21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (1471)
99. mál, jarðakaup ríkisins
Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti! Eins og nál. þau, sem lögð hafa verið fram í þessu máli, bera með sér, hefir n. klofnað. Við, sem erum í meiri hl., þm. Mýr., hv. þm. Hafnf. og ég, leggjum til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, en minni hl. leggur til, að það verði fellt.
Það, sem gerir það að verkum, að við þrír leggjum til, að frv. verði samþykkt, er sérstaklega þrennt. Í fyrsta lagi er það, að við viljum láta sem flestar jarðir komast undir ákvæði laganna um erfðaábúð og óðalsrétt, sem gengið var frá á síðasta þingi. Okkur er öllum ljóst, að með því fyrirkomulagi fær bóndinn, sem á jörðinni bý, allt aðra og betri aðstöðu til að afla sér lífsþarfa og til að vinna að umbótum á jörðinni heldur en undir öllu öðru ábúðarfyrirkomulagi, sem þekki er.
Hér á landi er það svo, að lánverð allra jarða í sveit er milli 27 og 28 millj. kr., en landverð jarða, sem eru í sjálfsábúð, er í kringum 15 millj. kr. Ég hefi ekki aðgætt, hversu mikið verð allra húsa sjálfsábúðarjörðunum er, en gera má ráð fyrir, að það sé að minnsta kosti eins mikið og landverðið. Þessar jarðir eru alltaf öðru hverju að skipta um eigendur, en ekki liggja gögn fyrir um, hversu oft það er; þó er óhætt að slá því föstu, að með hverri kynslóð skipti allar jarðir um eiganda, annað hvort með sölu eða þá með arftöku. Sú kynslóð, sem við tekur, þarf þá oftast að verja miklu fé og löngum tíma — oft allri æfinni — til að endurborga jörðina. Svo tekur næsta kynslóð við á sama hátt, og svona gengur það koll af kolli.
Ef aftur á móti erfðafestufyrirkomulagið kæmist á, mundi þetta hverfa, og í staðinn fyrir að þurfa að verja miklu af afrakstri búsins til afborgunar á jarðarverðinu, gæti bóndinn notað það fé til sinna lífsþarfa og til endurbóta á jörðinni.
Þetta er fyrsta ástæðan til þess, að ég vil láta sem flestar jarðir komast undir þetta ábúðarfyrirkomulag. Það liggur í hlutarins eðli, og ætti að vera öllum ljóst mál, að með þessu getur bóndinn búið betur í haginn fyrir sig og komandi kynslóðir en með því að vera stöðugt að rembast við að borga jörðina.
Í öðru lagi er það ljóst, að hin mikla sala, sem verið hefir á jörðum, hefir orðið til þess, að mikið fé hefir runnið úr sveitunum til kaupstaðanna. Ég geri ráð fyrir, að ekki þurfi að verja mörgum orðum til að útskýra það; það er svo alkunnugt, enda ekki skiptar skoðanir um það hér í háttv. deild í fyrra, þegar lögin um erfðaábúð og óðalsrétt voru samþ. Í lögum um erfðaábúð og óðalsrétt er lagður grundvöllurinn að því, að sá fjárflótti úr sveitunum stöðvist, hvað snertir þær jarðir eða verð þeirra jarða, sem byggðar verða eftir lögunum. Og með þessu frumv. er skapaður möguleiki til þess, að enn fleiri jarðir geti komizt undir erfðaábúðarfyrirkomulagið, og þar með verið teknar úr braskinu.
Þriðja meginstoðin, sem rennur undir þetta frumv. að áliti okkar meirihlutamanna, er sú, að nú er svo komið, að ekki er annað sýnna en að talsverður hl. af þeim bændum, sem nú búa á jörðunum, sem taldur eru í sjálfsábúð, geti ekki risið sjálfir undir þeim skuldum, sem á þeim hvíla, og jarðirnar verði því seldar undan þeim. Mundu þær lánsstofnanir, sem veð hafa í jörðunum, verða þar fyrir töpum og skakkaföllum, en á lánsstofnununum ber ríkissjóður ábyrgð, og lentu töpin því á honum á endanum. Eina leiðin til þess, að menn þessir geti búið áfram á jörðunum, er að koma jörðunum undir þá ábúðarlöggjöf, sem er heildinni fyrir beztu, og hjálpa bændunum þar með til að búa á þeim áfram.
Þetta er þriðja ástæðan fyrir því, að við viljum láta samþ. frumv. óbreytt.
Til þess að sýna fram á þetta ofurlítið öðruvísi, skal ég nefna það, að nú búa 1200–1300 bændur á jörðum, sem svo há fasteignaveðslán hvíla á, að þeim væri beinn fjárhagslegur ávinningur að því, að jarðirnar væru keyptur eftir þessum lögum og þeir fengju þær byggðar í erfðaábúð.
