21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 974 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)
99. mál, jarðakaup ríkisins
*Jakob Möller:
Ég hefi nú ekki talað svo mikið á þessu þingi, að ég geri ráð fyrir, að mér verði brigzlað um neinn þjófarahátt, þó að ég taki til máls um eitt mál, og það svo merkilegt sem þetta er. En af því, sem ég hefi heyrt í umr., virðist mér varla geta leikið neinn vafi á því, að þessu máli sé siglt hér inn á þing undir gersamlega fölsku flaggi. Ef maður athugar ástæður fyrir flutningi málsins samkv. grg., þá sér maður við fyrstu sýn, að þær standast ekki. Þær eru ekkert annað en yfirvarps- og falsástæður.
Höfuðástæðan er talin sú, að þessi ráðstöfun um jarðakaup ríkissjóðs eigi að forða fjárflutningi úr sveitum til kaupstaða. Og það er í raun og veru alveg furðulegt, að nokkur maður skuli vera svo sljór, að hann sjái ekki alveg í hendi sér, að þessi ástæð, er á engan hátt frambærileg, því að með þessari ráðstöfun er ekki á nokkurn hátt girt fyrir það, að fé flytjist frá sveitum í kaupstaði. Það, sem reynt er að nota sem rök, vil ég með leyfi hæstv. forseta lesa upp úr grg.:
„Venjan hefir verið sú, að þeir, sem hætt hafa búskap og selt jarðirnar, hafa flutzt búferlum til kaupstaðanna með verð jarða og búa með sér að meira eða minna leyti, en þeir, sem við hafa tekið, keypt að mestu fyrir lánsfé, og því orðið veikari stoð í sveitarfélaginn en hinir voru.“
En hvað skyldi verða, þegar þeir eru orðnir leiguliðar og ríkið er búið að kaupa jarðirnar? Þegar þeir hætta búskap, þá flytja þeir ekki andvirði jarðanna í kaupstað með sér. En hvaða breytingu gerir þetta að öðru leyti? Hvað verður af jafngildi þess fjár, sem bóndinn hefir lagt í þá jörð, sem hann á, hvort sem upphaflega hafa nú hvílt á henni meiri eða minni skuldir, ef hann í stað þess að eiga jörðina hefir búið á henni sem leiguliði? Við skulum gera ráð fyrir, að hann hafi á sinni löngu búskapartíð safnað þeim mun meira lausafé, bústofni eða blátt áfram peningum á vöxtum. Þetta verðmæti flytur hann vitanlega með sér, alveg eins og menn flytja jarðarverðið með sér. Hv. aðalflm. brosir að þessu. En hann brosir eins og fífl. Því að það er svo augljóst, að hver maður, sem athugar, sér að þetta er ekkert annað en fals og blekkingar. Ef það er ekki svo, að maðurinn eigi meira af lausu verðmæti, þegar hann hættir búskap, ef hann hefir ekki lagt fé í að kaupa jörðina, þá er bara afleiðingin sú, að afnám sjálfsábúðarbúskapar verkar þannig, að menn búa verr og safna síður fé. Og það er ennþá rammari dauðadómur yfir þeirri stefnu, sem tekin er upp í þessu frv.
Það er því svo auðsætt, að þessi höfuðástæða, sem færð er fyrir flutningi frv. og skýrð er í grg. og tekur yfir um það bil helming af því máli, sem grg. inniheldur, eru staðlausir stafir. Það er einhver annar tilgangur, sem vakir fyrir flm. frv. — Það er sagt í grg., að auk þessa göfuga tilgangs, að forða frá fjárflutningi úr sveitum í kaupstaði, sé annar höfuðtilgangur þessarar breyt. að létta undir með bændum í þeirra búskaparbaráttu, sérstaklega á þeim erfiðu tímum, sem nú standa yfir. Ber væntanlega að skilja það þannig, að vegna þess hvað þeir eiga við mikla örðugleika að stríða, sem búskap stunda, geti þeir ekki staðið straum af því fé, sem þeir eiga að leggja í jörðina, sérstaklega ef gengið er út frá miklum áhvílandi skuldum með allháum vöxtum. Og ef ríkið kaupir jarðirnar og á að taka að sér skuldirnar, þá færist sá baggi yfir á ríkið af ábúendum, og þeir fá þannig möguleika til þess að geta komizt betur af heldur en með því að standa straum af skuldabyrðinni, sem hvílir á jörðinni.
