21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

73. mál, fræðsla barna

*Pétur Halldórsson:

Ég lét þau skilaboð ganga til hæstv. forseta í gær, að ég óskaði, að umr. um mál þetta yrði frestað þangað til í dag, vegna þess að ég gæti ekki komið á fund þá. En forseti telur sig ekki hafa getað orðið við því. Mér þykir þetta undarlegt, þegar svo margar brtt. voru gerðar við frv. fyrst við 3. umr. málsins. Málið fór gegnum 1. umr. og 2. umr. án þess að n., sem með málið fór, tæki það til athugunar — sannast að segja. Og það er þá dálítið óvenjulegt, vil ég segja, að svo stórkostlegar brtt. komi fram frá n. við 3. umr. máls. Og þessi 3. umr. hefir enn ekki staðið svo lengi, að það sé mikil ósk eða krafa, að ég fái nú að taka til máls um þetta mál. Ég beygi mig að sjálfsögðu fyrir úrskurði hæstv. forseta um þetta. En ég get ekki látið hjá líða að benda á, að þessi afgreiðsla n. á afdrifaríkum málum á þessu þingi er ákaflega óviðkunnanleg. Það er því ekki verulega mikil tilhliðrunarsemi, sem hér er sýnd við afgreiðslu þessa máls. Hitt má vel vera, að það hafi ekki mikla þýðingu að ræða þetta mál miklu meira og að rekið sé á eftir um afgreiðslu þess. En ég vil segja, að meðferð máls þessa öll í þessari hv. d. sé með þeim einkennum, að það væri ekki óeðlilegt, þó að heimild væri gefin til þess að halda áfram umr. um það í þetta sinn.