08.04.1936
Neðri deild: 47. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í B-deild Alþingistíðinda. (1339)

40. mál, brúargerðir

Frsm. (Finnur Jónsson):

Samgmn. hefir sent allar brtt., sem fram hafa komið við brúalögin, til umsagnar vegamálastjóra, og hefir samkv. hans tilh lagt til, að gerðar verði á hinu upphaflega frv. þær breyt., sem hún ber fram á þskj. 281. Þar eru teknar upp allar þær breyt. á brúalögunum, sem vegamálastjóri mælir með af þeim, sem bornar hafa verið fram á öðrum þskj., og auk þess nokkrar brýr, sem vegamálastjóri telur rétt að taka með, en ekki hafa verið gerðar till. um af einstökum þm. Er það brú á Vesturdalsá í Miðfirði, Hrolleifsdalsá í Sléttuhlíð, Sandós í Fljótum, Reykjaá í Fljótum. Hólsselskil á Fjöllum, Hörðudalsá í Hörðudal og Miðá í Miðdölum. En þær brýr, sem gerðar eru till. um á þskj. 66 og vegamálastjóri mælir ekki með, hefir n. ekki treyst sér til að taka upp, og þá ekki heldur brú á Sandá eða Brunná neðan þjóðvegar í Öxarfirði sem hv. þm. N.-Þ. gerir till. um á þskj. 219. — Ég ætla ekki að fara nánar út í till. vegamálastjóra um þessi mál, en umsögn hans er í mínum höndum, og er ég vitanlega fús að lána hana hverjum þeim hv. þm., sem óskar að athuga þetta nánar.