekki viðkomandi aðiljum til meiri þæginda. — Þá vil ég athuga lítilsháttar ákvæði 27. gr. frv., um borgun til sáttamanna. Ég get ekki verið sammála hv. þm. Ak. um það, að þeir eigi aðeins að fá 1 krónu á dag, en þar er nú líka nokkurt bil á milli þess og ákvörðunar frv. Ég fæ ekki séð, að þetta geti staðizt eins og það liggur nú fyrir í frv., að í Rvík geti sáttamaður fengið 7 kr. á dag eða fyrir hluta úr degi; við vitum, að sáttamenn taka hér oft fyrir tugi mála á dag, og það er ekki annað sýnilegt en að þeim sé ætlað að fá 7 kr. fyrir hvert mál. (GÞ: Ekki í Rvík). Ja, það stendur í frvgr., að ef sáttamenn gegna fleiri málum í sömu ferð, skal skipta dagpeningum og ferðakostnaði sanngjarnlega milli málanna. — Já, það er rétt, þetta á við sáttamenn utan kaupstaða.

En svo er það annað, sem ég sé ástæðu til að drepa á. Sáttamaður aðeins að fá borgun fyrir verk sín, ef sáttafundur er haldinn utan heimilis hans. Ég skal ekki, hvers vegna á að gera upp á milli sáttamanna í þessu efni. Sá, sem er aðkomandi, fær dagkaup, en hinn, sem heldur sáttafund á heimili sínu, á ekkert að fá. Að vísu fá sýslumenn ekki sérstaka borgun fyrir störf, sem þeir framkvæma heima hjá sér, svo sem skattanefndarstörf o. fl. En það hefir verið fóðrað með því, að sýslumenn hefðu föst embættislaun. Sáttamenn hafa hinsvegar engin laun sem slíkir. Þetta þýðir það, að ef sáttamaður stefnir málsaðiljum á heimili sitt til sáttafundar, verður hann að traktera þá auk þess tíma, sem hann eyðir, án nokkurs endurgjalds, en hinn sáttamaðurinn á að fá dagpeninga fyrir sín störf. Ég held, að það hefði mátt ganga betur frá þessu atriði en gert hefir verið í frv. Ég get ekki séð hvaða sanngirni er í því, að sáttamaður, sem fer máske í næsta hús til sáttafundar, fái 7 kr., en hinn ekki nema 2 kr. fyrir sáttastarfið.

Í II. kafla, sem fjallar um dómara o. fl., er í 29. gr. kveðið svo á, að héraðsdómari eigi að halda dómþing utan lögsagnarumdæmis síns, ef það þykir heppilegt til upplýsinga í máli. Þetta getur verið gott og gilt, og hefi ég ekkert á móti því, En ég held, að það hljóti að vera réttara að ákveða nánar um þetta, og þá sérstaklega, hver á að úrskurða um það, hvað heppilegast sé að gera í hverju máli í þessu sambandi. — Þá er í 30. gr. sagt auk þess, sem konungur skipar reglulega héraðsdómar,, að ráðh. ákveði embættisbústað þeirra hverju sinni. Það mun nú vera nokkurnveginn ákveðið um allt land, hvar embættisbústaðir héraðsdómara skuli vera, en það er í kaupstöðum og stærstu verzlunarstöðum héraðanna. Þó er hér á Suðurlandsundirlendi alls ekki fullvíst, hvar þeir sýslumenn, sem þar eru, skuli hafa sinn embættisbústað, eða hvort það verður á þeim stöðum, sem þeir nú eru. En það getur kostað þessa embættismenn stórfé, ef þeir eru búnir að hyggja sér hús á einhverjum vissum stað í héraðinu, og svo skyldi embættisbústaðurinn ákveðinn annarsstaðar. Getur það vissulega orðið til þess að koma þeim embættismönnum í fjárhagslegt öngþveiti frá upphafi embættisstarfs þeirra til enda. Til sveita er ekki hægt að selja slíkar eignir fyrir sannvirði; það hefir reynslan sýnt. Þess vegna tel ég rétt, að um leið og þessi kvöð er lögfest, þá sjái ríkið um, að embættisbústaðirnir séu að fullu ákveðnir. Enda mun nú yfirleitt vera orðin þörf á því allsstaðar, m. a. vegna þeirra skjalasafna, sem nú fylgja dómaraembættum. Og ef það á að vera unnt að gegna þessum embættum svo að vel sé, þá hygg ég, að flestir skilji, að ríkið verður að sjá um, að embættinu fylgi sæmilegar skrifstofur, svo að hægt sé að koma þar fyrir skjölum, svo að í lagi sé, þannig að þeim sé vel niður raðað. En það er ekki hægt, nema embættisbústaðirnir séu góðir. — Nú, þá er í 32. gr. tekið fram, að til þess að maður geti orðið dómari, verði hann áður að hafa verið í vissum stöðum. Það á t. d. að vera meðmæli með manni í dómarastöðu, að hann hafi verið bankastjóri, sendiherra eða fulltrúi sendiherra. Mér þykir þetta dálítið hjákátlegt, því ég held tæplega, að bankastjórar færu að sækja um dómaraembætti. Það er ekki það vel launað starf. Og ég hélt satt að segja, að þessar stöður væru heldur til þess, að slíkir menn gleymdu því alveg sem þeir hefðu lært í lögum. Það er eins og gerist, þegar menn fá stöður, sem ekki koma við þeirra námi, þá gleyma þeir sínum barnalærdómi smátt og smátt.

