07.05.1936
Neðri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1108 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

35. mál, stýrimannaskólinn

Frsm. (Páll Þorbjörnsson):

Það er óþarft að fara langt út í þessar brtt. við frv., því svipaðar till. lágu fyrir við 2. umr., en voru þá felldar. — Ég vildi aðeins segja örfá orð út af orðum hv. 8. landsk. um, að Siglufjörður hefði sama rétt og hinir staðirnir, sem frv. nefnir. Ég skal ekki deila um, hvort Siglufjörður hefir sama rétt og hinir staðirnir, en það kemur til kasta fiskifélagsins að hafa veg og vanda af námskeiðunum, og það lagði áherzlu á, að ekki væri hringlað með þau stað úr stað. Ég get ekki heldur fallizt á, að Siglufjörður hafi þar meiri rétt en önnur þorp, t. d. Sandgerði, Akranes og Keflavík, því Siglufjörður mun hafa færri slík skip, sem undir það falla. Ég sé því ekki ástæðu til þess að breyta út af venjunni um að halda námskeiðin á 4 stöðum, einum í hverjum landsfjórðungi, eins og frv. gerir ráð fyrir. Ég vil því leggja eindregið á móti því, að þessar brtt. verði samþ., því þær geta ekki orðið til neins góðs fyrir málið.