02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (1767)
120. mál, jarðræktarlög
Pétur Ottesen:
Ég vil segja það, að það má heita að vera kaldhæðni örlaganna, að hv. þm. Mýr. skuli láta nota sig til þess hér að verja þá árás, sem hér er fyrst og fremst verið að gera á höfuðstofnun sveitabænda þessa lands, Búnaðarfélag Íslands, og svo þá árás, sem gerð er hér á sjálfstæði sveitabænda í þessu frv. að öllu leyti, bæði með því að draga úr þeim möguleikum til framfara, sem liggja í ræktun landsins, og því að koma upp betri húsakosti í sveitum. Einnig vinnur þessi hv. þm. að því að skerða sjálfstæði þeirra að því leyti, að hann leggur til, að þeir verði ekki eigendur þeirra umbóta, sem þeir fá styrk til, þó að styrkurinn sé ekki og eigi ekki að vera annað en uppörvun til þess að leysa úr bundnum möguleikum til þess að gera sveitirnar betri og byggilegri. En þetta verður skiljanlegt, þegar maður athugar þann samning, sem gerður var á milli stjórnarflokkanna, þegar þessi stjórn, sem nú situr að völdum, var mynduð, sem m. a. stefndi að því að koma í tíð núv. valdhafa jarðeignum landsmanna í eigu þess opinbera þ. e. ríkisins. Það hefir verið tekið fyrir áframhaldandi sölu kirkju- og þjóðjarða, og hér hefir verið flutt á þingi frv. um það, að ríkið fari að kaupa upp jarðir einstakra manna. En það er sýnilegt, að trúin á það, að takast megi að ná jörðunum með þeim hætti, er ekki sterkari en það hjá stjórnarflokkunum, að þeir telja þá aðferð ekki einhlíta til þess að koma þessari hugmynd sósíalista í framkvæmd. Þess vegna er hér til uppfyllingar farið inn á þá leið að nota þá þörf, sem er á því að veita styrk til að auka ræktun og bæta húsakynni í sveitum, til þess að láta ríkið eignast jarðirnar að þeim hluta, sem styrknum nemur, sem veittur er til þessara óhjákvæmilegu umbóta í sveitum landsins, sem bændum landsins — miðað við þau atvinnuskilyrði, sem þeir nú búa við — er ómögulegt að inna af höndum jafnhröðum skrefum með öðrum hætti en þeim, að fá til þess nokkurn stuðning. Það er þess vegna hálfgrátt gaman gagnvart bændastétt þessa lands, sem hér er verið að leika. Og það styður í þessu efni mitt mál, að hér er verið að framkvæma hugsjón sósíalista. Því að eins og kunnugt er, þá var strax eftir stjórnarmyndunina sett á laggirnar n., skipulagsnefnd atvinnumála, venjulega nefnd Rauðka, með það fyrir augum að reyna með löggjöf og á annan hátt að koma öllum atvinnurekstri þessa lands í ríkisrekstur að hugmynd sósíalista, og þar með þá að draga úr einstaklingsrekstri sem mest. Það varð eitt af fyrstu verkum þessarar n., Rauðku, að taka jarðræktarl. til athugunar til þess að reyna að gera þau að hentugu verkfæri í höndum valdhafanna til þess að koma þessum hugsjónamálum fram. Hér sjáum við á tvennan hátt afleiðingu þessara samtaka stjórnarflokkanna að því er bændur snertir, framkomu þessara tveggja frv., jarðakaupafrv. og jarðræktarlagafrv., sem nú liggur hér fyrir.
Ég verð að telja það kaldhæðni örlaganna, að hv. þm. Mýr., sem í þessum málum er á tvennan hátt fulltrúi íslenzkra bænda, skuli vera í fararbroddi að berjast fyrir þessum ófögnuði í garð íslenzkra sveitabænda. Þessi hv. þm. er fulltrúi fyrir sveitakjördæmi, og auk þess er hann í stj. Búnaðarfélags Íslands. Og ég verð að segja það a. m. k., að hann launar illa með afstöðu sinni til þessara mála — svo að ég fari nú ekki út á víðara svið — það traust, sem honum hefir verið sýnt af hálfu bænda með kosningu hans til að gegna trúnaðarstörfum þeirra í báðum þessum stöðum, þingmannsstöðunni og sem meðlimur í stjórn Búnaðarfélags Íslands.
