18.04.1936
Efri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)
110. mál, tekjuöflun fyrir ríkissjóð
Magnús Jónsson:
Mér skilst, að hér þurfi tvennskonar leyfi. Í fyrsta lagi þurfi einfaldan meiri hl., vegna þess að frv. er of seint fram komið, og hinsvegar aukinn meiri hl., þar sem of skammt er liðið frá útbýtingu frv. Er því ekki hægt að leyfa annað, en synja hinu með sömu atkvgr.