18.04.1936
Efri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)

110. mál, tekjuöflun fyrir ríkissjóð

Jón Baldvinsson:

Það, sem hér hefir farið fram, er ekki annað en það, sem venja hefir verið, þegar leitað hefir verið afbrigða fyrir málum. Og hæstv. forseti hefir skýrt frá því, að ef komið hefðu fram atkv. á móti, sem gert hefðu vafasamt, að þau afbrigði væru leyfð, sem með þarf til þess að málið megi komast að, þá hefði líka verið leitað atkv. aftur. En þessi atriði voru borin upp með venjulegum formála, sem sé þeim, að leita ætti þeirra afbrigða, sem með þyrfti til þess, að málið mætti komast að, og það var sama með 9 shlj. atkv. Hitt er annað mál, hvað hæstv. forseti gerir, ef menn óska eftir að breyta sínu atkv.