Ég skal ennfremur geta þess, að nú eru í kringum 700 bændur, sem eiga eftir að borga af þessum fasteignaveðslánum fyrir síðasta ár, og er ekki annað sjáanlegt en að jarðir þeirra verði seldar, ef þeir geta ekki greitt. Það kann að vera, að þessi tala hafi breytzt, því að það er verið að smáborga þetta, en svona var það um mánaðamótin síðustu.
Það, sem hér er lagt til, er fyrst og fremst, að ríkið fái heimild til að kaupa jarðir. — Til þess að fá fé til þessara kaupa, leggjum við til, að til þess, sé varið afgjaldi af þjóð- og kirkjujörðum, svo og þeim jörðum, sem keyptar verða eftir þessu frv., ef að l. verður.
Það var vakið máls á því við 1. umr., og lögð á talsverð áherzla, hvort þetta væri hægt, því að afgjaldið af þessum jörðum ætti að renna til sérstakra sjóða, afgjald af þjóðjörðum til ræktunarsjóðs og afgjald af kirkjujörðum til prestlaunasjóðs. Ég skal benda á það, að þegar jarðræktarlögin voru sett, var leiguliðum á þessum jörðum leyft að vinna afgjöldin af sér í jarðabótum, en borga þau ekki í sjóðinn. Þannig var fé tekið úr sjóðunum. Það hefir verið svo, að bændur á þessum jörðum hafa unnið af sér alls um helming afgjaldsins. Hér er því ekki um neitt nýtt að ræða, þó að afgjöldunum sé kippt burt úr sjóðunum. Það hefir verið gert öll þau ár, sem jarðræktarlögin hafa staðið, án þes, að nokkur hafi haft neitt við það að athuga.
Til þess að tryggja það, að ekki geti komið fyrir tilfelli eins og hv. þm. Ak. minntist á við 1. umr., að t. d. heiðarbóndi, sem vildi losna við kot sitt, sem væri að fara í eyði, gæti selt það ríkissjóði og þar með fengið sitt, látið jörðina fara í eyði og ríkið svo bíða skaðann, eru sett ákvæði í 4. gr. Þar er svo ákveðið, að ríkið megi ekki kaupa þær jarðir, sem horfur séu á, að verði fyrir skemmdum af völdum náttúrunnar eða ef líkur eru til, að þær leggist í eyði í náinni framtíð af öðrum ástæðum. Í öðru lagi má ríkið ekki kaupa jarðir nema tryggt sé, að þær byggist eftir lögum frá síðasta þingi um erfðaábúð og óðalsrétt. Loks er í c-lið ákveðið, að kaupverðið skuli miðast við fasteignaveðslánin, er á jörðinni hvíla, og þó aldrei vera hærra en fasteignamatsverð. Þetta er sniðið við þær ca. 1200 jarðir, sem nú hvílir mest á, og sett til að reyna að hjálpa þeim, sem á þeim búa, að halda þeim og búa á þeim áfram. Þá er og gert ráð fyrir, að lög þessi gildi lengur en kreppan stendur, og því eru ákvæði í frv. um, að þegar búið er að hjálpa þeim bændum að halda jörðum sínum, þeim sem mest hvílir á, að ríkisstj. sé og heimilt að kaupa jarðir, enda þó að minna hvíli á þeim af fasteignaveðslánum en nemur sanngjörnu kaupverði þeirra, ef tekjur jarðakaupasjóðs hrökkva fyrir meiri jarðakaupum en bjóðast samkvæmt ákvæðum c-liðs 4. gr., en kaupverðið má aldrei fara fram úr fasteignamatsverði. Um þetta er svo reynt að búa eins vel og hægt er, svo ekki verði keyptar aðrar jarðir en þær, sem rétt og nauðsynlegt telst að kaupa til þess að hjálpa viðkomandi bændum til þess að búa áfram.
Þegar ríkið kaupir jarðir, er ætlazt til, að það taki að sér þau lán, sem á jörðunum hvíla, og í 8. gr. er gert ráð fyrir, að leigja megi jarðir, sem keyptar eru eftir þessum lögum. 1% hærra en getur í 2. gr. laga um erfðaábúð, á meðan á þeim hvíla fasteingaveðslán, sem eru svo há, að vextir þeirra eru hærri en nemur afgjaldinu, reiknuðu eftir þeim sömu lögum. Það er ekki gott að gera sér ljóst, hve miklum hluta þeirra bænda, er þyngst hafa veðlánin, er hægt að hjálpa til að búa áfram á jörðunum með þessu frv. veðlán, sem á þeim jörðum hvíla, sem bændur búa á, sem hefðu fjárhagslegan hagnað af að selja ríkissjóði eftir þessu frv., eru nú um 8 milljónir. Af sumum þeirra eru greiddir 4½
–5% og 6% vextir og af öðrum enn hærra. En nú er ekki ætlazt til, að bændur greiði hærra en sem nemur 4% af fasteignaverði jarðanna í afgjald af þeim. Mismunurinn þarna á milli, þ. e. þess, sem bóndinn borgar, og hins, sem borga þarf af fasteignaveðslánunum, sem ríkið tæki að sér að standa undir með kaupunum, er ætlazt til, að greiddur sé með afgjaldi þjóð- og kirkjujarðanna, sem byggðar verða með erfðaábúð
1932–1933 var greitt :
Eftir kirkjujarðir ............
kr.15171,77
Eftir þjóðjarðir
— 29374,17
Unnið af sér með jarðabótum
— 43671,00
Alls kr.
