07.05.1936
Neðri deild: 66. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (1733)
122. mál, skattfrelsi mjólkursamsölu og fisksölusambands
*Ólafur Thors:
Ég sé í sjálfu sér ekkert á móti því, að sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda og mjólkursamsalan séu undanskilin útsvari, þótt ég geti vel hugsað mér, að þetta undanþáguákvæði þyki orka tvímælis, og sérstaklega þó í hugum þeirra manna, sem eiga að sjá farborð, fjárhagslegri afkomu Rvíkurbæjar.
Það er þó í sjálfu sér ekki aðeins þetta frv. og ákvæði þess, sem ég ætla að segja nokkur orð um, heldur ætla ég að nota þetta frv. til þess að láta þá skoðun í ljós, að þau fríðindi, sem eru hér ætluð bændum með því að undanþiggja samsöluna útsvari, eru einskis virði samanborið við hitt, ef bændur fengju í sínar hendur það vald yfir sínum málum, sem þeir hafa krafizt.
Það mun vera rétt, að í mjólkurlögunum, sem samþ. voru á haustþinginu 1934, eru bein ákvæði í þá átt, að lögin skuli vera endurskoðuð á þinginu 1936. Nú hafa verið lögð fyrir Alþingi tvö frv. um breyt. á mjólkurlögunum, en hvorttveggja þeirra hefir varla svo mikið sem komizt á dagskrá. Ef tilgangurinn er sá, að Alþingi láti enga endurskoðun fara fram, þá mun þar vera um lögbrot að ræða, eða a. m. k. brigðmælgi. Ég veit ekki, hvað landbúnaðarráðh. telur sér sæma að hundsa lengi vilja bænda í þessu efni. Það er enn minni ástæða fyrir hann að gera það, eftir að Kaupfélag Borgfirðinga hefir með samróma fundarsamþykkt riðið á vaðið og sent frá sér yfirlýsingu um það, að það krefjist þess, að yfirráðin yfir mjólkursamsölunni séu fengin bændum einum í hendur. Með þessu er því yfirlýst af hendi þeirra aðilja, sem mest eiga undir þessum lögum, og í raun og veru allra annara en þeirra, sem ráða í Mjólkurbúi Flóamanna, að þeir eru á einu máli um það, að breyt. skuli gerð á mjólkurlögunum samkv. þeirra kröfum. Þessar kröfur eru svo af Alþingi undir forystu landbúnaðarráðh. ekki metnar meira en það, að þær eru alls ekki teknar til umr.
Mér þykir rétt að nota þetta tækifæri, þó ég vilji ekki ofreyna þolinmæði hæstv. forseta og hefja umr. um mjólkurmálið, til þess að segja að það, sem gert er fyrir bændur með ákvæði þessa frv., eru hundsbætur hjá hinu, sem krafizt er og þeir eiga fullkomlega rétt á.