Eitt aðalatriðið í þessum lögum er það, að dómarar eiga að stýra málum og leiða þau, og það er ekki nema gott um það að segja, og tel ég það sjálfsagða bót. En með því er sett á þá talsverð ábyrgð frekar en áður var, og það er enginn vafi á því, að það verður ekki minni þörf heldur en áður til þess að hafa dugandi menn í þessum embættum. En nú er svo komið að það vill helzt enginn dugandi lögfræðingur fara í þessi embætti. Hann gerir það aðeins tilneyddur, og stéttin hefir verið talsvert rýrð með þeim launakjörum, sem henni hafa verið boðin. En það virðist sem svo, að þeir, sem um þetta mál hafa fjallað, hafi ekkert hugsuð um þetta, og virðist þó rétt að gera það um leið.

Þá stendur í 55. gr., að menn séu skyldir að fela löggiltum málflutningsmanni mál sín, nema með þeim undantekningum, sem áður eru í gr. taldar, að menn geti látið frændur sína að feðgatali eða niðja o. s. frv. fara með þau. Hér er lögboðinn nokkurskonar einkaréttur fyrir málflutningsmenn. en ég veit ekki, hvort það er full ástæða til enn sem komið er að gefa þeim þennan einkarétt. A. m. k. skilst mér, að það sé nokkuð hart, ef þær stofnanir eða einstakir menn, sem hafa lögfræðinga í sinni þjónustu, mættu ekki láta þá sjá um mál sín, sérstaklega ef um einföld skuldamál væri að ræða. Það er reynsla fyrir því, að þetta getur orðið alldýrt. T. d. kom það fyrir hjá mér nýlega, að maður í Reykjavík átti 35 kr. hjá manni austur í sveit.

Hann fékk dóm fyrir skuldinni, og var svo farið austur í Árnessýslu til að gera fjárnám, og var skuldin þá komin upp í 212 kr. Í þessu sambandi kemur mér í hug, að menn ættu að geta farið með slík mál til sáttanefnda, en þurfi ekki að leita til málaflm., m. ö. o., að menn geti leitað sáttanefnda í þeim tilfellum, þegar viðkomandi utanhéraðsmenn eru skyldir til þess að mæta hvort sem er. Mér finnst yfir höfuð að tala, að þessi forréttur málflutningsmanna verði nokkuð víður og að það mætti vel þrengja hann. Frv. ber líka vott um það, að tiltrúin er ekki alveg örugg hjá þeim, sem frv. hafa samið, til málflutningsmanna. Það stendur sem sé í 60. gr., að loforð um sýnilega ósanngjarnt endurgjald fyrir málflutningsstarf sé ekki skuldbindandi. Mér finnst þarna sveigt nokkuð að málflutningsmönnum og að það sýni, að það er þó ekki full og undantekningarlaus tiltrú til þeirra. Það er síður en svo, að ég ætli að fara að gera lítið úr þessari stétt yfirleitt, en hún er nú risin upp á fáum árum, svo að þetta má heita alveg ný stétt, og það er ekkert undarlegt, þó að þar kunni að vera misjafn sauður í mörgu fé.