En hvað segir svo frv. sjálft um þetta? Hv. flm. hefir mjög skilmerkilega undirstrikað það fyrst og fremst, að það væri ekki heimilt hann sagði nú alveg undantekningarlaust og áfelldi mjög andmælendur sína fyrir að hafa ekki veitt því athygli — að það væri ekki heimilt að kaupa nokkra jörð fyrir hærra verð en sem svarar áhvílandi veðskuldum. En frv. bætir nú sjálft við: „og þó aldrei yfir fasteignamat.“ Ég hygg nú, að þessi góðgerðarstarfsemi gagnvart bændum, að losa þá við skuldabaggana og létta þeim búskapinn með því að kaupa jarðirnar, fari að verða nokkru vafasamari heldur en látið er í veðri vaka. þegar athugað er, að það er bannað að kaupa jarðirnar fyrir hærra verð en fasteignamat. Það kann að vísu að vera svo nú, að fasteignamat á jörðum sé yfirleitt hærra en hæfilegt er. En eins og við vitum, er fasteignamat gert upp á vissu árabili, og það má alveg óhætt ganga út frá því, að skattmat á jörð sé töluvert undir raunverulegu verðmæti. Og það er þá í frv. gert ráð fyrir, að ríkissjóður kaupi alls ekki jarðirnar fyrir fullt verðmæti, heldur alltaf eitthvað dálítið fyrir neðan. Og þetta er nú hjálpin, sem á að veita þeim bændum, sem eiga í ströngu stríði að bjargast af við búskap. Það á að nota augnabliksneyð þeirra, vegna þess að búskapurinn um nokkur ár hefir gefið erfiða afkomu, nota þá neyð bænda til þess að láta þá afsala sér jörðum sínum fyrir lægra verð en þær eru í raun og veru verðar. Það er alveg augljóst, að þarna getur ekki höfuðtilgangurinn verið sá, sem látinn er í veðri vaka, að hjálpa bændum, heldur einmitt þvert á móti að rýja þá.
Hinsvegar var það nú engan veginn rétt, sem frsm. n. sagði, að það væri blátt bann lagt við því í frv. að kaupa jarðir til handa ríkissjóði fyrir meira en á þeim hvíldi í veðskuld; það er beinlínis heimilað, sem undantekning að vísu frá þeirri höfuðreglu. En undantekningin er svo rúm, að þar eru alveg óbundnar hendur fyrir þá, sem þessum hlutum eiga að stjórna, þó þannig að vísu, að kaupverðið má aldrei fara fram úr fasteignamati.
Þetta kemur ekki svo mjög tilganginum við. Hann batnar hvorki né versnar við þetta. Þessi undanþágu virðist vera sett til þess eins að geta mismunað mönnum eftir hugarfari þeirra og losað suma menn við jarðirnar, án þess að nauðsyn beri til, af því að þeir kjósa heldur að fá stöðu í kaupstöðunum en að strita við búskapinn.
Í sambandi við þá staðhæfingu, að tilgangurinn sé að hjálpa bændum í neyð, má benda á það, sem tekið er fram í frv., að ekki má kaupa jarðir, sem líkur eru til, að skemmdir geti orðið á af völdum náttúrunnar. Virðist þó ekki sízt ástæða til að hjálpa bændum, sem þannig er ástatt um, að þeir eiga slíkar jarðir.
Það er því ljóst, að þessu frv. á að sigla gegnum þingið undir fölsku yfirskini. Tilgangurinn er ekki sá, að koma í veg fyrir fjárflótta úr sveitunum, því að lögfesting frv. getur engin áhrif haft á hann. Og hinn tilgangurinn, að hjálpa bændum í kreppunni, er ekkert annað en fyrir- sláttur. Tilgangurinn getur þá ekki verið annar en sá, að koma fram hugsjónum þeim, sem sameignarflokkarnir hafa alltaf barizt fyrir, sem sé þeim, að koma öllum eignum úr höndum einstaklinga í hendur ríkisins. Höggið er að vísu ekki hátt reitt að þessu sinni, en þetta er þó fyrsta skrefið, sem ekki er hægt að villast á. Á það hefir verið bent, að með því að taka að sér þetta mál, hefir Framsfl. gengið inn á braut sameignarflokkanna í landinu. Verður það nú æ meira áberandi, að hann gengur lengra og lengra í þessa átt, enda þótt hann reyni að falsa það og dylja fyrir kjósendum í landinu.