06.05.1936
Efri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í B-deild Alþingistíðinda. (1630)
73. mál, fræðsla barna
*Magnús Jónsson:
Það hefir farið um þennan mikla lagabálk eins og svo marga þá stærstu lagabálka, sem lagðir eru fyrir þingið, að hann hefir verið lagður fyrir hv. Nd. og hún hefir velt honum fyrir sér meginið af þingtímanum, þangað til einhverntíma á síðustu dögum þingsins, þegar mestar eru annirnar, þá kemur hann til Ed., sem á þá að taka afstöðu til málsins hugsunarlítið. Það bætist svo ofan á, þegar um slík mál sem þetta er að ræða, að þó menn vilji lesa frv., meðan annirnar eru minni, þá breytir Nd. þeim rétt áður en hún skilur við þau, svo að sú athugun verður lítilsverð.
Þetta hefir valdið því, að ég hefi átt erfitt með að taka afstöðu til þessa frv. og hefði langhelzt óskað þess, að það yrði ekki afgr. á þessu þingi. Ég hefði gjarnan viljað gera á því nokkru nákvæmari athugun. Mér sýnist ýmislegt í því bæði með og móti eftir minni skoðun, og ég greiddi því atkv. með hinni rökstuddu dagskrá, sem hv. meiri hl. menntmn. hafði borið fram við 2. umr. málsins. En sú atkvæðagreiðsla mín átti ekki að tákna það, að ég væri sérstaklega andvígur meginstefnu frv. Ég vildi aðeins fá lengri frest til athugunar á málinu. Og að ég greiddi við 2. umr. málsins atkv. á móti 1. gr. frv., var aðeins á móti efni gr., en ekki að ég vildi fella frv. Ég vil ekki setja þá skilyrðislausu skyldu, að skólaskyldan skuli ná frá 7–14 ára aldurs. Skólaskyldan hér í Reykjavík mun vera frá 8–14 ára, og ég er ekki tilbúinn að segja um það, að ég vilji, að skólaskyldan sé færð lengra niður. Með allri virðingu fyrir barnaskólunum, þá finnst mér það hættulegast við þá, hvað þeir geta komizt hjá að kenna börnunum nokkurn hlut. Ég er ekki að saka kennarana um þetta. Ég held, að það hljóti að liggja í sjálfri aðferðinni. — Ég hefi kynnzt fjölda barna, sem hafa fengið háar einkunnir og kannske alltaf verið hæst í sínum bekk. Þau fá sniðugleika í að svara þessum vissu uppgáfum og ná með þessu gríðarhárri einkunn, en ef farið er að rannsaka, hvað þau eiginlega viti, þá sést, að það er ótrúlega lítið. Ég er því ekkert fjarskalega mikið fyrir, að þau séu endilega tekin 7 ára, eins og börnin voru tekin af mæðrunum í Spörtu, og sett í skóla, sem gefa ekki betri árangur en þetta. Og þó að nú sé sjálfsagt miðað í þá átt, að barnafræðslan á fleiri og fleiri stöðum komist undir þetta kerfi, þá líða ekki margir mannsaldrar, þangað til farið verður að reyna að finna einhverja skárri aðferð til að fræða ungdóminn fram til 14 ára aldurs en nú, þar sem hrúgað er þessum óskapa sæg í hvern bekk, sem ég held, að sé undirstaðan undir því, hvað illa gengur að veita verulega fræðslu.
Ég hafði gaman af því, þegar ég fyrir 2–3 árum hitti stúlku, sem kenndi við skóla í stórborg í Bandaríkjunum. Það var þar, sem ríka fólkið hafði sín börn. Mér þótti gaman að heyra, að þarna, þar sem ekki þurfti að horfa í kostnaðinn, þar voru ekki nema örfá börn í hverjum bekk, kannske í hæsta lagi 10. Hún sagði mér, að árangurinn virtist vera alveg framúrskarandi góður. Mér hefir einnig virzt, að þegar börnin vegna heilsuleysis verða aftur úr í skólanum og verða kannske alveg að hætta, þá sé eins og þau geti vel lært á einum vetri það, sem þau áttu að læra á 3 vetrum í skólanum.
Mönnum finnst þetta kannske nokkuð harkalegur dómur um skólafyrirkomulagið, en ég held, að hann sé samt ekki fjarri réttu. Ég held, að þetta hljóti að byggjast á því, að svo og svo mikið af starfinu, sem átti að fara til fræðslunnar, fer í að halda þessum sæg í skefjum. Af þessum ástæðum greiddi ég atkv. á móti 1. gr. Ég áleit ekkert sérstaklega heppilegt að færa þetta kerfi út, þó að ég verði að viðurkenna, að það er stefnt í þessa átt einnig í sveitum, að færa fræðsluna saman í skóla, og þá sjálfsagt mjög víða í heimavistarskóla, vegna þess m. a. að heimilin eiga lítinn kost á að veita börnunum fræðslu.
