08.05.1936
Efri deild: 68. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (1805)
120. mál, jarðræktarlög
*Pétur Magnússon:
Ræða hæstv. forsrh. gefur ekki tilefni til langra andsvara. Það eru í raun og veru aðeins tvö atriði af fjórum, sem hann svaraði einhverju sem heitið gæti. Vildi hann verja það, sem ég hélt fram, að óhæfilegt væri að hraða frv. jafnmikið gegnum þingið og gert er. Fyrir því færði hæstv. ráðh. þrenn rök. Í fyrsta lagi endurtók hann það, sem hann sagði við 2. umr., að það væri sjaldan til bóta, að frv. lægju lengi fyrir þinginu. Ef það er skoðun hæstv. ráðh., að ekki sé til bóta, að þm. séu að athuga frv., þá mætti spyrja hæstv. ráðh., hvers vegna hann er að láta þingið sitja ár eftir ár svo mánuðum skiptir, síðast 124 daga og nú þegar 80–90 daga, fyrst ekki er ástæða eftir hans skoðun, að það sitji nema viku til hálfan mánuð. Hæstv. ráðh. hefir vald til þess að haga þessu á þann veg, er hann álítur eðlilegast —, og hvers vegna gerir hann það þá ekki? Ég held vegna þess, að þetta sé í raun og veru ekki hans skoðun, heldur grípi hæstv. ráðh. til þess af því að hann skortir rök.
Í öðru lagi sagði hæstv. ráðh., að þingið hefði haft nægan tíma til þess að athuga málið. Það hefir verið bent á, að hér sé um stórfellda stefnubreyt. að ræða og að frv. hafi verið útbýtt í þinginu fyrir 17 dögum, og hér í d. fyrir 4 eða 5 dögum. Ég vildi halda fram, að þetta væri nokkuð naumur tími fyrir þm. til þess að geta sett sig svo vel inn í málið sem vera þyrfti, ekki sízt þegar þetta er um mesta annatímann, þegar þm. verða að sitja á fundum mestan hluta dagsins, frá kl. 1–4 og 5–7 og mörg kvöld fram á nætur. Hvaða tíma eiga þm. þá að hafa til þess að kryfja stórmál til mergjar?
Það var sagt undir umr., að sýnt væri að blöðin hefðu haft nægan tíma til að athuga málið. Þetta kann að vera, en ég vildi þó vefengja, að sú athugun, sem tíðkast hjá blöðunum, sé til fyrirmyndar, þegar þau skrifa um málin daginn eftir að þeim er útbýtt og eru þá búin að taka afstöðu til þeirra.
Þriðja ástæðan var sú, að hér væri verið að breyta l., sem búið væri að framkvæmt í 10–20 ár, og þess vegna ætti ekki að þurfa langan tíma til athugunar. En þar sem hér er um stefnubreyt. að ræða, er slíkt engin ástæða, en sýnir aðeins rökþrot. Þar að auki má benda á, að þó um breyt. sé að ræða, og það enga stefnubreyt., á l., sem búið er að framkvæma lengi, eins og t. d. hegningarlögin, sem búið er að framkvæma í 70–80 ár, er þó búið að vera nokkur ár að undirbúa breyt. á þeim. Og í nágrannalöndunum hefir það tekið áratugi, þó lærðustu og færustu menn hafi unnið að undirbúningnum. Þessi röksemd er því gersamlega einskis virði, og því fer svo fjarri, að 1. þurfi minni undirbúning, þó búið sé að framkvæma þau í nokkur ár, að það nær engri átt. — En hvað sem þessu líður er þessi hv. d. beitt rangindum, þar sem hún fær engan tíma til að athuga málið. Þó við viljum bera fram brtt., sem allir þm. telja réttar, vitum við vel, að þær verða ekki samþ., og hæstv. stj. hefir þar nokkra afsökun, eigi málið að ganga í gegn á þessu þingi. En það er vítavert af hæstv. ráðh. að ætla að knýja málið í gegn nú, án tillits til þess, hvort það hefir fengið nægilegan undirbúning eða ekki.
