02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1167 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)
120. mál, jarðræktarlög
*Frsm. 2. minni hl. (Jón Pálmason):
Ég get innan vissra takmarka lýst ánægju minni yfir því, að þær umr., sem fram hafa farið við 1. og 2. umr. þessa máls, hafa þó haft nokkur áhrif til þess að sanna það fyrir hv. þm., að þeir menn, sem skipa meiri hl. í landbn., hafa fundið það, að þeir standa í þessu máli á hálum bunka, og þeir eru smátt og smátt að feta sig neðar á honum en þeir hafa áður staðið. Og þeir sjá, að það muni vera hagkvæmara fyrir þá að halda ekki til streitu öllum ákvæðum frv., eins og þau voru í upphafi. Ég býst nú við, að ef þessu máli væri frestað um eins árs skeið, eins og við í minni hl. landbn. förum fram á, þá mundi hv. meiri hl. landbn. halda áfram á þessari braut og sjá, að það væri hagkvæmara að fara meira að vilja þeirra manna, sem hér eiga fyrst og fremst hlut að máli, sem er almenningur í sveitum landsins, og ganga ekki eins hart fram með þær breyt., sem þetta frv. gerir á gildandi 1. Brtt. á þskj. nr. 465, frá meiri hl. landbn., það sem þær ná, ganga ofurlítið í þá átt, sem aðfinnslur og aths. mínar og annara hv. þm. gengu við l. umr. málsins, þó skammt sé. Og nú eftir 2. umr. málsins bera þeir fram brtt. við sínar eigin brtt., sem ganga þó nokkuð lengra en hinar, og sanna þær, að þeim er ljóst, að þeir eru hér á hálum ís og verða að slá eitthvað undan frá því, sem í upphafi var til stofnað.
Hv. frsm. meiri hl. vék nú fyrst að þeirri ræðu, sem ég flutti hér við 2. umr. málsins. Hv. þm. Mýr. vildi halda því fram, að það væri ósanngirni í því, að ég talaði um frekju í sambandi við framferði meiri hl. landbn. í þessu máli, er hv. meiri hl. vildi ekki bíða einu eða tvo daga eftir því að fá álit frá stjórn Búnaðarfélags Íslands um þetta mál, sem hér liggur fyrir. En ég verð að segja það, að þegar meiri hl. Alþingis er búinn að halda þessu máli hjá sér mikinn hluta af þingtímanum og hefir þann tíma leynt því fyrir minni hlutanum, þá veit ég ekki, hvað kallast frekja, ef ekki það, að málið má ekki athuga í n. nokkra daga, áður en tekin er fullnaðarafstaða til þess.
Þá var það sá stóri ágreiningur, sem hv. þm. Mýr. vék allmikið að, sem sé það, að hér væri með þessu frv. aðeins verið að leggja búnaðarfélagsskapinn undir vald ríkisstj. og hið pólitíska vald að því er snertir það umboð, sem félagið færi með fyrir bönd ríkisvaldsins í tilteknum málum, sem föst löggjöf væri um, sem sé jarðræktarl., búfjárræktarl., l. um sandgræðslu o. s. frv. Hv. síðasti ræðumaður, þm. Mýr., vildi meira að segja einskorða þetta við það, að ef ágreiningur væri um skilning á framkvæmdum þessara l., þá væri sjálfsagt að vísa þeim ágreiningi til landbrh. Nú er það svo, að í 1. gr. jarðræktarl. er ákveðið, að landbrh. hafi á hendi yfirstjórn ræktunarmálanna í landinu í vissu tilliti. En með þessu ákvæði 1. gr. jarðræktarl. er það þá sagt, að ef ágreiningur rís út af því, hvernig beri að skilja þá löggjöf, sem um ræktunarmálin fjallar, þá eigi ráðh. að skera úr þeim ágreiningi. Ef því ekki væri hér í þessu frv. um annað að ræða en það, hvernig ætti að skilja og framkvæma ýms lagaákvæði viðkomandi ræktunarmálunum og búfjárrækt, þá væri sjálfsagt og eðlilegt að vísa ágreiningi, sem út af því kynni að rísa, til landbrh. En hér er meira um að ræða heldur en þetta. Fyrst og fremst er nú það, að þegar frá eru teknar framkvæmdir allra þeirra mála, sem snerta jarðrækt og búfjárrækt, þá er nú farið þó nokkuð að sneiðast um þau mál, sem landbúnaðinn í heild sinni varða, og þau mál, sem Búnaðarfélag Íslands hefir frá upphafi sinna vega haft með að gera. Í öðru lagi, eins og ég benti á við 2. umr. og hv. þm. Mýr. svaraði engu, þá mundi það að minni hyggju verða fært undir þetta ákvæði frv., ef ágreiningur risi á milli Búnaðarfélags Íslands og búnaðarmálastjóra um það, hvaða mönnum ætti að veita þau störf að fara með umsjón þessara mála, sem þar koma til greina, viðkomandi jarðrækt og búfjárrækt. Og ef það á að vera undir geðþótta ráðh. í hvert sinn komið. hvaða mönnum á að veita þau störf, sem búnaðarfélagið hefir hingað til ráðið um veitingu á, ef ráðh. getur orðið sammála búnaðarmálastjóra um það, hvað sem Búnaðarfélag Íslands segir, þá tel ég svo langt gengið, að ófært sé við það að una.
