04.04.1936
Neðri deild: 42. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (1460)
99. mál, jarðakaup ríkisins
Flm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti! Á seinasta þingi var samþ. frv. um erfðaábúð og óðalsrétt. Og um það frv. var ekki mjög mikill ágreiningur. Mönnum var ljóst þá, að það var óheppileg, að hver kynslóð verði orku sinni og striti til þess að kaupa jarðirnar, og ég hygg, að fjöldanum af hv. þm. hafi verið ljóst, að með því að festa jarðirnar í erfðaábúð, eða gera þær að ættaróðali, þá var skapaður möguleiki til þess, að nokkuð af því fé, sem undanfarið hefir farið í afborganir og vexti af jarðakaupalánum, færi í það að bæta jarðirnar og lífsskilyrði framtíðarkynslóðarinnar, og því væri það til bóta að samþ. frv.
Ég hygg líka að flestum hv. þm. hafi þá orðið það ljóst, að með sölu jarðanna jarðabraski fluttist fjármagnið úr sveitunum í kaupstaðina, og að það var allt annað en heppilegt fyrir gjaldgetu sveitarfélaganna og framtíð búskaparins þar.
Úr hvorutveggja þessu er nú bætt með þær jarðir, sem komast undir lögin um erfðaábúð og óðalsrétt. En þetta eru þó enn tiltölulega fáar jarðir. Það opinbera á um milli 700 og 800 jarðir. Af þeim eru allmargar embættismannabústaðir, og til þeirra ná lögin ekki. Það eru því milli 600–700 jarðir, sem vænta má, að erfðaábúðin nái til.
Á tæpum 400 jörðum, sem taldar eru í sjálfsábúð, mun ekki hvíla meira af fasteignaveðslánum en það, að þær geta þess vegna orðið að ættaróðulum. Hinar allar komast það ekki, og okkur, sem að þess frv. stöndum, er þetta ljóst, og því viljum við með flutningi þess styðja að því, að fleiri jarðir hverfi úr braskinu, og að á fleiri jörðum geti skapazt þeir nýju möguleikar til framkvæmda, sem erfðaábúðin gerir ráð fyrir.
Að þessu leyti er þetta frv., sem hér liggur fyrir, mál framtíðarinnar. Það gerir ráð fyrir, að ríkið fái heimild til að kaupa jarðir og leigja þær á erfðafestu. En það er líka og jafnframt dægurmál, sem getur, ef að lögum verður, orðið til þess, að ýmsir þeir, sem nú hafa eignarhald á jörðunum, en geta ekki risið undir skuldunum, sem á þeim hvíla, geti þó haldið áfram að búa á þeim, og það undir nýjum skilyrðum, sem bæði eru þeim og þjóðfélaginu sem heild hagkvæmari.
Það munu nú vera um 1200 af þeim ca. 3200 jörðum, sem í sjálfsábúð eru taldar, sem á hvíla 90% af fasteignamatsverði jarðanna, og allar þær skuldir, sem þannig hvíla á jörðum, munu vera um 8 millj. kr. Þeir, sem á þessum jörðum búa, eiga mjög erfitt með að standa í skilum með afborganir og vexti af veðlánunum. Um 700 mann eiga enn óborgað af lánum sínum, og hjá þeim hefir verið krafizt sölu á jörðunum, verði ekki komin full skil fyrir 15. apríl. Það kann að vera, að hjá einhverjum stafi þetta af trassaskap, en hjá fjöldanum er það getuleysi, og á það vitanlega að nokkru leyti rót sína að rekja til þess harðæris, sem í tvö undanfarin ár hefir gengið yfir stóran hluta af landinu.
Þessum mönnum er frv. þessu ætlað að hjálpa, ef þeir vilja. Það er gert ráð fyrir, að ríkið geti tekið að sér skuldirnar eftir því, sem um semst við lánsstofnanirnar, og að því, sem fæst í afgjöld eftir þjóð- og kirkjujarðirnar, verði varið til að standa straum af afborgunum og lánunum á jörðunum, sem keyptar yrðu.
Segja má, að þetta geti ekki hjálpað öllum, og það er rétt. En þar við er það að athuga, og lítil líkindi eru til þess, að allir þeir 1200, sem eiga og búa á jörðum, sem meira hvílir á en 90% af fasteignamati, vilji selja þær.
Ég hefi athugað þetta nokkuð með því að lesa yfir, hvaða jarðir þetta eru, sem mest hvílir á, og athuga svo eftir mínum kunnugleika, hverjar líkur væru til, að þær yrðu boðnar ríkinu. Og ég sé að margar af þeim verða alls ekki boðnar ríkinu til kaups. Sumir vilja alls ekki selja því, og sízt fyrir það, sem frv. gefur fyrirheit um; aðrir mundu hafa kaupendur, sem biðu hærra, og enn margir, sem kljúfa mundu þrítugan hamarinn til þess að halda eignarréttinum og hafa von í hærri sölu síðar, og hafa þá ágóðann sjálfir, í stað þess að gefa framtíðinni hann með því að selja ríkinu. Ég býst því við, að verði þetta frv. að lögum, þá geti hvorttveggja orðið — mörgum af þeim, sem nú búa á jörðum, sem mikið hvílir á, og sem þeir sjá ekki fram á, að þeir geti búið á áfram, gert mögulegt að gera það, og miklu fleiri jörðum komið undir það ábúðarfyrirkomulag, sem þingið í fyrra var sammála um að felja bezt, en hægt var þá með lögunum um erfðaábúð og óðalsrétt.
Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn., að þessari umr. lokinni.