Þetta frv. hefir tekið nokkrum breyt. hér í Ed. og gera þær að mínu viti frv. aðgengilegra. Þó liggja hér fyrir brtt., sem ég vildi óska eftir, að yrðu samþ. Ég skal þar ekki fara langt út í einstök atriði, en vil þó minnast á einstöku till., t. d. við 3. gr. Ég tel rétt að samþ. brtt. við hana frá hv. þm. S.-Þ. Í frv. er tilskilið, að veita megi heimild til burtfararprófs barna, þó að þau séu yngri en 14 ára, þegar tryggt er, að börnin njóti framhaldsnáms til 14 ára aldurs. Þetta er bæði praktískt óheppilegt og varla hugsunarrétt. Í frv. eru sett ákvæði um lágmark fræðslu, sem barnið á að hafa náð 14 ára, og mér finnst, að ekki þurfi að víkja út frá því, þó að sum börn hafi náð því nokkru fyrir þann tíma. Og það ætti ekki að þurfa að vera að setja sérstök skilyrði um það; þau hafa bara náð þessu marki fyrr, og þau standa í öllu falli ekki verr að vígi, þó að þau hafi náð þessum þroska og eigi inni eitt ár til að halda áfram að mennta sig, ef svo horfir við. Það er því engin ástæða til þess að setja ákvæði í l. um barnafræðslu til að gera sérstakar ráðstafanir frekar með þessa nemendur, eftir að þeir hafa numið það, sem þessi 1. gera ráð fyrir. Það mætti líka undarlegt heita, ef börn, sem vegna eigin hæfileika, ástundunar eða vegna þess að heimilin kannske láta mennta þau umfram önnur börn, — það væri undarlegt, ef tímabilið frá 12–13 ára aldri og fram til 14 ára aldurs yrði algerður kyrrstöðutími, eftir að þeim hefir verið kennt betur en öðrum hinn tímann, nema gerðar séu lagaráðstafanir til þess, að þeim sé bætt þetta upp. Mér finnst sjálfsagt, að l. setji þetta mark með börn, sem eru innan 14 ára aldurs, og engin ástæða sé til að hjálpa upp á andlegan hag þeirra, sem greindust eru og hafa bezta aðstöðu. Það getur meira að segja vel verið, að einmitt það að leggja fast að sér með að ná ákveðnum fróðleik fyrr en aðrir hafi í för með sér, að það væri gott fyrir þá nemendur að fá frí og stunda meira annað, sem gæti verið eins mikið menntandi og skólanám. Það þykist ég vita, að hin vitru fræðsluráð og skólanefndir eigi að sjá um, að sú fræðsla sé fullnægjandi, en ég sé enga ástæðu til þess, að gerðar séu sérstakar ráðstafanir um þau börn, sem fljótust eru að ná þroska.
Þá er 3. brtt. c á þskj. 523, um það, að skóla skuli vera slitið eigi síðar en í maílok. Ég hefi ekki komið auga á neitt ákvæði um það, á hvaða tíma þessi fræðsla skuli yfirleitt fara fram. Ég hefi ekki getað séð neitt um það annað en hvað kennslutíminn sé langur. Það kann að vera, að þetta leynist í frv., en ef svo er ekki, þá held ég, að sé rétt að setja ákvæði um það. Það er kannske vafasamt, hvaða tímatakmark skuli setja, en ég held, að það sé yfirleitt heilbrigt að hætta skólunum ekki mjög seint. Ég mun því greiða þessari brtt. atkv., og tel hana talsvert til bóta. Það getur að vísu verið, að ætlazt sé til, að fræðslan eftir þann tíma fari meira fram utan skólahúsanna en beinlínis inni í skólunum, en það er eins og gerist og gengur, að námið endar með prófi, og ekki heppilegt að breyta fræðslufyrirkomulaginu í útigöngur, grasaferðir og annað þessháttar, fyrr en þá að afloknu þessu prófi. Vera kann, að finna mætti aðferð til þess að koma því fyrir, en ég mun samt fylgja þessari brtt.
Þá er 7. gr. við hana er að vísu engin brtt., en ég held satt að segja, að sú gr. eigi ekkert erindi í frv. Hún er eiginlega bara til þess að vekja óánægju. því að ýmsir munu halda, að ákvæðum hennar verði beitt. Það eru sem sé þessi fyrirmæli um dagsektir, ef óhlýðnazt er fyrirmælum þessara l. Ég hefi heyrt, að þessu hafi ekki verið beitt, því að þetta ákvæði hefir áður verið í 1., og ég sé þá ekki, til hvers á að hafa þetta ákvæði, nema þá til þess að hafa vönd á hillunni, sem allir vita, að ekki eigi að beita, en ekki að vita, nema hann einhverntíma verði gripinn og látinn ganga á þeim, sem hlut eiga að máli. Þar að auki er þetta ákvæði á undarlegum stað í frv. Hefði betur átt við að hafa það síðast í frv., eins og sektar- og refsiákvæði, heldur en að setja það inn í vissan kafla l. Helzt vildi ég þó, að þessi ákvæði væru felld burtu, því að þau standa sem dauður, en þó dálítið espandi bókstafur, en ég varaði mig ekki á, að við þessa umr. eru ekki greidd atkv. um einstakar gr., og bar því ekki fram brtt.
