27.02.1936
Neðri deild: 10. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (1335)
40. mál, brúargerðir
*Sigurður Einarsson:
Þetta frv., sem hér er um að ræða, kemur fram eftir að ég hefi flutt frv. mitt til breyt. á brúal., og vildi ég beina því til samgmn., hvort hún vildi ekki taka til endurnýjaðrar athugunar, hvort hún sæi sér ekki fært að mæla með því, að eitthvað af þeim 3 ám í Vestur-Barðastrandarsýslu, sem frv. mitt fjallar um, yrðu teknar upp í frv. n. Það er þá sérstaklega Hvestuvaðall í Ketildalahreppi, sem ég ber fyrir brjósti. Þessi á er í leiðinni milli Bíldudals og Selárdals, og er það póstleið og sú leið, sem menn verða að sækja lækni, fara í kaupstað og annara nauðsynlegra erinda. Áin er ekki allajafna svo mikið vatnfall, að hún sé til verulegrar torfæru, en löngum á vetrum og á vorum er hún mjög ill yfirferðar. — Það er misskilningur, að því er menn, sem kunnugastir eru þarna, segja, að hér sé ekki um allstóra brú að ræða. Í gærkveldi átti ég tal við greindan bónda úr Selárdalnum, sem oft hefir farið þessa leið, og sagði hann, að hér gæti varla verið um að ræða minni en 12–14 metra brú, og það þó að brúað væri á hagkvæmasta staðnum. — Ég vildi sem sagt beina því til hv. samgmn., hvort hún vildi ekki afla sér frekari vitneskju um þetta mál heldur en fengin er frá vegamálastjóra, sem reyndar gat þess í fyrra, að hvorki hann né verkfræðingur hans hefðu komið á þennan stað.