18.04.1936
Neðri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)
73. mál, fræðsla barna
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég skal vera stuttorður. — N. hefir nú tekið upp ýmsar þær breyt., sem ég vildi, að gerðar væru við 2. umr., og kann ég henni þökk fyrir. Yfirleitt finnst mér, að allar brtt. n. séu til bóta, og verði þær samþykktar, get ég fellt mig sæmilega við frv. En það er eitt atriði, sem ég vildi gera fyrirspurn um. Í skjali, sem mér hefir borizt, þar sem reiknaður er út af fræðslumálaskrifstofunni sá kostnaðarauki, sem þessi breyt. fræðslulaganna muni hafa í för með sér, er gert ráð fyrir, að kennslutíminn verði 9 mánuðir í kaupstöðum, en 9½ mán. utan kaupstaða. Og jafnframt er reiknað út, að þessi kostnaðarauki muni verða 16 þús. hér í Reykjavík. En eftir því, sem ég hefi komizt næst, þá mun ekki í þessum útreikningum reiknað með fleiri kennurum en þeir eiga að verða endanlega, þegar búið er að koma flokkuninni í framkvæmd. Ég vil því spyrjast fyrir um, hvort þetta sé ekki rétt skilið. Og þegar ég greiði atkv. með frv. út úr deildinni, mun ég gera það í þeirri trú, að kostnaðaraukinn af því verði ekki meiri en fræðslumálaskrifstofan hefir reiknað út. Ég sem sagt treysti því, að á meðan kennararnir eru fleiri en þeir eiga endanlega að vera, þá verði kennslunni komið fyrir á þann veg, með styttingu kennslutímans eða á annan hátt, að kostnaðaraukinn verði ekki meiri en nú er ráð fyrir gert.
Þá legg ég mikið upp úr þeim till. hv. n., sem miða að því, að gera fólki léttara fyrir að fá undanþágu frá skólaskyldunni, og eins og ég tók fram í upphafi máls míns, þá tel ég brtt. hv. n. yfirleitt til bóta.