Þá vildi hv. þm. Mýr. halda því fram, að félagið væri algerlega frjálst fyrir þessari löggjöf um sín sérmál, það hefði óskert frjálsræði í þeim málum, sem þessi félagsskapur byggist á. Þetta er algerður misskilningur, og furða, að maður, sem er í stjórn Búnaðarfélags Íslands, skuli halda slíku fram jafnframt því, sem hann mælir fram með frv., sem felur í sér bein fyrirmæli um það frá hálfu hins opinbera, hvernig kosningatilhögun öll á að vera í þeim félagsskap, sem hér um ræðir. Hér er stefnt að því, að fyrirskipa um þetta atriði með jarðræktarl., sem alltaf áður hefir heyrt undir samþykktir bænda, sem sé á búnaðarþingi. Þetta er það stóra atriði, sem hlýtur að vera ágreiningur um, og frá mínu sjónarmiði stórt ágreiningsatriði í þessu sambandi, því að ég tel, að með þessu sé verið að skerða félagsfrelsið mjög óviðurkvæmilega hjá þessu félagi umfram það, sem með nokkru móti má teljast heppilegt.
Þá var hv. þm. Mýr. að tala um, að þessi félagsskapur væri lögvernduð samvinna. Ég er nú einn í hópi þeirra manna, sem kalla sig samvinnumenn. En ég vil hafa hverskonar samvinnu sem frjálsasta og láta hvern einstakan aðilja, sem þar á hlut að máli, hafa sem beinust áhrif og frjálsast vald til þess að ákveða um það, hvernig félagsmálum skuli hagað. En hina lögþvinguðu samvinnu hefi ég ekkert annað um að segja en það, að mér finnst það í alla staði óeðlilegt, að ríkið fyrirskipi um félagsskap eins og þennan, hvernig hann eigi að vera í ýmsum mikilvægustu atriðum, án tillits til vilja þeirra manna, sem félagsskapnum koma mest við.
Að 8. gr. frv. vék ég nokkuð við 2. umr., sem flm. brtt. á þskj. 485 hafa gengið inn á, að sé nú ekki sem heppilegast orðuð eins og hún er í frv. Hv. þm. Mýr. hélt því fram, að hann hefði verið búinn að athuga þetta atriði, áður en við bentum á það. Það má vera. En það er vitanlega alltaf hægt að segja slíkt. En hv. frsm. 1. minni hl. var nýbúinn að leggja fram brtt., er á þetta var bent, þar sem hann ekki tók þetta atriði til athugunar. En þrátt fyrir þessa brtt. á þskj. 485, þá sætti ég mig engan veginn við hana sem fullnaðarlagfæringu á því, hvernig hér er um búið. Því að ef frv. verður keyrt í gegn, þannig að Búnaðarfélag Íslands verði að afsala sér yfirráðum yfir þessum jarðræktarmálum, þá tel ég réttmætt, að Alþingi ráðstafi því, hvernig með þau verður farið, en að það sé ekki lagt undir landbrh. að ganga þar frá, þó að svo sé tiltekið með brtt., að skuli vera, þangað til önnur skipun verði þar á gerð.
Viðvíkjandi því, sem hér kemur fram um breyt. á 11. gr., sem fjallar um það, að styrkur skuli vera misjafn, og mjög mikið hefir verið um rætt, skal ég viðurkenna það, að sú breyt., sem hér kemur fram á þskj. nr. 485, stefnir því atriði í betra horf en ákvæði frv. En þar með er ekki sagt, að hún fullnægi þeirri kröfu, sem ég og aðrir gera um, að þetta sé óbundið, eins og það hefir áður verið. Því að þó að takmarkið sé hækkað nokkuð frá því, sem í frv. er gert ráð fyrir, þangað til á að lækka styrkinn (sbr. brtt.), þá er það að mínu áliti ekki nema nokkuð í lagfæringarátt. Þrátt fyrir þessa litlu lagfæringu verður þetta ákvæði ósanngjarnt í ýmsum kringumstæðum. Ég benti t. d. á það við 2. umr., að til eru ýmsar stórar og góðar jarðir, sem eru með véltækum engjum og góðu túni, sem voru áður en jarðræktarl. gengu í gildi það álitleg býli, að ekki var brýn þörf fyrir eigendur þeirra að leggja í mikinn kostnað til að auka jarðrækt á þeim, og þeir hafa því ekki kostað neinu verulegu til í því efni. Það getur svo farið, að þessir menn fái hér eftir hærri styrk tiltölulega heldur en bændur, sem barizt hafa með miklum dugnaði við að bæta lélegar jarðir og kostað allmiklu til þess.