Þá hefir verið bent á, að búnaðarfél. hafi orðið í milli 10 og 20 ár að hlíta því, að landbn. Alþ. skipaða meiri hl. félagsstj. Vitanlega er það rétt, að í því lá nokkur skerðing, en ég vil spyrja hæstv. ráðh. um, hvort forráðamenn búnaðarfélagsskaparins hafi verið mjög ánægðir með það skipulag. (Forsrh.: Þingið var ánægt). Þar voru skiptar skoðanir, og það þýðir ekkert fyrir hæstv. ráðh. að reyna að tileinka sér heiðurinn af því að hafa flutt breyt. á því fyrirkomulagi; þótt hann sjálfur hafi e. t. v. fylgt því, hefir hann a. m. k. ekki komið handjárnunum á flokksbræður sína. En þó þetta sé nokkur réttarskerðing á sjálfstæði félagsins, eru það þó hreinustu smámunir samanborið við það, sem hér er verið að gera. Félagið hefir verið sjálfrátt um, hvernig það hefir hagað sínum félagsmálum að öðru leyti, en nú er tekinn af því rétturinn til þess að ráða sínu eigin skipulagi, en ráðh. ætlað að ákveða, hvernig það hagar störfum, hvernig búnaðarþing er skipað, hve margir fulltrúar sitja það o. s. frv. Sem sagt er allt vald yfir búnaðarfélaginu lagt í hendur ráðh.
Ég hefði í sjálfu sér ekki deilt við hæstv. ráðh. út af tilhöguninni á kosningu til búnaðarþings; ég tel ekki ástæðu til að láta neitt uppi um það atriði. Fyrir mér er hitt aðalatriði, að með ákvæðum frv. er félagið svipt rétti til þess að ráða sjálft sínum málum og ákveða sitt skipulag. Það hefir verið bent á það hér í fyrri ræðum, að ekki sé ástæða til að taka fremur ráðin af þessu félagi en öðrum stéttarsamtökum, um hvernig það byggir upp sinn félagsskap. — Annars er ástæðulaust af hæstv. ráðh. að vera hneykslaður yfir því, hvernig kosið er til búnaðarþings. Það fyrirkomulag er ekki sjaldgæft hér eða annarsstaðar, og þekkist í öðrum löndum um meiri og merkilegri kosningu en til búnaðarþingsins, t. d. við kosningu forseta Bandaríkjanna, og mundi það ekki þykja ómerkilegri kosning, en þó eru kjörmenn látnir velja forsetann. Það er svo fjarri sanni, að sú tilhögun brjóti í bága við lýðræðisreglur, að hún er fullkomlega lýðræðislega rétt. En ástæðan fyrir því, að þessi tilhögun er höfð, er sú, að hún er einfaldari og kostnaðarminni. — Annars ætlaði ég ekki að fara að rökræða, hver kosningaraðferðin sé heppilegri, heldur aðeins þá hliðina, að verið er að taka sjálfræðið af búnaðarfél. í þessum efnum.
Út af því, sem ég hefi í fyrri ræðu minni talað um val búnaðarmálastjórans, var hæstv. ráðh. að benda á, að reynslan hefði sýnt, að þar væri engin hætta á ferðum, því þann tíma, sem liðinn væri síðan búnaðarmálastjóri var útnefndur, hefði ekki einu einasta máli verið skotið til ráðh., — svo hefði samkomulagið verið gott. Ég vil nú segja, að þessi reynsla sé harla lítilvæg, þar sem ekki er nema tæpt ár síðan sú tilhögun komst á. Það er því lítil sönnun, þó ekki hafi komið fram ágreiningur ennþá.
Hæstv. ráðh. var að reyna að sýna fram á, að það væri í hæsta máta óviðkunnanlegt, að ríkisvaldið færi að fela með óafturkallanlegu umboði einhverri stofnun það vald, sem því bæri. En það er eitthvað skrítið, ef l., sem verið er að setja á Alþingi, eiga að gilda um aldur og æfi. Mér skilst, að verði einhver óánægja með stj. búnaðarfél., þá muni fljótlega vera hægt að breyta l. aftur. Það er þess vegna skrítið að vera að tala um óafturkallanlegt umboð.