Þá eru komnar fram brtt. um svipað ákvæði, en það er atriði, sem talsvert hefir verið um rætt. Það eru sem sé ákvæði um það, að hægt sé að losna við skólastjóra og kennara í heimavistarskólum, ef þeir reynast óheppilegir. Er önnur till. um það, að segja megi þeim upp hvenær sem er, en hin um það, að eins árs reynslutími, sem nú er, skuli verða lengdur upp í 2 ár. Má segja um báðar þessar till., að þær ættu betur heima annarsstaðar, en þær eru sjálfsagt bornar fram hér af því að þau l. liggja ekki fyrir þinginu nú, en það má vel við það una, að þau séu í þessum grautarpotti, sem er hér síðast í frv. Ég fyrir mitt leyti legg mikið upp úr því, að ákvæði í þessa átt séu sett hér, fyrst ekki er þess kostur, að setja þau á sinn rétta stað. Mun ég binda mitt fylgi við frv. að talsverðu leyti við það, hvort eitthvert slíkt ákvæði verður sett. Að vissu leyti gæti ég vel fellt mig við, að það væri almennur uppsagnarmöguleiki. Skólastjórar og kennarar, og þó sérstaklega forstöðumenn heimavistarskóla, fá alveg einstaka aðstöðu, og í raun og veru eru mjög fáir embættismenn ríkisins, sem fá tilsvarandi aðstöðu og þeir. Þeim er trúað fyrir þessum þjóðfélagsþegnum, nefnilega börnunum, á þeim aldri, sem þeir eru móttækilegastir fyrir áhrif, og því get ég vel skilið, að mönnum sé það mjög mikið hitamál, ef í kennslunni gætir annara áhrifa en fjöldinn óskar eftir, að þeir geti verið öruggir um að losna við þau áhrif. Mér finnst þó dálítið hart að setja þessa embættismenn í aðra aðstöðu en alla aðra ríkisins starfsmenn, og ég býst frekar við að greiða hinni till. atkv., um að tveggja ára reynslutími skuli jafnan fara á undan veitingu, og hefði fullt svo vel getað fellt mig við að hafa tímann 3 ár, sérstaklega þar sem ég heyri, að sá hæstv. ráðh., sem stendur að þessu frv., hefði getað fellt sig við það. Ég hygg því, að það mundi vera rétt fyrir hv. flm. brtt. að bera fram skrifl. brtt., ef hann er frekar fylgjandi 3 árum.
Ég held, að þessi till. geti ekki orðið neinum skólastjóra eða kennara til meins, sem getur náð trausti aðstandenda barnanna. Það er hættulaust hverjum þeim, sem getur áunnið sér þetta traust, sem hver góður kennari hlýtur að óska eftir, og vill þá heldur sleppa stöðunni, ef hann getur ekki náð því trausti.
Ég skal svo að lokum fara örfáum orðum um brtt. mína á þskj. 552, sem hæstv. kennslumrh. var í raun og veru samþykkur, þó að hann óski eftir öðru orðalagi á henni, en brtt. er um það, að þeim, sem vilja og geta komið börnum sínum í sveit eftir 15. maí, þeim sé það heimilt án þess að sæta þeim sektum, sem liggja við því, að börn vanræki skólagöngu sína. Ég er sannfærður um, að ef skólavist á annað borð teygist fram á vorið, á hún að fara fram eins mikið og unnt er utan skólanna. Og ég er sannfærður um, að sú fræðsla verður aldrei meiri fyrir kaupstaðabörn en sú fræðsla, sem börn fá við að koma á sveitaheimili og dvelja þar um sumartímann. Það er mikil fræðsla, sem þau fá við það, bæði virkilegur fróðleikur og einnig margháttuð lífsreynsla. Ég held því, að dvöl í sveit mundi fullkomlega vega upp á móti þeirri fræðslu, sem börnin annars mundu fá í skólunum. Hitt er annað mál, þegar börnin eiga að ljúka fullnaðarprófi það vor, þá dugir ekki að senda þau burt í það skipti, en smáprófraunum, sem börnin annars verða að undirgangast á vorin, held ég, að megi að skaðlausu sleppa. Hæstv. ráðh. vill breyta till. að því leyti, að þetta skuli lagt undir úrskurð skólastjóra og skólanefndar, og ég skal taka það fram, að ég var að hugsa um að bera till. þannig fram, en fannst það óþarflega umfangsmikið, að ef ætti að senda barn í sveit, þá skyldi þurfa að fá til þess leyfi skólanefndar. Hinsvegar hefir hann leiðrétt ritvillu hjá mér, þar sem stóð „maílok“, en átti að vera 15. maí. Ég get því vel sætt mig við till. eins og hæstv. ráðh. ber hana fram, en mér fannst það bara óþarflega umsvifamikið að hafa fyrirkomulagið þannig.
Ég held, að ég þurfi svo ekki að tefja hina hv. d. lengur í þessu máli.