06.05.1936
Efri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1092 í B-deild Alþingistíðinda. (1650)
114. mál, heimilisfang
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Ég hefi áður látið í ljós, að ég tel æskilegast, að þetta mál verði ekki afgr. nú, þar sem ég geri ráð fyrir því, að útsvarslöggjöfin verði afgr. á næsta þingi. Teldi ég þá rétt, að lög um heimilisfang að því er snertir gjaldskyldu, eins og þetta frv. gerir að mestu, yrði afgr. um leið. En ég tel tormerki á því, að hægt sé að sameina í eina heildarlöggjöf um heimilisfang öll þau atriði, er til greina koma gagnvart kosningarrétti, gjaldskyldu, framfærslulöggjöf, tryggingarrétti, því að svara til saka o. þ. h. Þetta frv. snertir að mestu gjaldskylduna, og held ég, að það sé varla til bóta frá því, sem var. Eftir því mega menn kjósa sér heimilisfang, ef ekki er augljóst, að menn séu með því að forðast hærri gjöld. En menn geta valið heimilisfang af öðrum ástæðum á þann hátt, að tilefni væri til að hafa eftirlíf með því. Ég set mig ekki á móti því, að frv. fari til Nd., en ég fel æskilegt, að það fái að bíða til næsta þings.