Hæstv. ráðh. reyndi ekki með einu orði að hnekkja því, sem ég sagði, að ekki mundu aðrar stofnanir líklegri en búnaðarfél. til þess að ráða yfir þeim beztu kröftum og þekkingu í þessum efnum, sem til væru í landinu. Meðan hæstv. ráðh. ekki hnekkir þessum rökum, er hægt að láta sem vind um eyrun þjóta, þó hann sé að tala um, að óviðkunnanlegt sé að afsala valdi ríkisins í hendur annara stofnana.
Þá var hæstv. ráðh. að tala um, að Sigurður fyrrv. búnaðarmálastjóri hefði verið því fylgjandi, að búnaðarfél. væri lagt niður og að ríkisstj. sæi um framkvæmdir þeirra mála, sem undir það heyra, á engin spýtur. En það er allt annað sjónarmið en haldið hefir verið fram fyrir því, að frv. yrði að l. Þetta er annar grundvöllur en sá, er mælir svo fyrir, að búnaðarfél. fari með framkvæmd þeirra mála, sem styrkur er veittur til. Ég hefði betur getað skilið, ef hæstv. ráðh. hefði lagt til, að þessi mál yrðu tekin úr höndum búnaðarfélagsins og stofnuð sérstök deild í ráðuneytinu fyrir þau, þar sem tryggt væri, að slík þekking væri fyrir, að vel yrði á þeim haldið. En hitt er erfitt að skilja, að á meðan haldið er við búnaðarfélagið, þá sé það ekki gert að öðru en ráðgefandi stofnun, en hin raunverulega stjórn málanna látin vera í höndum manns, sem af hendingu fer með völd í það og það skiptið. Því að ekki verður núv. ráðh. eilífur í embættinu, enda þótt hann kunni að treysta sjálfum sér vel.
Því, sem ég sagði um lágmarksstyrkinn, svaraði hæstv. ráðh. á þá leið, að hann fór framhjá því, sem var aðalatriðið hjá mér. Hann sagði, að styrkur þyrfti að vera hærri fyrir þau býli, sem lítið hefði verið gert fyrir hingað til, því að á þeim hefðu yfirleitt verið leiguliðar við slæma ábúðarskilmála. Því yrði að hlynna að þeim sérstaklega. Hv. 10. landsk. gat þess, að ýms þeirra býla, sem lítið hefði verið gert fyrir, væru einmitt stórbú og þannig gerð, að ekki hefði verið þörf að gera þar miklar umbætur, svo að þetta er engan veginn knýjandi regla, eins og hæstv. ráðh. heldur fram. En ef bæta ætti kjör leiguliða, þá ætti það heima í annari löggjöf en þessari. Og hæstv. ráðh. hefir bent á, að í því efni hefir mikið verið gert undanfarin ár. En ef dæmi eru til þess, að menn hafi ekki þorað að gera umbætur á býlum sínum, þá eru nú líkur til, að slíkum dæmum fari fækkandi, svo að þess vegna er ekki ástæða til að setja nein sérstök ákvæði í þessi lög.
Í sambandi við það, sem ég hafði sagt um 17. gr., lét hæstv. ráðh. þess getið, að þau ákvæði væru sett til að koma í veg fyrir óeðlilega verðhækkun á jörðunum. Bara að þetta komi ekki í veg fyrir eðlilega verðhækkun og verði til þess, að menn fari að hætta að rækta jörðina, því að þá væri verr farið en heima setið. Því að þó að mikið hafi verið gert síðustu árin, er þó enn fleira ógert, og væri það alvarlegt fyrir íslenzku þjóðina, ef stöðvun yrði á ræktuninni. En að öðru leyti er það fjarstæða, er hæstv. ráðh. gefur í skyn, að verðhækkun á jörðum fari fram í sömu hlutföllum og ræktun þeirra: Ef miða á við söluverð jarða, verður að skrifa af jafnharðan mikinn hluta af umbótum þeim, sem gerðar hafa verið á jörðunum. Þeir, sem mikið rækta, gefa þjóðfélaginu meira en það gefur þeim. Og af því að þetta er óvefengjanleg staðreynd, kemur það úr hörðustu átt, ef ríkið ætlar nú með löggjöf að fara að taka meira af þessum mönnum en gert hefir verið hingað til. Ég get ekki betur séð en að í þessu ákvæði frv. sé mikil óbilgirni og skilningsleysi á því, sem hefir verið að gerast í landinu síðustu árin.