30.04.1936
Efri deild: 60. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)

73. mál, fræðsla barna

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Það var út af ummælum hv. 5. landsk. um frv. um heimili fyrir vanhæf börn. Ég skal skýra hv. þm. frá því, að n. hefir oftar en einn sinni minnzt á málið. Það var sent til landlæknis til þess að fá umsögn hans, og eftir að sú umsögn kom, hefi ég ekki orðið var við annað en n. væri sammála um, að það væri ótímabært að afgr. málið nú á þessu þingi, og það er m. a. af því, að það er ekki sýnt, að neinir möguleikar séu til að koma slíku heimili upp, því að til þess mundi að sjálfsögðu þurfa fjárveitingu í fjárl., en slík fjárveiting er ekki fengin.

Ég hygg, að það sé skoðun n., að það sé ekki rétt að vera að búa til l., hvorki um þetta heimili eða önnur, meðan sýnt er, að engin leið er til að reisa slík heimili.

Þetta er ástæðan til þess, að málið hefir ekki komið úr n. En ef hv. þm. óskar eftir, að málið verði afgr., þá getur n. auðvitað skilað áliti. Býst ég við, að hún kæmi þá með till. um að vísa frv. til ríkisstj., en ég sé ekki, að málinu sé neinn hagur í því. — En það er annað mál frá hv. þm., sem ég er honum sammála um, en það er frv. um drykkjumannahæli. Hv. þm. veit, hvernig fór um þá fjárveitingu, sem lagt var til, að Alþingi veitti í því skyni. Hún féll með svo miklum atkvæðamun, að engin von er til, að hægt sé að fá neitt fé til þeirra hluta. Og til hvers er þá að koma með þessi mál, meðan engin von er til að geta pínt fram fjárveitingu til þeirra? En n. er ekki á móti efni frv., — það er öðru nær.