Hér hefir nú verið allmjög reynt að verja þá árás á Búnaðarfélag Íslands, sem í þessu frv. felst. En sú vörn er, eins og vænta mátti, ákaflega lítils virði og haldlaus. Eyða í handr.
Þegar verið var að útbýta þessu blaði hér í dag, þá var ég og annar þm., framsóknarmaður. jafnsnemma að taka á móti því. Framsflþm. spurði mig, hvort ég tryði yfirleitt nokkru orði, sem í blaði þessu stæði, og mér skildist á honum, að hann tryði aldrei neinu, sem í því stæði því að hann hefði svarið öðru blaði trúnað sinn og hollustu. En svo skeður það undarlega. Nú eftir að hafa lesið þetta blað, vill bæði þessi hv. þm. og aðrir samflokksmenn hans nota blað þetta sem höfuðskjól sitt í þessu máli. Telja það hafa slegið öll rök úr hendi okkar, sem andmælum frv. Slík er öll framkoma stjórnarliða í þessu máli sem öðrum.
Eins og hv. þm. A.-Húnv. benti á, þá á ekki aðeins að slá úr hendi bænda öllum yfirráðum yfir Búnaðarfélagi Íslands og hlutdeild þeirra í stjórn búnaðarmálanna, heldur á einnig að taka það vald af stjórn B. Í., sem hún hefir til þess að velja búnaðarmálastjórann og færa það í hendur atvmrh. Og svo á starfsvið þessa manns ekki aðeins að vera bundið við stjórn ræktunarmálanna, heldur á hann að hafa á hendi stjórn allra þeirra starfa, sem búnaðarfélagið hefir með höndum. Eins og kunnugt er, þá kemur stjórn B. Í. ekki á fundi nem, einstöku sinnum, og gerir þá í höfuðdráttum áætlun um stefnu og starfsemi fél., en framkvæmdin hvílir svo á búnaðarmálastjóra og ráðunautunum. Það ríður því á miklu, að val búnaðarmálastjóra takist vel og að hann sé ekki aðeins valinn með tilliti til sérþekkingar á einni ákveðinni sérgrein, heldur og með tilliti til heildarstarfs búnaðarfélagsins. Það verður því að teljast mjög varhugavert, eins og stefnt er að í frv. þessu, að hrifsa með valdi úr hendi búnaðarfélagsins réttindin til að velja búnaðarmálastjórann. Það gæti auðveldlega valdið þeim árekstrum innan félagsins, sem yrðu til ómetanlegs hnekkis fyrir það. Þá má og ennfremur benda á, að það á með valdboði að fyrirskipa félaginu, á hvern hátt skuli kosið til búnaðarþings, og þetta á að gera nú, þó að ekki séu liðin nema 4 ár síðan búnaðarþingið sjálft, valdi sér þá leið, sem til þessa hefir verið farin í kosningu til búnaðarþings. Hér er því um að ræða svo geipilega árás á félagsskap bænda, að það þýðir ekkert annað fyrir stjórnarliðana en að gangast við gerðum sínum, að þeir séu með þessu að taka sjálfsákvörðunarréttinn af búnaðarþinginu og stjórn B. Í. og færa valdið í hendur landbrh. Hér eftir verður því ekki um unnað vald að tala hvað stjórn búnaðarmálanna snertir en undirlægjuvald undir hið pólitíska vald í landinu. Og þó að hv. þm. Mýr. sé að reyna að bera í bætifláka fyrir þetta, þá þýðir það ekkert fyrir hann. Öll vörn hans er og verður ekkert annað en hringsnúningur, eins og þegar köttur fer í kringum heitan graut.
Þá má og benda á það, að hér er allmjög stefnt í þjóðnýtingaráttina. Þannig eru þau bú, sem rekin eru af bæjarfélögum, ekki látin hlíta sömu reglum um hámarksstyrk fyrir unnar jarðabætur eins og einstaklingar. Og frv. er allt byggt upp á þessum grundvelli. Það er því ekki nema eðlilegt, þó að úlfshárin gægist hér víða undan sauðargærunni. Ef þetta er ekki lærdómsrík lexía fyrir bændastétt þessa lands um það, hvernig erindi sósíalista er rekið á öllum sviðum í löggjöfinni, þá veit ég ekki, hvernig hún á að vera. Því til sönnunar, sem ég nú hefi sagt, þarf ekki annað en benda á brtt. þær, sem fram eru komnar við frv. Þær liggja fyrir á tveimur þskj., og það er hvorki meira né minna en þrjár útgáfur af einni gr., þeirri gr., sem á að nota til þess að láta ríkið ná ítökum í þeim jörðum, sem nú eru í einstaklingseign. Í brtt. þeim, sem framsóknarmennirnir í landbn. bera fram, kennir að vísu nokkurs undanhalds frá frv. sjálfu. Þeir sprikla þar í hengingarólinni, sem sósíalistar hafa reyrt svo mjög að hálsi þeirra, og gera tilraun til þess að fá þá til að slaka svolítið til, en allt er þetta til málamynda, enda ekki hætta á, að sósíalistar skeri á ólina fyrr en að fullnuðu verki.
