21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (1431)
28. mál, garðyrkjuskóli ríkisins
Frsm. meiri hl. (Bjarni Ásgeirsson):
Ég þarf ekki miklu við þetta að bæta. Ég skal aðeins segja nokkur orð út af því, sem hv. frsm. minni hl. sagði um lántöku, sem nauðsynleg væri til þess að koma þessu af stað. Ég get ekki skilið, að það þyrfti að vera nema að mjög litlu leyti. sem taka þyrfti lán til þessa. Það er þegar búið að koma upp þarna á Reykjum það miklu af húsum, bæði gróðurhúsum og húsum yfir bú, að það er mitt álit, að þar þurfi litlu við að bæta. Það er vitanlega rétt, að skólahúsið vantar. En það má gera ráð fyrir því, að a. m. k. fyrst um sinn verði nemendur ekki margir, sem taki bóknámið. Það getur ekki verið mikill kostnaður við að koma upp húsum til þess að láta bóknámið fara fram i, því að eins og rætt hefir verið um, þá er ætlazt til, að meginhluti kennslunnar fari fram verklega. Og þó að það þurfi að koma upp einhverjum skála fyrir nemendur yfir sumarið, þá getur það ekki orðið mjög kostnaðarsamt. Það er rétt, sem hv. frsm. minni hl. sagði, að það eru ekki nema tiltölulega fá bændabýli á landinu, sem hægt er að nota jarðhita við garðrækt. Því er það nauðsynlegt, eins og tekið er fram í frv., að verklega kennslan fari bæði fram á heitum stað og köldum. Hinsvegar vil ég halda því fram, að jarðhitinn sé svo veigamikill þáttur í okkar garðrækt, eins og ég álít, að hún muni verða í framtíðinni, að það sé nauðsynlegt, þegar skólinn verður settur á fót til þessa náms, þá sé búið svo um, að nægilegur aðgangur fáist að heitu vatni til rekstrar gróðrarskála bæði til kennslu og svo einnig til þess, að hægt sé að reka nauðsynlega tilraunastarfsemi, sem síðar verði byggðar á framkvæmdir í starfrækslunni í þessu efni. Það hefir kannske misskilizt hjá mér áðan, þar sem ég talaði um, að löggilt væru garðyrkjubú til þess að hafa verklegu kennsluna með höndum. Ég ætlaðist til, að það yrði bæði þessi garðyrkjuskóli ríkisins og svo þau bú önnur, sem fær væru til þess að inna kennsluna af hendi. Ég er ekki í vafa um, eins og mikið er búið að leggja þarna í kostnað, að þar verður alltaf rekið stórt og umfangsmikið garðyrkjubú, sem ríkið á. Og þegar svo er komið, þá finnst mér liggja opið fyrir, að þessi staður geti haft garðyrkjuskóla ríkisins, bæði til þess að njóta framkvæmdanna þar og eins til þess að halda lifandi sambandi sumar og vetur milli verklegs og bóklegs náms.