04.05.1936
Efri deild: 63. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)
12. mál, meðferð einkamála í héraði
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Þó að brtt. á þskj. 478 sýnist ekki mjög hættuleg, þá hefir hún það í för með sér, að það er alltaf hægt að vitna undir embættisannir til að fresta máli. Nú er eitt aðalmarkmið þessa frv. að hraða öllum réttargangi. Og ég get búist við, að jafnvel í bæjum utan Reykjavíkur, þar sem meiri háttar verzlun er og nokkuð tíðar siglingar, geti mönnum verið kærkomið, að sum mál séu ekki dregin óhæfilega lengi. Málamergð er talin minni á slíkum stöðum en í Reykjavík. Og liggi nú ekkert mál fyrir einhverja viku, þá tekur náttúrlega engan tíma fyrir dómarann að setja bæjarþingið og slíta aftur á einkaskrifstofu sinni. En ef mál liggur fyrir, sé ég ekki ástæðu til að gera löggjöfinni neitt örðugra en efni standa til, enda getur legið mjög á að hraða máli. Ég get því ekki veitt þessari till. atkv. mitt, af því að ég tel hana geta gert eitthvert tjón, en dómurum í flestum tilfellum enginn óleikur ger, þó að hún sé ekki samþ.