Ennfremur er á það að líta, að á einstaka stað á landinu er fleirbýli á jörðum með þeim hætti, að ábúendur búa félagsbúi á jörðinni óskiptri. Þar sem þannig er háttað, yrði niðurstaðan af þessum ákvæðum sú, að það yrðu ekki mennirnir, sem styrkurinn miðast við, heldur þessi sameiginlegu býli. Þessir bændur, sem stunda svona félagsbúskap, kæmu því fremur undir lækkaða styrkinn, ef miðað er við býli, heldur en ef miðað er við einstaka ábúendur, þrátt fyrir það, þó að tilgangur þeirra manna, sem um þetta hafa fjallað, muni vera sá, að miða við einstaka menn þennan styrk. Þessi undantekningartilfelli hafa ekki verið tekin með í reikninginn.
Þá skal ég með örfáum orðum víkja að því, er síðasti ræðumaður kvartaði undan, að ég drap á heilindi hans í málflutningi hans hér á þingi snertandi vald Búnaðarfélags Íslands viðvíkjandi stjórnarkosningum þess. En ef sú reynsla, sem við erum nú að fá af frammistöðu þessa hv. þm. í þessu máli, gefur ekki bendingu um, að honum hafi ekki verið alvara með það, sem hann hefir haldið hér fram á fyrri þingum í þessu máli, þá veit ég ekki, hvernig hægt er að fá sönnun fyrir því, að mönnum sé ekki alvara um það, sem þeir hafa mælt fyrir áður. Því að hv. þm. Mýr. hefir ekki gengið inn á, að honum hafi snúizt hugur í þessum efnum frá því, sem áður var. En það verður hann þó að viðurkenna, að sú takmörkun á yfirráðum Búnaðarfélags Íslands í þessum málum er enn meiri eftir þessari löggjöf heldur en áður var. Annars er það svo, að ég efast ekki um, að vilji og greind þessa hv. þm. mælir á móti því, að hér eigi að réttu lagi að ganga eins langt eins og stefnt er að. En það er bara þetta, sem svo oft bólar á hér á hæstv. Alþingi, að einstaka menn skortir hugrekki til þess að halda fram og fylgja til streitu því, sem þeir finna sjálfir, að rétt er.
Í því, sem hér kemur fram í brtt. þeirra hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. N.-M. um 17. gr., er betri sönnun en nokkursstaðar annarsstaðar, að flm. eru í vandræðum með það, hvernig þeir eiga að útfæra þá hugmynd, sem fyrir þeim vakir um takmarkanir í þessum efnum. En í þessari 17. gr. frv. er eitthvað óskýrt um það, hvort framlag ríkisins skuli vera styrkur eða lán, sem eigi að endurborgast. Þeir eru alltaf að vefja þetta í meiri og meiri umbúðir. En þeir geta aldrei vafið það svo, að úr verði annað en klúður, hversu sem með er farið. Og enn klúðurslegra verður þetta, þegar það er athugað, að þetta ákvæði er verið að setja á þeim tíma, þegar jarðir hafa verið og eru að falla í verði og eru jafnvel lítt seljanlegar. Víða er það svo, að ef þær umbætur væru reiknaðar til verðs, sem gerðar hafa verið á jörðunum síðan 1923, og miðað við kostnaðarverð, þá væru jarðirnar ekki seljanlegar fyrir það. Þar með er því þá einnig slegið föstu, að verð þeirra, áður en þessar umbætur voru gerðar, væri einnig tapað, ef þær seldust ekki fyrir meira en þetta kostnaðarverð umbótanna, hvað þá ef þær seldust fyrir minna. Það hefir gengið svo og mun enn ganga svo nokkuð lengi, að þær umbætur, sem gerðar eru á jörðum, fást ekki borgaðar, ef á að selja jarðirnar. Og ef um verðhækkun er að ræða á jörð, þá er ærinn vandi að greina þar á milli, ef um umbætur á henni er að ræða, að hve miklu leyti verðhækkunin stafar að réttu lagi af umbótunum og að hve miklu leyti vegna afstöðu jarðarinnar og breyttra tíma.
Hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. N.-M. eru nú búnir að koma með brtt. við 17. gr. frv. og svo brtt. við sína eigin brtt. og hafa umorðað hana mjög verulega. Þess vegna held ég, að þeim væri sæmilegast að hafa næsta sporið það, að leggja til, að þessi 17. gr. verði felld alveg niður úr frv.
Ég hefi svo fáu við þetta að bæta. Þetta mál er þannig vaxið og þannig undirbúið og með farið hér á þingi, að það er með öllu óforsvaranlegt að ætla sér að keyra það í gegn nú undir þinglok.