05.05.1936
Efri deild: 65. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 991 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)
99. mál, jarðakaup ríkisins
*Magnús Jónsson:
Þetta mál er þannig vaxið, að ekki þýðir mikið að ræða það, enda skal ég ekki lengja umr. mikið.
Ég verð að segja, að mér finnst þetta mál með því ömurlegra, sem ég hefi séð koma fram á þingi, og ekki verður það minna ömurlegt eftir þeirri skýringu, sem hv. þm. S.-Þ. lét fylgja því, sem sé að þetta væri í raun og veru ekkert annað en áframhald af kreppusjóðshjálpinni til bænda, þ. e. a. s., að eftir að það opinbera hefir tekið þetta stóra tak með kreppusjóðsl., þá er svo komið, að þeir sömu menn, sem þar átti að hjálpa, hafa einskis annars úrskosta en að ganga frá öllu saman og það opinbera taki við jörðunum, náttúrlega fyrir sem allra lægst verð. Mér finnst þetta ákaflega ömurlegt, og ég er sannfærður um það, að svo framarlega sem þessi leið, sem farið er fram á í þessu frv., verður farin, og það er allt útlit fyrir, að hún verði farin, þá mun hún reynast sú langstórvirkasta dæla á fólkið úr sveitunum til kaupstaðanna, sem nokkru sinni hefir verið sett upp hér á landi.
Mér finnst það ákaflega einkennilegt, að í grg. frv. er fyrst af öllu talað um það, að því er manni skilst, sem ástæðu fyrir því, að þetta frv. er fram komið, hvernig fólkið hefir flutzt úr sveitunum í kaupstaðina, þannig að sæmilega efnaðir sjálfaeignarbændur hafa selt jarðir sínar og farið með peningana til kaupstaðanna, en eignalausir menn tekið við í staðinn. Mér er gersamlegu hulinn leyndardómur. hvernig þetta frv. á að koma í veg fyrir þetta. Ég sé ekki, að þessi l. breyti nokkru í þessu efni öðru en því, að hér kemur enn einn nýr kaupandi að jörðunum í viðbót. Menn mega eftir sem áður selja jarðir sínar og fara með andvirðið til kaupstaðanna, og þegar þessi nýi kaupandi kemur, er þeim gert hægara fyrir með það, þannig að margir, sem nú mundu vilja selja jarðir sínar, en fá ekki kaupanda að þeim, þeim opnast hér leið til að losa sig við þær.
Það má náttúrlega segja, að þegar maður selur jörð sína og fer til kaupstaðar, þá kemur nýr maður í staðinn, en það er alls ekki víst, að hann sé efnalaus, en það er nokkurnveginn víst, að þeir, sem koma til með að sitja á þessum leigujörðum, hvort sem það verða nýir menn eða ekki, þeir eru efnalausir. Það þarf viss efni til þess að geta keypt jörð. Ég held, að það sé ekki svo hlaupið í lánsstofnanirnar, að menn geti fengið hvern eyri út, án þess að þurfa að hafa nokkur efni úr að spila sjálfir.
Það er auðséð, að með þessu frv. er ekki farið fram á annað en að nota neyð manna til þess að ná frá þeim jörðunum til þess að framfylgja þeirri pólitísku stefnu, sem er eina ástæðan fyrir svona frv., þeirri pólitísku stefnu, að ríkið eigi jarðirnar, eins og allt annað, sem þarf til framleiðslunnar. Það er náttúrlega rík ástæða fyrir svona frv., en það er líka eina ástæðan, sem er nokkurs virði.
Það er svo með fjárkreppur, að þær skilja alltaf eftir mikil fleiður. Mér finnst það vera mikils virði, þegar svona kreppur ganga yfir, ef hægt er að komast hjá því, að þau fleiður beri varanleg merki. Það verður alltaf nokkurt ör, en það er svo, að lífið lifir, eins og skáldið segir, og það koma nýjir menn í staðinn. En ég er ákaflega hræddur um, að merki þessara kreppuára, sem nú standa yfir, sjáist nokkuð lengi ef þau eiga að verða til þess, að slík 1. sem þessi verði sett og þar með stefnt að því að afnema alla sjálfseignarbændur í þeim sveitum, sem harðast verða fyrir kreppunni.
Nei, ef menn vilja fórna einhverju verulegu fé til þess að leysa yfirstandandi og yfirvofandi vandræði, t. d. við kreppulánasjóðinn, þá liggur nær að gera það, sem hv. 1. þm. Skagf. benti á og sömuleiðis kom fram í Nd., að ríkið noti eitthvað af þessu fé til þess að leysa þessi vandræði í svipinn. Það var svona aðferð, sem ég átti við, þegar ég minntist á, að það þyrfti að reyna að láta sárin ekki bera varanleg ör, styðja menn til þess, að þeir þyrftu ekki að ganga frá jörðum sínum, því að ef það yrði að koma fyrir, þá mundi það skilja eftir stórt og varanlegt ör á þjóðarlíkamanum.
Ég hygg, þó að mér sé það ekki fullkunnugt, að það þurfi ekki svo mikið til þess að greiða það, sem áfallið er, til þess að menn lendi ekki í vanskilum, að það sé ekki miklu mögulegra en það, sem hér er farið fram á. Ég get ekki heldur neitað því, að ég ber nokkurn kvíðboga fyrir því, að framkvæmd þessara l. yrði ekki sem allra hreinust. Mér skildist á hv. þm. S.-Þ., að það ætti að gera talsverðan mismun, þegar ætti að kaupa jarðirnar, að ekki ætti að kaupa nema af dugandi mönnum. Og með því að ég býst við, að ekki verði þá dugandi menn nema í einum flokki, þá þykist ég vita, að það þýði það, að menn eigi að hafa rétta skoðun, til þess að hlaupið verði undir bagga með þeim. Ég er ekki að segja, að það verði framkvæmt þannig, en ákaflega verður það erfitt mál fyrir þá, sem þessu eiga að stjórna, að liggja ekki undir neinum grun um, að 1. sé misbeitt.
Hv. frsm. segir, að bændur margir mundu fagna þessu frv. Það er kannske hægt að gera ástandið svo ömurlegt, að menn fagni öllum breyt. Það er sagt, að Ítalir komi til að frelsa Abessiníumenn frá morðvörgum og brennuvörgum. Það getur verið, að ástandið sé svo slæmt hjá bændum, að þeir verði fegnir, að ríkið taki jarðir þeirra fyrir áhvílandi skuldir.