06.05.1936
Neðri deild: 64. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (1703)
35. mál, stýrimannaskólinn
*Gísli Guðmundsson:
Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, og skal ég taka fram, að sá fyrirvari er ekki um nál. sjálft. Ég er sammála n. um nauðsyn þessa máls, og að sumu leyti um brtt. hennar, að undanteknu því, sem ég flyt sjálfur brtt. um á þskj. 537.
Er svo skammt síðan mál þetta kom hér fyrir þessa hv. d. og sjútvn. fékk það til meðferðar, að þessar brtt. allar eru gerðar í skyndi, og gat ég ekki fyllilega fellt mig við þá afgreiðslu, sem frv. fékk, og er þá aðallega ein till., en þó reyndar tvær, sem ég get ekki fellt mig við og geri ráð fyrir að greiða atkv. á móti þeim. –Er þá fyrsta brtt., sem er talsverð efnisbreyt., þar sem gert er ráð fyrir að sleppa inntökuprófi, en lengja námstímann. Eyða í handr. Ég hefði álitið, að viðkomandi slíkum höfuðatriðum sem þetta er, þá væri ekki rétt að breyta miklu út frá því, sem frv. er nú frá mþn. og Ed., þar sem þarf að afgr. frv. á svo skömmum tíma. Ég get tekið það fram, að ég hefi talað við einn mþnm. um þetta atriði, Sigurjón Á. Ólafsson, og hann taldi þessa breyt. a. m. k. vafasama. Og ég get vel ímyndað mér, að ýmsir menn kjósi heldur að búa sig undir skólann heldur en dvelja í honum hér; það muni verða þeim dýrara, sem búa utan Rvíkur. Ég mun því greiða atkv. móti þessari brtt. Sömuleiðis er ég fremur mótfallinn 6. brtt., sem er viðvíkjandi því prófi, sem á að veita rétt til að verða skipstjóri á varðskipi. Það var gert ráð fyrir því í frv., og það álít ég rétt, að þeir gengju undir próf og heimtaður sé ákveðinn vitnisburður við farmannsprófið, en þeir, sem ekki hafa náð því, öðlist ekki réttindi sem skipstjórar varðskipa. En meiri hl. sjútvn. hefir nú viljað bæta við þessa gr. og gera undanþágu, ef fyrir liggja meðmæli frá kennurum skólans. Mér finnst þetta óviðfelldið, að leggja þannig í vald kennaranna, hverjir skuli öðlast rétt til að ganga undir þetta próf.
Þá skal ég víkja að þeim brtt., sem ég sjálfur flyt. Sú fyrri skiptir litlu máli, en er þó til samræmis, því stýrimannaskólinn heyrir ekki undir kennslumálaráðh., heldur undir atvmrh.; finnst mér þetta vera hliðstætt landbúnaðarskólunum. Þó geri ég þetta ekki að kappsmáli, enda skiptir þetta litlu máli, eins og sakir standa nú, þar sem þetta er sami ráðh., en ekki er sennilegt, að svo verði alltaf.
Þá er brtt., sem ég hefi leyft mér að flytja við 19. gr. frv., er fjallar um, að ráðuneytið geti ákveðið að fela skólastjóra stýrimannaskólans að láta fara fram utan Rvíkur 4 mánaða námskeið fyrir þá, sem taka vilja minna fiskimannapróf. Á þetta að gera mönnum utan Rvíkur kleift að ná þessu prófi án þess að leita til Rvíkur. Í frv. er þetta bundið við 4 ákveðna staði, Ísafjörð, Akureyri, Seyðisfjörð og Vestmannaeyjar, en ég sé enga ástæðu til að binda þetta endilega við þessa staði. Ég álít rétt, að það séu valdir ráðunautar eða aðiljar, sem ákveða hvern stað. Getur því verið heppilegra að hafa þetta óbundið, ef ráðunauturinn teldi eða áliti heppilegt, að námskeiðið væri haldið á öðrum stöðum en til eru teknir, og þess vegna tel ég sjálfsagt, að um þetta séu frjálsar hendur. — Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, þar sem ég hefi nú gert grein fyrir, í hverju er fólginn fyrirvari minn við nál.