27.03.1936
Neðri deild: 35. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)

12. mál, meðferð einkamála í héraði

*Guðbrandur Ísberg:

Ég hefi leyft mér að bera fram brtt. þær, sem sjá má á þskj. 241. Eins og hv. dm. er kunnugt, þá gerði ég grein fyrir efni þessara brtt. hér í d. í gær, og mun því ekki fara að endurtaka nú það, sem ég sagði þá. En ég vil leyfa mér að minna á það, að hv. frsm. allshn. lýsti því yfir í gær, að n. féllist á þær að öllu leyti. Vænti ég því, að þær verði samþ.