06.05.1936
Efri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)

73. mál, fræðsla barna

*Þorsteinn Briem:

Ég verð að harma það, að hæstv. kennslumálaráðh. er ekki við, því að ég hefði óskað að eiga þess kost að beina máli mínu til hans. Ég get í fyrsta lagi þakkað honum fyrir góðar undirtektir undir flestar brtt., sem ég hefi flutt á þskj. 523. En ég hefði þó hinsvegar óskað þess að geta átt tal við hæstv. ráðh. um þær, brtt., sem hann lagði eindregið á móti.

Hæstv. ráðh. lagði á móti því, að 1. brtt. mín, við 2. gr. frv., yrði samþ. og færði þau rök fyrir því, að hér væri ætlazt til, að þegar eitthvert skólahverfi vanrækti skyldur sínar um fræðslu barna innan við 10 ára aldur, ætti viðkomandi skólahverfi að fá áminningu frá fræðslumálastjóra og fræðsluráði, áður en hægt er að skylda viðkomandi skólahverfi til þess að færa skólaskylduna ofan í 7 ára aldur. Ég hafði tekið fræðsluráðið með, með því að samkv. 2. gr. frv. er það einmitt fræðsluráðið, sem hefir heimild til þess að veita skólahverfum undanþágu frá skólaskyldu fyrir 7, 8 og 9 ára börn.

En hæstv. ráðh. taldi það illa við eigandi, að tveir aðiljar hefðu um þetta að fjalla. Ég sé þó ekki betur, eins og frv. er, en að þá komi þetta til aðgerða þessara tveggja aðilja, en hinsvegar get ég gert það til samkomulags við hæstv. kennslumálaráðh. að flytja brtt. við 1. brtt. mína á þskj. 523 á þá leið, að orðin „og fræðsluráð“ falli niður. Er þá burtu fallin sú ástæða, sem hæstv. kennslumálaráðh. færði gegn brtt., og vona ég því, að hann geti veitt henni meðmæli sín.

Hæstv. kennslumáluráðh. andmælti 3. brtt. minni, þ. e. a. s. b-lið hennar, en var a-lið hennar samþykkur. En ég hafði hugsað mér að koma með skrifl. brtt. við 6. gr. frv. stafl. b., sem ég ætla, að geri þessa brtt. mína óþarfa. Skriflega brrt., sem ég hugsa mér að flytja hér, hljóðar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Aftan við stafliðinn bætist ný málsgrein: Í heimangönguskólum í sveitum er þó eigi skylt að ætla hverju barni meiri kennsluviknafjölda en í heimavistarskólum.“

Ég vil fara þess á leit við hæstv. kennslumálaráðh., að hann eigi tal við fræðslumálastjórann um þessa skrifl. brtt. mína, áður en hann andmælir henni. Ég vildi og óska þess af hæstv. forseta, að hann bæri þessa skrifl. brtt. mína upp á undan 3. brtt. minni á þskj. 523, staflið b. Er þá b-liður till., sem hæstv. ráðh. andmælti, úr sögunni.

Ég harma það að vísu, að hæstv. ráðh. sá sér ekki fært að vera fylgjandi c-lið brtt. minnar, við 6. gr. frv., þar sem ákvæði er um það, að skólum skuli ekki slitið fyrr en í maílok. Fyrir mér vakti, að skólarnir stæðu ekki lengur en í 8 mánuði, eins og yfirleitt er aðalreglan í frv.; þá byrjuðu þeir í septembermánuði, en stæðu síður fram á vorið. Hinsvegar tel ég, nokkra bót að þeirri skrifl. brtt., sem hæstv. ráðh. flutti, og vitanlega því meiri bót, ef brtt. hv. 1. þm. Reykv. um þetta efni yrði samþ.

Ég get sætt mig við, að 4. brtt. mín, við 10. gr., sem hæstv. ráðh. andmælti, verði ekki samþ., ef brtt. hv. þm. N.-Ísf. á þskj. 495. 3. staf liður, yrði samþ. Sama gildir um 6. brtt. mína, við l5. gr., þar sem ræðir um það, að fræðslumálastjóri setji reglur um viðhaldi skólahúsa, að ég get sætt mig við, að mín brtt. nái ekki fram að ganga, ef brtt. hv. þm. N.-Ísf. á þskj. 495. 4. liður. nær samþykki. Ég verð enn að harma það, að hæstv. kennslumálaráðh. er ekki viðstaddur hér í d., vegna þeirra orða, sem hann mælti um síðustu brtt. mína á þskj. 523. Ég hafði alls ekki búizt við því, að hann mundi mótmæla þeirri brtt., þ. e. a. s. 10. brtt., stafl. a, eins og hann gerði. Ég held, að hæstv. ráðh. hafi ekki athugað, hvað í þessari brtt. felst. Mér er nær að halda, að hann hafi skilið brtt. á þá lund, að í henni fælist, að skólastjórar í kaupstöðum, sem hefðu innan við 1000 íbúa, næðu ekki þeim réttindum, sem gert er ráð fyrir í bráðabirgðaákvæðum frv., sem sé, að þeir njóti launa einum mánuði lengur en skólinn stendur. Ef hæstv. ráðh. hefir skilið till. mína svo, þá lái ég honum það ekkert, þó að hann andmælti henni. En þetta liggur alls ekki í brtt. minni, eins og hæstv. ráðh. mun komast að raun um, ef hann ber brtt. saman við orðalag síðustu málsgr. bráðabirgðaákvæðanna. Í þessari till. felst aðeins það, að skólastjórar í kauptúnum, sem hafa yfir l000 íbúa, njóti sama réttar og skólastjórar í kaupstöðum, sem hafa undir 1000 íbúa. Ég trúi því ekki fyrr en ég hefi fengið endurnýjaða yfirlýsingu frá hæstv. ráðh. um þetta efni, að hann geti verið þessari brtt. minni andvígur. Ég vil þó a. m. k. spyrja hann, hvaða rétt skólastjóri í þeim kaupstað, sem hæstv. ráðherra er fulltrúi fyrir, Seyðisfirði, sem varla hefir rétt til að hafa fleiri kennara en 3–4, hefir til þess að njóta meiri fríðinda heldur en skólastjóri í kauptúni, sem er svo miklu fjölmennara heldur en Seyðisfjörður, að það hefir rétt á t. d. 7 kennurum. Ég trúi því þess vegna ekki, að hæstv. ráðh. leggi á móti þessari brtt., þegar hann hefir athugað, hvað í henni felst.