07.05.1936
Sameinað þing: 19. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í B-deild Alþingistíðinda. (134)

1. mál, fjárlög 1937

Þorbergur Þorleifsson:

Ég þarf ekki að vera langorður út af ræðu hv. þm. A.-Húnv. En viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði síðast, þegar hann var að tala um móðgun, þá vil ég segja honum það að það væri mjög mikil móðgun einmitt við þetta skáld að fella hann niður af 18. gr., en það hefir aldrei verið gert við nokkurn mann, hvorki fyrr né síðar, sem inn á þá grein hefir komizt. Ég hefi ekkert við það að athuga þó að einhverjir hafi verið á móti því að taka skáldið upp á þá gr., þó að ég hafi verið með því sjálfur. En það væri móðgun og ég vil segja pólitísk ofsókn, ef ætti að fella Laxness niður af 18. gr. Það er fyrst og fremst það, sem ég vildi benda hv. þm. A.-Húnv. á, og það var þess vegna, sem ég sagði, að það væri lítill heiður fyrir þingið, ef það gerði sig sekt í því. Hv. þm. minntist á rit, sem hneykslaði hann mjög. Straumrof og Vefarann mikla. Jafnvel þó að eitthvað væri nú athugavert við þessi rit skáldsins, þá verður hv. þm. að athuga það, að það er ekki hægt að mæla skáld eins og töðuvöll, þar sem tekið er meðaltal af því, sem völlurinn gefur af sér, heldur verður að mæla þau eins og fjall, þar sem þau komast hæst. Ég held satt að segja, að það hafi ekki komið fram nein rök í þessari ræðu hv. þm., sem eru svaraverð, og vil ég því ekki vera að halda uppi málþófi um þetta. Ég held, að það hafi komið fram allt, sem nauðsynlegt er, að komi fram því til varnar, að þessi styrkur verði felldur niður.