06.05.1936
Efri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (1631)

73. mál, fræðsla barna

Guðrún Lárusdóttir:

Herra forseti! Ég skal ekki gera tilraun til að lengja umr. um málið, en vil þó segja fáein orð út af þeirri aths., sem hæstv. atvmrh. gerði við brtt. mínar.

Hann sagði um fyrstu brtt. mína, að ekki væri gott að segja, nema hún bindi því opinbera kostnaðarbagga, en ég get ekki séð, að till. geri neitt í þá átt, og það því síður, þar sem ráðgert er, að forráðamenn barns og hlutaðeigandi barnaverndarnefnd ásamt skólanefnd ráðgist um það, á hvern hátt þessum málum sé fyrir komið, og þá sýnist mér mega við því búast, að frá hendi þessara aðilja verði gætt hins fyllsta hófs hvað kostnað snertir. Það liggur í hlutarins eðli, að vangæf börn verða aðstandendum sínum kostnaðarsöm. En ég vil spyrja: Ef það ætti að vera einhver óskapa kostnaður að sjá þessum börnum farborða á þann hátt, sem er óhjákvæmilegt, hvað kostar það þá þjóðina að gera ekkert fyrir þau?

Hæstv. ráðh. viðurkenndi, að þessi ákvæði þyrftu að vera í sérstakri löggjöf. Ég tek undir það, og þess vegna hefi ég borið fram frv. um sérstakt heimili fyrir þessi börn. En ég geri mér svo litlar vonir um, að það frv. nái fram að ganga, og þess vegna kom ég með þessa till. til að reyna að koma því til leiðar, að eitthvað yrði unnið að heill hinna vangæfu barna. Sama er að segja um treggáfuðu börnin. Hæstv. ráðh. segir, að það geti verið reglugerðarákvæði um þau, og þá tel ég, að hæstv. ráðh. standi næst að búa til slíka reglugerð, og þætti mér vænt um, að till. mín yrði til þess, því að hún er nauðsynleg; í öllum skólum landsins eru börn, sem erfitt eiga með að fylgjast með námi. Ég ætla því að vona, að þótt till. mínar verði dauðadæmdar, þá geti enginn mælt því í gegn, að þær séu þarfar, eða eigi á sér fullan rétt.

Þá er brtt. mín um það, að skólanefndir skuli varast að mæla með mönnum, sem séu bendlaðir við pólitískar agitationir. Hæstv. ráðh. segir, að það mætti þá alveg eins varast að mæla með þeim, sem væru ofsatrúarmenn. Ég er ekki á móti því, væri því að skipta. En ég hugsa, að hæstv. ráðh. verði að játa það, að yfirleitt séu menn rólyndari í trúarefnum heldur en í stjórnmálum og þess vegna er minni hætta á æsingum úr þeirri áttinni, enda hefir þess aldrei verið getið; hitt hefir heyrzt, að börn í barnaskólum skiptist í ákveðna flokka og jagist um stjórnmál, eins og fullorðna fólkið, og beri stundum orð kennara sinn, um stjórnmál fyrir sig. Þetta sjá allir, að getur verið skaðlegt, auk þess að það er harla óviðfelldið og sízt vænlegt til góðs samkomulags á milli kennara og heimilanna, sem ef til vill eru á allt annari skoðun í stjórnmálum.