07.05.1936
Efri deild: 67. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 937 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)

28. mál, garðyrkjuskóli ríkisins

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég get ekki látið með öllu ósvarað því, sem fram hefir komið í sambandi við þetta mál, sérstaklegu í ræðu hv. 1. þm. Reykv. Fyrsta atriðið, að skilyrði séu ekki góð á Reykjum fyrir ræktun þeirra matjurta, sem nauðsynlegastar eru, eins og t. d. kartöflur. Ég álít, að þar sem slíkur skóli verður settur á stofn, eigi skilyrðin ekki að vera sérstaklega góð, heldur sé það heppilegt, að þau séu eins og gengur og gerist hér á landi. Hv. þm. talaði um, að hægt væri að kenna þetta án þess að hafa sérstakan skóla. Skýrsla, sem ég hefi um ræktun garðávaxta, segir allt annað. Hana er að finna í A-deild Alþt. 1935, bls. 845.

Það veitir sannarlega ekki af því að ýta undir garðræktina í landinu, meðan við flytjum inn garðávexti fyrir ½ millj. kr. En það er tilgangurinn með þessum skóla að ýta undir garðræktina meira en verið hefir, því að þessum málum hefir miðað allt of hægt áfram.

Það var minnzt á það áðan, að ekki lægi fyrir nein kostnaðaráætlun um þetta, og þess, vegna væri allt í óvissu um það, hvað kostaði að koma skólanum á fót og reka hann, og hvað tekjuhallinn mundi verð, mikill. Ég vil benda hv. 1. þm. Reykv. á það, og öðrum, sem kynnu að vera á sömu skoðun og hann, að það fylgir grg. frv., eins og það var borið fram á þinginu 1935, og sú grg. er í A-deild Alþt. frá 1935, bls. 845. — Þar er ýtarlega gerð grein fyrir því, hvað kosti að koma skólanum upp og hvernig eigi að haga rekstri hans. Þar er gert ráð fyrir, að þeir lærðu garðyrkjufræðingar, sem nú annast garðyrkjuna á Reykjum og vermihúsin, annist þessa kennslu. Þess vegna verður ekki annar kostnaður við að koma skólanum upp en að byggja hús yfir nemendurna, ef ekki verður hægt að kaupa fyrir sanngjarnt verð hús af félagi, sem byggði austurfrá yfir börn, sem dvalið hafa þar að sumrinu. En félagið er nú hætt við að reka þetta hús og vili gjarnan selja það.

Það hefir verið bent á það, að garðræktina ætti að kenna á búnaðarskólunum, og þess vegna væri ekki þörf á sérstökum skóla. Ég hygg, að það sé flestum hv. alþm. kunnugt, að garðræktin er sérstök námsgrein, sem tekur, þó að hún sé tekin út af fyrir sig, 2 til 3 og upp í 4 ár að læra. Það er þess vegna alveg fráleitt, enda veit ég ekki til, að það sé nokkursstaðar gert, að kenna garðyrkjuna á þann hátt, að menn læri aðeins undirstöðuatriðin á bændaskóla, og svo ekki meir. Og það mun allsstaðar vera í nágrannalöndum okkar, eins og bent er á í grg. fyrir frv., þegar það var flutt á þinginu 1935, að það eru sérstakir garðyrkjuskólar, enda er þess full þörf, því að kennslu í þeim efnum verður ekki komið við í bændaskólunum, svo að nokkru verulegu gagni verði, a. m. k. ekki þeirri kennslu, sem ætlazt er til, að þeir njóti, sem stunda nám í þessum sérskólum.

Þá var það ein röksemdin á móti þessum skóla, að ekki væri viðeigandi að reka hann nálægt hæli fyrir menn, sem eru veikir eða hafa verið veikir. Það eru aðallega sendir á þetta hæli menn, sem eru eitthvað lasburða og eru útskrifaðir af berklahælum. Ég held því, að hv. 1. þm. Reykv. trúi varla mikið á þessa röksemdafærslu sjálfur, því að samkvæmt henni ætti að vera stórhætta fyrir starfsfólkið, sem annast þessa sjúklinga, en því hefir aldrei verið haldið fram í sambandi við Vífilsstaðahælið og Kristneshælið. Því síður ætti þessi röksemdafærsla að gilda hér, þar sem nemendunum er ætlað að búa í öðru húsi.

Þá minntist hv. þm. á, að það væri einkennilegt, að frv. væri komið fram einmitt núna, þegar erfitt væri í ári og vandræði steðjuðu að. Minntist hann í því sambandi á aflaleysið og till., sem fram er komin í hv. Nd. út af því. En ég álít, að einmitt þegar svona stendur á, sé sérstök þörf á því að auka þennan atvinnuveg, og ekki sízt, þegar að því er gætt, að auk þess sem við verðum að kaupa garðávexti fyrir allt að millj. kr., er það upplýst, að við notum ekki nema 1/3, af grænmeti samanborið við það, sem ýmsar nágrannaþjóðir okkar nota.

35% af þeim garðávöxtum, sem við notum, kaupum við frá útlöndum, borgum fyrir þá peninga út úr landinu, í staðinn fyrir að skapa atvinnu við að rækta þá, og þó notum við ekki nema 1/3 af garðávöxtum í hlutfalli við nágrannaþjóðir okkar. Þess vegna er mikil þörf á þessum garðyrkjuskóla, ef hann gæti orðið til þess að efla garðræktina og ýta undir menn að nota meiri garðávexti heldur en verið hefir. Það er aldrei meiri þörf á því en einmitt nú, þegar kreppir að á öðrum sviðum.