05.05.1936
Neðri deild: 63. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1363)

40. mál, brúargerðir

*Pétur Ottesen:

Það er aðeins út af því, sem hv. þm. Ísaf. minntist á, að þessar brtt. hefðu ekki verið bornar undir vegamálastjóra. Hvað mínum till. viðvíkur, þá hefi ég talað um þær við vegamálastjóra, og hann lét þau orð falla, að hann mundi, ef þetta mál væri borið undir hann, mæla með, að þær yrðu teknar inn í þetta frv., og áleit þær fullkomlega hliðstæðar því, sem þar væri fyrir. — Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram. Hinsvegar má ekki tefja þetta mál úr þessu, ef það á að ná fram að ganga.