Þá hefir og fyrir gagnrýni okkar stjórnarandstæðinga orðið nokkurt undanhald hjá hv. framsóknarmönnum í landbn., og má þar til nefna, að í stað þess að lækka styrk fyrir hvert býli, sem fengið hefir 3–4 þús. kr. samtals, um 25%, þá á hann samkv. brtt. þeirra að haldast óbreyttur fyrir hvert býli, sem fengið hefir 1–4 þús. kr. styrk, og í stað þess, að samkv. frv. átti að lækka styrkinn fyrir hvert býli, sem fengið hafði 4–5 þús. kr., um 50%, þá á sú lækkun samkv. brtt. ekki að nema meira en 20%. Ég vil nú spyrja, –er ekki með þessu verið að viðurkenna, að reitt hafi verið helzt til hátt til höggs gagnvart íslenzkri bændastétt með frv. eins og það var lagt fyrir?
Hvað snertir hámark þess styrks, sem veita má fyrir unnar jarðabætur á hvert býli, þá stendur það vitanlega að mestu óbreytt, að yfirleitt megi aldrei veita hærri styrk en 5 þús. kr. á hvert býli. Þó er í till. þeirra hv. þm. Mýr. og hv. 2. þm. N.-M. nokkurt undanhald frá þessu, þar sem svo er ákveðið, að þar sem býli sé reist á óræktuðu landi, þá geti styrkurinn komizt upp í 7 þús. kr. Þetta er að sjálfsögðu virðingarvert, þó að það á engan hátt réttlæti það ranglæti, sem hér á að fremja gagnvart þeim mönnum, sem vilja leggja peninga sína og erfiði í ræktun þessa lands.
Hvað kalla beri óræktað land í lögum þessum, er hvergi skýrt; þó geri ég ráð fyrir, að átt sé við það land, þar sem aldrei hefir verið „borið skarn á hóla“, svo að ég noti orð hins vísa Njáls. Það eru því býli, sem reist hafa verið á slíku landi, sem eiga að njóta þessara hlunninda, að mega fá allt að 7 þús. kr. í styrk fyrir unnar jarðabætur. Allt öðru máli gegnir því um þau býli, sem reist hafa verið á illa ræktuðu landi. Þau mega alls ekki njóta þessara fríðinda. Þetta er þeim mun ranglátara, þar sem vitað er, að margar jarðir, sem að vísu hafa einhverntíma verið byggðar, en hafa verið í eyði um lengri eða skemmri tíma og hafa því mjög lítið ræktað land, hafa byggzt upp á seinni árum og geta byggzt upp í náinni framtíð. Að gera mikinn mismun á slíkum býlum og þeim, sem byggð eru upp á alveg óræktuðu landi, er hreinasta misrétti.
Hvað snertir nytsemi jarðræktarlaganna fyrir íslenzku þjóðina í heild, þá mun vart um það deilt, að hún hafi verið mikil, svo mikil, að engin löggjöf, sem sett hefir verið, mun hafa leitt til eins mikils velfarnaðar fyrir bændur og búalið. Það ríður því á miklu, að ekki sé flasað að breyt. á þeim. Það gegnir því furðu, að nú þegar lögin hafa ekki staðið nema um 11 ár, skuli þykja ástæða til að gera slíkar breyt. á þeim, sem hér hafa verið nefndar, sem margar virðast, vægast sagt, mjög varhugaverðar, eins og t. d. hámark jarðabótastyrksins á hvert býli. Það hittir eingöngu þá menn, sem fyrstir hafa farið að nota jarðræktarlögin, þá menn, sem fyrstir hafa orðið við tilmælum löggjafans og hafizt handa um ræktun landsins, og eru nú jafnvel komnir svo langt að geta framfleytt bústofni sínum á ræktuðu landi; m. ö. o. náð því marki, sem fyrst og fremst er stefnt að með jarðræktarlögunum og vitanlega öll framtíð íslenzks landbúnaðar veitur á. Þessa menn á að skera niður við trog, en hina, sem enga eða litla viðleitni hafa sýnt í ræktun landsins, á að verðlauna. Slíkt er réttlæti þeirra manna, sem nú fara með stjórn landsins. Annars er það svo, að jarðræktarstyrkurinn hefir aldrei orðið neitt afgerandi fyrir fjárhag ríkissjóðs, en fyrir framtíð íslenzks landbúnaðar hefir hann haft mikla þýðingu, svo mikla þýðingu, að það verður ekki með tölum talið.
