30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)

73. mál, fræðsla barna

Guðrún Lárusdóttir:

Ég er hissa á þeim ákafa, sem fram kemur um afgreiðslu þessa máls. Það eru ekki nema fáir dagar síðan menntmn. fékk málið, og eins og hv. form. menntmn. sagði, þá hefir n. ekki enn unnizt tími til að afgr. það.

Ég vil í þessu sambandi minna á annað mál, frv. til l. um heimili fyrir vangæf börn. Mér skilst, að það snerti alls ekki svo lítið þetta skólafrv., og ég vil beina þeirri fyrirspurn til hv. form. allshn., hvernig standi á því, að málið hefir legið í n. og hún ekkert orð látið frá sér fara um málið. Meinar n., að þetta sé svo smávægilegt og lítilfjörlegt mál, að það eigi ekki skilið að fá að koma hér til umr.? Ég óska að fá svar við þessu.