Þá þarf ég aðeins að minnast á 135. gr., um þóknun til vitna. Þar stendur, að vitni eigi aðeins að fá þóknun, ef það krefjist þess. Mér finnst ekki rétt að pína vitnið til þess að gera kröfu um þóknun; það er sjálfsagt, að það fái hana án þess. Ég hefði því talið réttara að orða þetta þannig að vitnið ætti að fá þóknun, ef það ekki neitaði að taka við henni. — Svo á vitnið að fá 50 aura til 1 krónu fyrir hverja klukkustund, er það missir af starfi vegna þingsóknar. Ég veit ekki, hvort það er ástæða til að halda þessum gömlu 50 aurum; ég hefði talið réttast að láta þetta vera blátt áfram 1 krónu.

Þá er í 137. gr., þegar matsgerðir eiga fram að fara, ekki talað um það, hverjir eigi að stýra matsgerðinni eða hverjir hefjist handa um hana. Gæti það því komið fyrir, að þeir væru að bíða hver eftir öðrum, matsmennirnir. Ég hélt, að það væri útlátalaust að setja það í l., að dómari ákvæði það, hver þessara manna ætti að stýra matsgerðinni og hver þeirra ætti að bóka.

Þá er eitt atriði, sem ég tel til bóta, það er 7. liðurinn í 175 gr., um kostnað af flutningi mála að hann á að vera hæfilega metinn af dómara. Það hefir nefnilega oft komið fyrir, að málflutningsmenn hafa tekið alveg óþarflega hátt fyrir flutning mála í útivistardómum, þar sem eiginlega er ekki annað verk en að búa til stefnu. Ég segi fyrir mitt leyti, að mér hefir þótt það illt verk að þurfa að taka þær kröfur til greina, og því tel ég þetta ákvæði til bóta og býst við, að það verði skoðað sem svo, að dómarar séu ekki bundnir við taxta málflutningsmanna. Og í því sambandi vil ég minnast á 148. gr., þar sem aðilja er heimilt að leggja fram sundurliðaðan reikning yfir kostnað sinn, og skal þá að jafnaði dæma honum þann kostnað, sem hann hefir haft af málinu. En aðili þarf ekki annað en að láta málflutningsmann rubba upp einhverjum reikningi, og bendi ég á þetta út af því, að ég vil, hafa skilið þetta „að jafnaði“ sem svo, að dómari sé ekki bundinn við það.

Nú, hvað viðvíkur málinu á þessu frv. þá hefði það mátt vera betra viða hvar. En ég skal ekki fara að elta ólar við það, aðeins nefna sem dæmi, að þeir, sem um frv. hafa fjallað, virðast hafa mikið dálæti á orðinu „undir“, eins og t. d. „undir sama skilyrði“. Þetta er ekki nokkur íslenzka. Eins er um fyrirsögn 18. kaflans: „Um mál til faðernis óskilgetinna barna“. Þetta er ekki fallegt mál. Svona mætti telja áfram, en ég ætla ekki að fara frekar út í það.

En hvað sem þessu öllu líður, þá óska ég þess, að ef þessi 1. verða samþ., þá verði þau ekki látin ganga í gildi fyrr en 1. jan. Ég hygg, að þau séu ekki of vel undirbúin, þó frestur sé gefinn þangað til. En eins og tekið hefir verið fram hér, þá eru einmitt flest mál til sveita síðari part sumars og að hausti.

Það hefir verið minnzt á það hér, að æskilegt væri að aðskilja dómsvaldið frá öðrum störfum. Ég tel alls ekki tíma til kominn að hugsa um það, m. a. vegna fásinnisins, sem hér á landi er, auk þess sem það verður allt of dýrt. Það hefir sýnt sig í öðrum löndum, þar sem það hefir verið gert, að það hefir kostað mikið fé. Og ég býst ekki við, að menn líti svo á, að það sé nokkur vegur til þess að fara að taka á sig slíkar byrðar að nauðsynjalitlu, eins og högum er nú háttað.