Þá virðist það nokkuð einkennilegt, að þegar stjórnarfl. álíta, að það þurfi að fara að skera af fóðrum hjá ríkissjóði, þá skyldi yfirleitt byrjað á því, sem veitt var til ræktunarmálanna. Það hefir verið lækkaður styrkur til Búnaðarfélags Íslands — styrkurinn til áburðarkaupa var lækkaður. Styrkur til sandgræðslu var lækkaður, og það þó að landið blási upp og stór nauðsyn sé því á að hefta sandfokið. Þannig mætti og fleira telja, sem ráðizt hefir verið á, sem ýtir undir framkvæmdir á sviði landbúnaðarins og bætir lífið í sveitunum. Þetta er gert samtímis því, sem hækkaðar eru fjárveitingar til atvinnubóta í kaupstöðum og veitt er fé til atvinnuleysistrygginga í kaupstöðunum. Í frv. því til jarðræktarlaga, sem hér liggur fyrir, er þó stigið stærsta skrefið til þess að skerða þá hagsmuni, sem löggjöfin veitir íslenzkum bændum nú. Það er byrjuð á því, eins og ég tók fram áðan, að sker, þá niður, sem bezt hafa hagnýtt sér jarðræktarlögin, með því í yfirskini, að það eigi að vera til þess að hjálpa þeim, sem getulitlir eru, en hafa áhuga á ræktun. En ég verð að efast um, að sú viðbót, sem þeir kunna að fá með því að útiloka áhuga- og starfsmennina í sveitunum frá því að fá þann styrk, sem þeim ber, verði þeim, sem hlunnindanna eiga að njóta af því, eins mikils virði og til er ætlazt, m. a. sakir þess, að verði áhuga- og dugnaðarmennirnir heftir, eins og frv. gerir ráð fyrir, þá má búast við, að erfiðara verði um samvinnu um kaup á hinum stóru jarðyrkjutækjum. En það vitum við, sem við jarðyrkju höfum fengizt, að til þess að hægt sé að kaupa hin stærri jarðyrkjutæki og starfrækja þau þarf mikla og almenna þátttöku og öflugan félagsskap.
Það er nú ekki venja við 3. umr. máls að fara ýtarlega út í einstakar gr. frv. fremur því, sem brtt. gefa tilefni til, og ég skal ekki heldur gera það hér. Ég hefi gert það áður. Við 2. umr. hefi ég sýnt það ýtarlega, að búskapur og jarðrækt í sveitum hlýtur að hafa ógagn af þessum breyt. á jarðræktarlögunum. — Þær brtt., sem hér liggja fyrir, draga ekkert úr þeim broddi, sem felst í höfuðatriðum þessa frv. Það er síður en svo. Öll stefna frv. er óbreytt, en þessar brtt. eru lítilfjörlegt kák, sem lítur helzt út fyrir, að sé gert til þess að friða vonda samvizku út af því að ráðast á þá löggjöf, sem langveigamestan þátt hefir átt í því af allri þeirri löggjöf, sem sett hefir verið hér á landi, að þoka landbúnaðinum og jarðræktinni fram á leið. Því að þótt t. d. í 2. brtt. á þskj. 465 standi, að ágreiningsatriðum megi skjóta til landbrh. í staðinn fyrir, að þeim skuli skjóta til landbrh., — hvaða þýðingu hefir það, þegar það er landbrh., sem ræður því, hver er búnaðarmálastjóri? Ég skal ekki fara út í einstakar brtt. Að því leyti, er íslenzkan landbúnað snertir, má segja, að frv. sé óbreytt, þrátt fyrir það þótt þær væru samþ. Þær eru, eins og ég tók fram áðan, eingöngu ávöxtur vondrar samvizku út af því, að hér sé verið að fremja óþurftar verknað gagnvart íslenzkum landbúnaði.
