22.04.1936
Efri deild: 54. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)
110. mál, tekjuöflun fyrir ríkissjóð
*Fjmrh. (Eysteinu Jónsson):
Mér er sagt, að hv. 1. þm. Reykv. hafi sagt, að það væri ósatt, að sjálfstæðismenn hefðu staðið fyrir bílstjóraverkfallinu, og sagði hann það í tilefni af því að ég hefði haldið því fram, að sjálfstæðismenn hefðu staðið fyrir verkfallinu. Þetta sagði ég aldrei. En það, sem ég sagði, og ég held, að hv. þm. hafi heyrt það, var það, að hann hefði í ræðu, hvatt mjög til þess, að bílstjórarnir gripu til óvenjulegra ráðstafana. — Viðvíkjandi því, hvort bílstjórarnir hafa unnið verkfallið eða ekki, hafa komið fram nægilegar upplýsingar í umr. til þess að sýna fram á, að innflutningsleyfið, sem gefið var á benzíninu, stóð ekki í sambandi við bílstjóraverkfallið og hefði fengizt, þótt ekkert slíkt verkfall hefði komið til greina. Ég vil ennfremur benda á það, að krafa bílstjóranna var ekki aðeins sú, að benzínskatturinn skyldi ekki koma niður á þeim vegna verðlagsins, heldur beinlínis að enginn benzínskattur skyldi koma til framkvæmda. En þessi krafa fékkst ekki. Stj. tók ekki í mál að hika við að nota þá heimild, sem hún hafði til þess að framkvæma benzínskattinn.