21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)
73. mál, fræðsla barna
*Pétur Halldórsson:
Það hefir nú atvikazt svo undanfarið, að ég hefi ekki átt kost á að vera viðstaddur fyrstu, aðra né þriðju umr. þessa máls hér í hv. d. Ég óskaði þess síðari hluta dagsins í gær, að málið yrði tekið út af dagskrá, því að ég var á mælendaskrá, en að ekki yrði lokið umr. um það þá. En ég sé, að því hefir ekki verið sinnt. Ég var þá að gegna öðrum nauðsynlegum störfum. Vildi ég því gjarnan eiga kost á að taka til máls nú.