Hv. þm. Mýr. gerði ekki meira úr því félagi, sem honum er falið að stjórna, en að hann taldi, að ekkert mundi þýða að skjóta málinu þangað. Hér liggja fyrir frá búnaðarfélagsstjórninni mjög harðvítug mótmæli gegn því, að þetta frv. sé keyrt áfram nú á þingi, og þau byggjast á því, að hér sé ráðizt á sjálfsforræði búnaðarfélagsins og stórvægilegar breyt. gerðar á þeim grundvallaratriðum jarðræktarlaganna, sem sett voru 1923. — Hv. þm. Mýr. telur ekki þörf á að verja sjálfstæði Búnaðarfélags Íslands né halda uppi svörum, þegar ráðizt er á hagsmuni þess, og það er ekki nóg með það, að hann haldi ekki uppi svörum fyrir þá stétt manna, sem hann í tvennum skilningi er fulllrúi fyrir, heldur tekur hann að sér að verja þessa árás, sem hér er verið að gera á aukna ræktun og bættan húsakost í sveitunum. En það má benda á, að lélegur húsakostur í sveitum verður mjög til þess, að fólk flýr þaðan til kaupstaðanna í von um að fá betri húsakynni þar. Og trúin á viðleitni búnaðarfélagsskaparins í landinu er ekki meiri en það hjá þessum hv. þm., að hann telur það engu skipta, að búnaðarsamböndin fái að segja álit sitt á þessu frv. Það getur verið, að það yrði ekki til þess, að meiri hl. Alþingis breytti afstöðu sinni, en það kæmu þó a. m. k. fram raddir bæði frá búnaðarfélaginu og frá einstökum mönnum, sem hafa skilning og þekkingu á því, hve mikla þýðingu jarðræktarlögin hafa fyrir íslenzkan landbúnað, eins og þau nú eru, og hve ónotanlega mikið gagn þau hafa unnið. Ég verð að segja, að það er sorglegt, að hv. þm. Mýr., sem er fulltrúi íslenzkrar bændastéttar, skuli misskilja sitt tvöfalda hlutverk svo háskalega að gerast málsvari þessa frv., sem bæði gerir ráðstafanir til þess að draga úr þeirri hvöt, sem jarðræktarlögin hafa vakið til jarðræktunar og húsabygginga, og þar að auki vilja nota þennan þarfa og vinsæla styrk til þess, að ríkið dragi undir sig jarðirnar, og brýtur þannig í bága við þá ríkjandi stefnu, sem verið hefir allt til þess, að núverandi stjórnarflokkar tóku völd, sem sé að landbúnaðinum væri svo bezt borgið, að sem mest af jörðum væri í sjálfsábúð. Undanfari þessa frv. var það, að hætt skyldi að selja jarðir þær, sem enn eru í eigu þess opinbera, og að ríkið fari að kaupa upp jarðir, sem eru í einstakra manna eigu. Það er þannig stigið neðarlega í stigann, en það á sýnilega að halda áfram rim af rim, unz komið er í efsta þrepið og ríkið hefir náð tangarhaldi á öllum jörðum og bændur eru orðnir meira og minna ánauðugir leiguliðar ríkisins. Eins og verið er að skerða sjálfstæði búnaðarfélagsins, eins er verið að skerða sjálfstæði einstakra bænda, með því að keyra allt undir ríkisvaldið, og með því er verið að slá á útrétta hönd hvers þess, sem vill vinna að ræktun sveitanna og gera þær byggilegar, og á þann hátt er líka verið að vinna landbúnaðinum óþurftarverk með þessu frv.
Það er kannske rétt að benda á það í þessu sambandi, sem ég vék að við 1. umr. málsins, að það sé varhugaverður sá kafli, þar sem verið er að eggja menn á að yfirgefa dreifðu býlin og fara í þéttbýli. Í þessum dreifðu býlum geta vitanlega verið jarðir, sem hafa góð beitilönd og eru vel fallin til sauðfjárræktar. En það er verið að ýta undir þá, sem þar búa, að yfirgefa þessar jarðir, með því að veita þeim fríðindi, sem í þéttbýlinu eru. Þrátt fyrir það þótt mjólkurmarkaður sé mjög takmarkaður, þótt nokkrar hömlur séu á kjötsölu, hefir hingað til tekizt að selja það kjöt, sem til hefir verið, og ég veit, að þótt þröngt sé á kjötmarkaði, þá er rýmra um sölu fyrir það heldur en fyrir mjólk. Hv. 1. þm. Árn. varð að viðurkenna, að þessi stefna væri varhugaverð, en engin brtt. hefir komið fram við það.
