21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)

73. mál, fræðsla barna

*Forseti (JörB):

Mér þykir leiðinlegt að hafa ekki getað orðið við ósk hv. 5. þm. Reykv. í þessu efni. En ég vil vona, að hann virði mér það til vorkunnar, þó að ég fari ekki út á þessa braut, að bíða með umr. eftir því, að hv. þm. fái lokið störfum sínum utan þings. Það yrði erfitt fyrir forseta að dæma um það í hvert sinn, hve brýnn slíkur erindisrekstur kann að vera hjá hv. þm. Ég sé, að mál þetta er flutt af meiri hl. menntmn. og að brtt., sem fyrir liggja, eru fluttar af n. allri. Ég hygg, að hv. 5. þm. Reykv. eigi nú sæti í menntmn., og ég vil því vona, að hann standi að þessum brtt. Þær brtt. allar, sem fyrir liggja í þessu máli, eru fyrir nokkuð löngu fram komnar (PHalld: Ekki allar.), nema aðeins smávægileg brtt., sem kom fram í gær á síðustu stundu — ég skal játa það — eins og stundum ber við. En jafnvel þó að þannig standi á, að komið sé með brtt. á síðustu stundu, þá gæti það verið hál braut fyrir þingið að gefa frest á umr. í hvert sinn, þegar þannig stæði á.

Ég get því ekki eftir málavöxtum fundið það, að ég hafi beitt hv. 5. þm. Reykv. harðræði, enda vildi ég sízt af öllu gera það. En ég sé mér hinsvegar ekki fært að ganga inn á þessa braut, nema alveg sérstaklega standi á og það skipti engu máli upp á afgreiðslu málsins, sem slíkur frestur væri gefinn á umr. um.