06.05.1936
Efri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (1649)
114. mál, heimilisfang
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Það mun ekkert hafa verið sagt um þetta mál við 1. umr., og ekki heldur af minni hálfu við 2. umr., svo að það er líklega ekki hægt að komast hjá því að segja nokkur orð um frv.
Það er samhuga álit allshn., að það sé nauðsynlegt að fá lög um þetta efni. Frv. er þannig til komið, að hæstv. atvmrh. bað mig um það á síðasta þingi að búa til frv. um heimilisfang. Ég gerði það og sendi hæstv. ráðh. frv. um nýár, að ég held, og hann hafði það til meðferðar fram á þetta þing, en kvaðst þó ekki vera tilbúinn til þess að segja, hvort hann vildi flytja það eða ekki. Svo dróst þetta þannig, án þess að hann tæki afstöðu til þess, og að síðustu varð það að samkomulagi okkar á milli, að hann léti mig fá frv. aftur og ég réði, hvort ég flytti það eða ekki, en hann geymdi sína afstöðu til málsins þangað til það kæmi til meðferðar í þinginu. — Ég veit ekki til, að hann hafi látið álit sitt í ljós ennþá. (JBald: Hann hefir talað um það). Þá er þetta misskilningur hjá mér, sem stafar af því, að mér hefir verið skýrt skakkt frá þessu, en ég var lasinn, er 2. umr. fór fram. Mér þykir slæmt að vita ekki, hvað það er, sem hæstv. ráðh. hefir út á frv. að setja, því að hann hefir ekki tjáð mér það í viðtali.
Það er mikil nauðsyn að fá löggjöf um þetta, vegna þess að það fer að verða sífellt meira og meira brennandi spursmál, hvar menn eiga heimilisfang. Það hefir raunar alltaf verið mikilsvert atriði vegna útsvaranna, hvar menn eiga heimilisfang, en það verður enn þýðingarmeira eftir að hin nýju framfærslulög eru gengin í gildi, því að þau ákveða, að maður sé framfærsluskyldur þar, sem hann á heimili. Þess vegna er augljóst, að það hefir mjög mikla fjárhagslega þýðingu fyrir bæjar- og sveitarfélög landsins, hvar maður er búsettur. Í þessu sambandi má einnig nefna tryggingarlöggjöfina nýju. Gjöld samkv. tryggingarlöggjöfinni leggjast á menn eftir því, hvar þeir eru búsettir. Því er fyllsta þörf á lögum um heimilisfang með tilliti til þeirra laga. Eftir íslenzkri löggjöf er það hvergi beinlínis ákveðið, að menn skuli hafa fast heimilisfang, en víðast í lögum er gengið út frá því sem gefnum hlut, en þó er líka gert ráð fyrir því, að verið gæti, að menn eigi hvergi heimili. Þetta getur auðsjáanlega ekki gengið svo lengur, sízt eftir að tryggingarlöggjöfin er komin á.
Allshn. var sammál, um frv., en þó vildu einstakir þm. geti komið fram með brtt. En þær brtt. hafa ekki komið fram, og þykir mér það benda til þess, að ekki séu smíðagallar á frv. Ég held, að ekki sé hægt að fara aðrar leiðir í þessu máli en þar eru farnar. Menn verða sjálfir að fá að ráða, hvar þeir ákveða heimilisfang sitt, en að öðru leyti verða að vera til um það ákveðnar reglur. Hlutaðeigandi stjórnarvöld, sem hagsmuna eiga að gæta um útsvarsskyldu u. þ. h., verða að vera aðiljar og láta dómstóla skera úr því á venjulegan hátt, hvar maður skuli teljast heimilisfastur, ef á milli ber. Ef til vill væri rétt að heimta, að hver maður hefði jafnan full skilríki í fórum sínum til staðfestingar því, hver hann er og hvar hann á heima. en ég held þó, að slík krafa væri óþarflega ströng, þar sem um svo fáa er að ræða, sem nokkur ágreiningur eða vafi getur risið um í þessum efnum, en þó má athuga þetta.
Mér þykir vænt um að sjá það, að hæstv. atvmrh. er kominn hér í d. Mér þætti gott að fá upplýst, hvers vegna hæstv. ráðh. vildi ekki flytja þetta frv. og hvers vegna hann hefir stöðvað, að það yrði tekið á dagskrá. Ég hafði ekki búizt við þessu, heldur hafði ég talið víst, að það yrði tekið fyrir í hv. d. á venjulegum tíma. Ég er fús til samvinnu. ef hæstv. ráðh. bendir mér á betri leiðir.