02.05.1936
Efri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)

73. mál, fræðsla barna

*Páll Hermannsson:

Ég vildi aðeins láta þess getið í sambandi við afstöðu mína í menntmn. til þessa máls, að í fyrsta lagi álít ég þetta mál svo ákaflega vandasamt, og ég verð að segja það einkum að því, er snertir kaupstaðina, að ég þarf mikinn tíma til þess að gera mér það ljóst hvað ég mundi helzt aðhyllast í því efni. Með hliðsjón af þessu og líka hinu, að mér virðist, að eftir að frv. er samþ., þá muni framkvæmd þessara mála úti um sveitir, þar sem aðallega er farskólatilhögun, verða lík og nú er, var ég ekki við því búinn að ganga inn á till. meðnm. minna, sem gekk út á það að vísa málinu frá á þessu stigi. Þess vegna er það, þó að ég kynni að vilja fylgja breyt. á þessu frv., þá get ég ekki fallizt á það, að víkja málinu frá nú, og mun þess vegna greiða atkv. á móti þeirri dagskrártill., sem hv. meðnm. mínir hafa borið fram.