27.04.1936
Neðri deild: 57. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (1492)
99. mál, jarðakaup ríkisins
*Sigurður Kristjánsson:
Ég vil segja eins og hv. þm. Borgf., að það er hálfóþægilegt að þurfa að ræða þetta mál nú að nóttu til, og má vera að verði minna, sem ég segi um málið, af þeirri ástæðu. Er þessi tilhögun því verri, að þetta er síðasta umr. málsins hér í hv. deild.
Þetta mál er þess eðlis, að minnistætt ætti að verða, hvernig því er þröngvað gegnum þingið. Því svipar að því leyti til þess máls, sem rætt var hér áðan, frv. til jarðræktarl., að það eru hrein undur, að menn skuli hafa einurð til að bera slík mál fram hér á þingi. Hv. 2. þm. N.-M. sagði það og endurtók víst margoft, að frv. þetta eigi að tryggja það, að menn geti búið á jörðunum án þess að þurfu alltaf að vera að borga þær kynslóð eftir kynslóð. Ég held það sé í hundraðasta eða marghundraðasta skiptið, sem ég heyri þessi orð. Og ég hefði gaman af að vita, hvaða fábjáni það er, sem hefir sagt þau fyrstur. En það er auðheyrt, að hann hefir ekki sagt þau til einskis, því að þetta er tuggið og tuggið af andlegum bræðrum hans aftur og aftur. Og það er að verða svo leitt að heyra þessa heimsku vaða hér uppi, sýknt og heilagt, að ég gef varla orða bundizt. Á bak við þessi orð liggur ekki neitt af viti, heldur hreinasta og skærasta heimska og skilningsleysi, sem nokkurntíma hefir komið nokkrum manni í munn. Hvað er það að borga jarðirnar kynslóð eftir kynslóð? Við hvað eiga þessir aumingja menn? Hvað er það, sem maður á að gera, sem situr á jarðeign ríkisins? Hann á að greiða alveg þetta sama í afgjaldi, sem nýr kaupandi greiðir sem kaupverð jarðarinnar. Það er gert ráð fyrir því yfirhöfuð, að þeir menn, sem sitja á jarðeignunum, hvort sem þeir gerast kaupendur eða ekki, reki búskap sinn með einhverjum hagnaði. Og það er ekki nema eðlilegt, að þeir, sem standa upp af jörðum sínum og láta þær of hendi á einhvern hátt, jafnvel til erfingja sinna að sér látnum, hafi eignazt eitthvað sinn búskapartíma. Sú eign flyzt auðvitað til eftirkomendanna. Og það er alveg sama, á hvern hátt maðurinn eignast þetta fé, hann fer með það eða afhendir það eftirkomendum sínum. Og það má enginn búast við, að hann geti gengið að stórum verðmætum algerlega án þess að láta neitt af hendi fyrir það. Kaupandi jarðar verður að afplána með samningsbundnum greiðslum. Ef hann situr á sömu jörð sem leiguliði, verður hann að gera alveg nákvæmlega þetta sama með því að greiða afgjald af jörðinni. Ábúendur á jörð, hvort sem eru leiguliðar eða sjálfseignarbændur, sem kaupa jörðina, eru í sjálfu sér að borga jörðina. Það er sagt, að það eigi að koma í veg fyrir það, að menn flytji andvirði jarðanna til kaupstaðanna. En á bak við þetta liggur líka ekkert annað en vitleysa. Sá maður, sem hefir grætt fé á jörðinni, hann flytum það með sér, ef hann fer eitthvað burt, hvort sem hann fer í kaupstað eða annað, og falli hann frá, afhendist það eftirkomendum hans. Alveg er sama, hvort maðurinn hefir lagt gróðann í jörðina eða lausafé; það er eign mannsins, og getur enginn hamlað því, að hann flytji það með sér hvert sem hann fer, eða afhendi eftirkomendum sínum. Og ef leiguliða tekst nú að eignast fé — en nokkuð er ólíklegt, að hann eignist það sem ríkisleiguliði — þá getur enginn hamlað honum frá að flytja það með sér í kaupstað.