88216,94
1933–1934 var greitt:
Eftir kirkjujarðir ..............
kr. 14786,30
Eftir þjóðjarðir ...............
— 31982,70
Unnið af sér með jarðabótum
— 44091,00
Alls
kr. 90860,00
Í þessu eru ekki talin afgjöld þeirra kirkjujarða, sem metnar eru upp í prestslaun sem heimatekjur. Ekki heldur nokkurra annara. s. s. skólasetranna o. fl.
Athugi maður hinsvegar verð jarðanna. þá eru 539 kirkjujarðir metnar á kr. 2077600 og 215 þjóðjarðir á kr. 798300, eða alls á kr. 2875900, og eru 3% af því 86000.
Í þessu eru ekki hús né kúgildi. Matið, sem afgjaldið miðast við, yrði því töluvert hærra, en aftur falla úr því prestssetur og fleiri jarðir, sem aldrei verða leigðar eftir lögunum. Það virðist því mega gera ráð fyrir, að sjóðurinn fengi 80–90 þús. kr. árlega.
Ég hefi áður nefnt, að um 8 millj. kr. í veðlánum hvíli samtals á þeim jörðum, sem svo mikið hvílir á, að bændum væri beinn hagnaður að selja. Væri vaxtamunurinn á veðlánunum og því, er bændur greiddu af jörðunum, 2% — en svo hár verður hann varla — væri hægt að kaupa jarðir fyrir 2–3 milljónir, en það eru milli 300 og 400 jarðir. eða af öðrum hverjum bónda, sem 1. apríl var í vanskilum með greiðslur af lánunum.
Við 1. umr. benti ég á, að margir mundu geta selt jarðir sínar hærra til annara, að aðrir mundu klífa þrítugan hamarinn til að halda eignarréttinum, og að allmargar þessar jarðir, sem bændur eru í vanskilum með, væru þannig settar, að ekki væri rétt að kaupa þær samkv. 4. gr.
Ég hygg því, að úr mundu falla það margar jarðir, að flestum, kannske öllum, sem vildu láta hjálpa sér á þennan hátt, væri hægt að hjálpa.
Við 1. umr. þessa mála var því haldið fram, að helzt liti út fyrir, að aðaltilgangurinn með frv. væri sá, að búa til bitling handa einhverjum stjórnargæðingum, og mun þar hafa verið átt við ákvæði 7. gr. frv., þar sem ráðh. er heimilað að fela sérstökum manni umsjón með jarðakaupum ríkisins og eftirlit með þjóð- og kirkjujörðum. Hér er aðeins um heimild að ræða, sem ekki er víst, að verði notuð, en það fer eftir því, hve mikið af jörðum ríkisins fer í erfðaábúð. Og þó aldrei nema heimild þessi verði notuð, þá yrði það á engan hátt til þess að auka útgjöld frá því, sem nú er, hvað þetta snertir, því að eins og kunnugt er, þá annast hreppstjórar í flestum tilfellum innheimtuafgjöldum þjóð- og kirkjujarða, og hafa vitanlega sín innheimtulaun fyrir það. Á tveim stöðum eru sérstakir umboðsmenn fyrir stærri svæði, og allir þessir menn fá nú í innheimtu meira en eins manns kaup. Reynslan mundi því verða sú, að það mundi sízt verða greitt meira fyrir þetta eftirlit, þó að horfið yrði að því ráði að sameina það undir einn hatt, heldur en að láta hátt á annað hundrað manns hafa það með höndum, eins og nú er gert.
Með því, sem ég nú hefi sagt, hefi ég viljað skýra það, að höfuðástæðan, sem fyrir meiri hl. landbn. vakir með því að æskja þess, að frv. þetta nái fram að ganga, er sú, að koma fleiri jörðum undir bezta ábúðarfyrirkomulagið — erfðaábúðina, að fyrirbyggja fjárflutning úr sveitunum til kaupstaðanna gegnum jarðasöluna og að stuðla að því, að þeir, sem nú yrðu flæmdir frá jörðum sínum — eða a. m. k. álitlegur hópur þeirra — vegna þess að þær verða seldar undan þeim, gefist kostur á því að selja ríkinu og búa áfram á jörðunum, og þá undir miklu hagkvæmari kjörum fyrir þá en þeir áður hafa gert.