27.04.1936
Neðri deild: 57. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)
99. mál, jarðakaup ríkisins
Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti! Þegar ég sá brtt. minni hl. á þskj. 432, var hvorttveggja, að ég gladdist og hryggðist. Ég gladdist yfir því, að hv. þm. Borgf. hafði vitkazt síðan um, fóru fram um daginn, svo að hann sér nú, að ekki dugar að hlaða upp nýjum lánum, og það gladdi mig, að báðir þessir hv. þm. eru búnir að eygja eina ástæðuna fyrir því, að þetta frv. er komið fram. Af þessu tvennu gladdist ég. En ég hryggðist jafnframt yfir því, að þessir hv. þm. skyldu ekki enn vera búnir að skilja það, þrátt fyrir setu sína á tveimur síðustu þingum, að bændum er hagnaður að erfðafestunni.
Þó er eins og einhver skilningsglufa sé hjá hv. þm. A.-Húnv. um óðalsréttinn, en hann er lokaður enn fyrir erfðaábúðinni, sem er nokkuð það sama. Ég hryggðist ennfremur af því, að báðir þessir menn, sem eru bændur og þurfa að rísa undir erfiðum kjörum bændastéttarinnar og ættu að skilja, að þeirra hagur er sá, að bændur hafi umráð yfir jörðum sínum, án þess að komandi kynslóð þurfi alltaf að kaupa þær af fráfarandi.
Hvað þessum brtt. viðvíkur geri ég ráð fyrir, að við allir í meiri hl. leggjum algerlega á móti því, að þær verði samþ., af því að ef þær eru samþ. í stað frv., þá næst ekki nema einn árangur af þeim þremur, sem frv. er ætlað að ná. Fyrst og fremst að bændur, sem eiga erfitt, fái hjálp, með því að nota það fé, sem kemur inn sem afgjald af erfðafestulöndum eða þeim jörðum, sem eru og verða í eigu þess opinbera. Við vildum, samhliða því að ná þessu reyna að tryggja það, að jarðarverð verði ekki við endurtekna sölu flutt úr sveitum til bæja. Og í þriðja lagi gerðum við þetta af því, að við vildum reyna að stuðla að því jafnóðum og bændum skildist, að þeim er hægara að búa á jörð með erfðafestu heldur en á jörð, sem þeir að nafninu til teldust eigendur að, en ættu lítið í — jafnóðum kæmi hið opinbera á móti þeim og hjálpaði til að koma sem flestum jörðum undir þetta ábúðarfyrirkomulag.
Af öllu þessu þrennu lögðum við til, að frv. yrði samþ. eins og það liggur fyrir og þessar brtt. yrðu felldar.