06.05.1936
Efri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í B-deild Alþingistíðinda. (1728)
122. mál, skattfrelsi mjólkursamsölu og fisksölusambands
*Frsm. (Ingvar Pálmason):
Við 1. umr. málsins gerði hæstv. atvmrh. aths. við þetta frv. og óskaði þess, að allshn. athugaði, hvort ekki mætti breyta orðalagi 1. gr. frv. Á þetta var minnzt á fundi í n., en það fekkst ekki meiri hl. til þess að flytja brtt. við þetta frv., svo að ég og hv. 1. þm. N.-M. höfum flutt brtt. við 1. gr. á þskj. 530, og er hún í samræmi við þá aths., sem hæstv. atvmrh. gerði við frv. við 1. umr. Eins og hv. þm. sjá, gengur brtt. út á það að skilgreina, með hvaða skilyrðum sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda skuli vera undanþegið tekju- og eignarskatti og útsvari, og lítum við flm. svo á, að það sé fyllilega réttmætt að binda þetta ekki við nafnið eitt, heldur skilgreina, hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að verða þessarar undanþágu aðnjótandi. Að öðru leyti skýrir brtt. sig sjálf.