30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

73. mál, fræðsla barna

*Jónas Jónsson:

Það er öllum kunnugt, hvernig ástatt er í menntmn. Einn nm. hefir orðið að vanrækja sín störf meira en aðrir, þar sem hann er upptekinn fram til hádegis. Ég hefi alltaf reynt að halda fundi um málið, við höfum reynt að koma á fundum um það undir umr. Það ætti að vera nóg fyrir hæstv. ráðh. að vita, að mér er það eins mikið áhugamál og honum, að málið fái afgreiðslu. Ég tel það mjög óviðeigandi af honum, að hann skuli láta sér detta í hug að afgr. málið áður en n. hefir athugað það, og ég lofa engu um málið nema að vinna að því eins og ég get.