Það er annars eftirtektarvert í þessu sambandi, að einmitt á sama tíma sem á að afgr. þetta mál héðan úr hv. d. er komið inn annað mál, þar sem er ákveðið, að styrkir þeir eða verkalaun, sem lagðir eru í jarðeignir samkv. jarðræktarl., skuli teljast einskonar hlutafé í jörðinni og bætast við verðmæti hennar. Nú er ætlazt til þess, að jarðir séu leigðar út eftir því, hve hátt þær eru metnar. Það virðist nú skína í það í þessu sambandi, að þegar jarðir eru orðnar eign ríkisins, muni eiga að fara að meta þær nokkuð ríflega. Því að ef allir þeir styrkir, sem lagðir eru í jarðirnar, eiga nú að bætast við verð þeirra, þá geta jarðir hækkað nokkuð mikið í mati. Ef menn eiga nú að borga í afgjald vissan hundraðshlut, af virðingarverði jarðar, þá má búast við, að þau verði ekki sérstaklega bærileg. Enda er það svo, að það verður ekki fundin önnur leið fyrir ríkið til að afla sér nægilegs fjár í ríkissjóðinn heldur en sú, að láta þegna þjóðfélagsins láta úti þetta fé. Og ef stefna sósíalista kemst á í þessu máli, sem þeir virðast reka nokkuð fast á eftir, að allir ábúendur í landinu verði ríkisleiguliðar, og allir verkamenn í landinu ríkisvinnumenn, þá má maður búast við, að þegar ríkið fer að afla sér fjár, þá verði það á þann hátt að þrengja kosti þessara aumingja þræla sinna. Og þá mun koma í ljós, að margur leiguliðinn vill losna frá því að vera ábúandi á ríkisjörð og reyna að taka sig upp. En nú er einmitt sleginn varnagli við því hér í frv., að jarðir verði yfirgefnar, því að svo á að búa um, að ekki sé líklegt, að menn vilji í bili hlaupa af þeim. En nú gætu kjörin smám saman þrengzt þannig, að menn vildu yfirgefa jarðirnar, þá geri ég ráð fyrir, að eins og andi sósíalista hvílir yfir þessu öllu saman á þessu stigi málsins, þá muni sá andi ekki yfirgefa málið í framtíðinni, og næsta skrefið verði svo að banna mönnum fyrst í vissan tíma og svo kannske æfilangt. Yrði þannig ábúandi með tíð og tíma eins og einskonar leigupeningur á jörðinni, sem ekki gæti við jörðina skilið. Þá er komið á svipað fyrirkomulag og frægt var á sinni tíð í Rússlandi.
Eins og ég sagði í upphafi, virðist mér ekki tími til að ræða mjög mikil um þetta mál, og þykir mér það illt, ef þessi óheppilegi tími verður til þess, að það fær minni gagnrýni en skyldi. En ég vildi samt sem áður ekki láta það fara svo út úr d., að ég ekki vekti athygli á því enn á ný, að þetta frv. er áreiðanlega borið fram þvert ofan í vilja bændastéttarinnar í landinu. Bændur hafa ekki látið uppi annað álit um það en það, að þeir séu á móti þessari jarðránsstefnu. Og það er víst, að þessum l. verður hrundið undir eins og bændastétt landsins fær að koma sínum vilja fram, sem við væntum, að henni takist við næstu kosningar.
Það er þess vegna hin mesta skammsýni að láta kúga sig til þessa af tiltölulega litlum flokki í þinginu, alþýðuflokksmönnum, að setja slík l. sem þetta. Ég læt mér ekki detta í hug, að flm. þessa máls hafi ekki, síðan verulega tókust umr. um það, hverjir skyldu eiga jarðeignir landsins. orðið greinilega varir við það, að allur þorri bændastéttarinnar vill, að bændur eigi jarðirnar. Og getur þessum mönnum ekki dottið í hug, að bændur muni með atkv. sínu hrinda þeim mönnum frá þingsetu, sem fara með slíkan fjandskap á hendur bændastétt landsins?
Ég er búinn að sjá of mikið til fylgismanna þessa máls, að ég geti ætlazt til þess, að þeir taki tillit til að reynslan hefir sýnt og sannað, að leiguliðabúskapur og húsgangs- og horkrangabúskapur fylgjast að, enda er mér ljóst, að mörgum þessara manna er ekki á móti skapi, þótt bændastétt landsins verði fjárhagslega og menningarlega ósjálfstæð. En hér í Alþingi verða þeir þó að halda fast fram þeirri skoðun, sem hana hafa, að það eigi að leita annara ráða til þess að breyta búskap landsmanna en þeirra að uppræta ræktarsemi þeirra til jarðanna, sem þeir búa á, uppræta virðingu þeirra fyrir atvinnurekstrinum sjálfum, og ala upp hjá þeim ábyrgðarleysi, virðingarleysi og vonleysi um atvinnu sína. En að þessu er fullkomlega stefnt með þessu jarðaránsfrv. Og ekki bætir úr skák, að það virðist eiga að kúga það í gegnum þingið, jafnvel á móti vilja ýmissa þeirra, sem ætlazt er til, að greiði því atkv. Lagasetningu, sem gerð er með slíkum ósköpum á allan hátt, getur ekki fylgt nein gæfa.