30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í B-deild Alþingistíðinda. (1277)

12. mál, meðferð einkamála í héraði

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Allshn. hefir borið hér fram þrjár brtt. á þskj. 453, sem liggja þá fyrir til umr. En þó að n. hafi borið fram þessar brtt., er ekki svo að skilja, að allir nm. séu fullkomlega sammála, en kunnu ekki við að vera að kljúfa n., en hafa óbundið atkv. um einstök atriði. Sá nm., sem er flm. till., hv. 1. þm. Skagf., hafði ekki ástæðu til að mæta, en sendi þær inn í n.

Um fyrstu brtt. er það að segja, að ég get ekki greitt henni atkv. Er þar farið fram á, að framkvæmdarstjóri yfirgripsmikils viðskiptafyrirtækis öðlist rétt til að skipa dómarasæti. Ég tel þetta ekki rétt, enda hygg ég, að ekki verði um marga menn að ræða, sem lesið hafa lögfræði, en farið svo út í viðskiptalífið og síðar leita til dómsstarfa.

Sama má segja um aðra brtt., að nm. hafa um hana óbundið atkv. Þessi brtt., sem er við 33. gr., fer fram á, að víkja megi frá skilyrðinu. sem sett er í 6. lið, að því er snertir þá menn, þó ólöglærðir séu, hafi þeir gegnt skrifarastörfum hjá héraðsdómara a. m. eitt ár samfleytt. En það er svo, að í bæjunum er dómarastarfið svo fjölþætt, að það liggur í hlutarins eðli, að dómarinn getur ekki alltaf verið við, og að þess vegna er nauðsynlegt, að næsti maður sé löglærður. Allt frv. miðar að því, að málflutningur geti gengið hraðar, þar sem hann er nú munnlegur í flestum tilfellum, en var áður skriflegur. Ég tel því ekki rétt að víkja frá þeirri kröfu, að fulltrúi bæjarfógeta þurfi að vera löglærður maður. Og eins og kunnugt er, þá er hópur lögfræðinga til í landinu. sem búið hefir sig undir þetta sem lífsstarf og fengið þannig aðstöðu til að búa sig frekar undir dómarastarfið; virðist því engin ástæða til að veita þessa undanþágu.

3. brtt. held ég, að allir nm. geti fallizt á. Fer hún fram á, að vítalaust sé, þó að reglulegt bæjurþing sé ekki haldið oftar en einu sinni í hálfum mánuði. Getur það oft komið fyrir, að dómari í sýslufélagi þurfi að vera fjarstaddur svo lengi, að svari allt að ½ mánuði. Telur n. sanngjarnt að leyfa þetta, ef slíkt ber við. Annars er þetta að mestu sagt frá eigin brjósti, en ef hv. nm, hafa aðra skoðun, þá lýsa þeir henni.