19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (13)

Kosning fastanefnda

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Ég vildi mælast til þess, að þessi kosning verði látin fara fram, þar sem það er nauðsynlegt vegna þingskapanna. En hinsvegar vildi ég óska eftir því, að það verði látið bíða að taka ákvörðun um. hvort Bændafl. verði ætlað pláss í þessari n. eða ekki. Það má vel framkvæma þessa nefndarkosningu nú samkv. þingsköpum og taka svo ákvörðun um það síðar, hvort Bændafl. skuli taka þátt í þessari n.