Hv. þm. A.-Húnv. minntist á það, sem ég hefi að nokkru leyti gert líka, að það undanhald, sem nú er hjá formælendum frv., sé áreiðanlega sprottið af vondri samvizku. Má t. d. nefna, að nú er lagt til að hækka verkfærakaupastyrkinn upp í ½, eða gera hann eins og hann áður var, en í frv. var hann ætlaður 1/3.
Ég held, að þetta mál sé allt þannig vaxið, að það sé alveg ósæmilegt gagnvart íslenzkum landbúnaði að samþ. frv., þótt þessar brtt. næðu fram að ganga. Ég tel alveg ósæmilegt að samþ. það án þess að gefa bændum kost á að gera aths. sínar við það. Ekki aðeins vegna þess að í því felst skerðing á stuðningi við ræktun, heldur líka vegna þeirrar grundvallarstefnu frv., að fjárframlagið til ræktunar skuli leggjast sem kvöð á býlið, er ríkið eignast, í stað þess að nú eru lögin byggð upp með það fyrir augum, að þeir, sem vilja helga sveitinni alla krafta sína, eignist þann styrk, sem þeim er til þess veittur, að hann sé verðlaun fyrir starf þeirra í þágu þjóðarinnar og verði ekki aftur tekinn.
Forfeður vorir skiluðu landinu lítt ræktuðu, og það hefir orðið til þess að breyta atvinnulífi þjóðarinnar og stuðla að burtför fólksins úr sveitunum, en núverandi kynslóð á að leggja framtíðinni til ræktað land, og þótt framtíð landsins byggist mikið á þeim auðlindum, sem eru við strendur þessa lands, þá er það trú mín og heitasta von, að þjóðfélag vort byggist líka upp af því auðmagni, sem er í íslenzkri gróðurmold. Það er þess vegna þjóðnýtt verk, sem þeir menn vinna, sem helga krafta sína því starfi að gera sveitirnar byggilegar, og þann mann, sem þar leggur hönd að verki, á ekki að svipta því, að hann eignist ávöxt þeirra krafta, sem hann leggur fram.
Það má sjá á öllu, að þetta frv. eigi að keyra í gegn með harðri hendi. Hér hafa verið bornar fram brtt. og það hefir verið beðið eftir þeim í dag. Nú þykist ég sjá það á öllum sólarmerkjum, að frv. eigi að afgr. til hv. Ed. á þessum fundi. Ég vil aðeins benda á þetta til þess að sýna ljóslega, hve ríflegur tími hv. þdm. er gefinn til þess að athuga þessar brtt., hvað þá til að flytja brtt. Ég veit, að það er búið að semja um það í stjórnarflokkunum að keyra þetta frv. í gegn, hvað sem tautar, og ég býst við, að sá samningur hafi verið gerður, þegar ákveðin var sú breyt. á þingsköpum, að undanþágu mætti veita með einföldum meiri hl., því að það hefir verið ákveðið svo, til þess að hægt væri að keyra fram slík mál sem þetta. Enda vitanlegt, að það er ekki á annan hátt hægt, nema með því móti að lengja þingtímann. Það dugir ekki að deila við dómarann, og ég hefi líka séð sigurbrosið á vörum sósíalistanna, þótt nú sé enginn viðstaddur af þeim hópi. Þeir vita, að hér þurfa þeir ekki að vera. Þeir eru búnir að þjálfa framsóknarfl.liðið á þingi svo vel, að það má trúa þeim fyrir því að standa fyrir málinu. Sósíalistanna þarf ekki við nema til þess eins að greiða atkv., en þá skila þeir sér líka. Þeir þekkja hljóðið, þegar bjöllunni er hringt, eins og lambið þekkir hljóðið, þegar ærin jarmar, og þá koma þeir til að rétta upp hendurnar og segja já. Ég veit ekki, hvort þeir segja amen líka. En þeir skila sér til þess að segja já við þessu frv. og til þess að leggja í fjötra framfaraviðleitni íslenzkra bænda og til að eyðileggja þróunarskilyrði íslenzks landbúnaðar.