11.03.1936
Neðri deild: 21. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)

32. mál, landssmiðja

*Frsm. meiri hl. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég sé ekki ástæðu til að fara ýkjamörgum orðum um ræðu hv. þm. V.-Sk., því í fyrri ræðu minni kom ég inn á mörg atriðin, sem hann vakti máls á, og hefi þar af leiðandi gert grein fyrir þeim. Hv. þm. sagði, að við í meiri hl. hefðum ekki viljað ljá hlustir nokkurri breyt. á þessu frv. Það veit þó hv. þm. mætavel, að þeir í minni hl. orðuðu ekki neinar breyt. á frv. í n. Þar sem meiri hl. gat unað við frv. eins og það var, sá hann ekki ástæðu til að ympra á breytingum. Það var þeirra, sem óánægðir voru með frv., að koma fram með brtt., og gátu þær þá að sjálfsögðu komið til athugunar í n. En engu slíku var til að dreifa.

Sami hv. þm. talaði um pólitískt ofstæki og hvers vegna þetta mál þyrfti að vera pólitískt. Ég verð að segja, að mig undrar á því, að svona mál skuli þurfa að vera pólitískt. Hér er um að ræða tilraun til að auka iðnað og verklegar framkvæmdir í landinu. En endilega þarf þetta mál að verða pólitískt fyrir þá sök, að sjálfstæðismenn geta ekki með nokkru móti unað við, að fyrirtæki rekið af ríkinu sé styrkt til að gera tilraunir með og undirbyggja nýja starfsemi í járniðnaðinum, væntanlega beinlínis af því það er ríkisfyrirtæki. Mér finnst þessi afstaða hv. sjálfstæðismanna einkennileg og óeðlileg. Það eru vissulega þeir, sem hafa komið pólitík inn í þetta mál með því að snúast öndverðir gegn því af því að ríkisfyrirtæki á hlut að máli, en ekki einkafyrirtæki.

Hv. frsm. minni hl. hélt fast við álitsgerð þá, sem Helgi Eiríksson hefir ritað minni hl. og prentuð er með nál. hans, sem ég þó hrakti að mörgu leyti og benti ljóslega á, að hér væri um álit pólitíkusar að ræða, en ekki hlutlauss fræðimanns. Nú vill svo vel til, að þetta hefir verið lagt undir álit þeirra manna, sem áhuga hljóta að hafa á, að vel takist að útvíkka innlenda járniðnaðinn, svo að hann nái til mótorsmíði. Þetta mál kom til umr. á fiskiþinginu, og þar var skipuð n. í það, sem í voru Þorsteinn Þorsteinsson, Ólafur Björnsson og Níels Ingvarsson. Ég hygg rétt með það farið, að meiri hl. þessarar n. fylgi Sjálfstfl. að málum, og hún var á einu máli um afgreiðslu þessa máls. Skilaði hún ýtarlegu áliti, sem sent var til fjhn. Nd., og sem ég fékk að líta á rétt í þessu. N. talar þar um, að það geti verið mjög heppilegt, ef hægt væri að koma á innlendri mótorgerð, og telur, að það gæti sparað þjóðinni 230 þús. kr. erlendan gjaldeyri, auk þess sem það mundi hafa í för með sér aukna atvinnu fyrir járniðnaðarmenn hér. Þó er n. á því, að ekki mundi ráðlegt að ráðast í beina, mótorsmíði, þannig að vélarnar væru byggðar frá grunni hér. Hinsvegar telur hún athugandi, hvort ekki væri rétt eða möguleikar fyrir því að hálfvinna vélarnar, þannig að aðalstykkin væru keypt frá erlendu „steyperíi“, eins og margar erlendar mótorverksmiðjur gera. Svo kemur þessi niðurlagsályktun, sem samþykkt mun hafa verið með samhljóða atkv. á fiskiþinginu og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Vill fiskiþingið mæla með því, að landssmiðjan eða önnur innlend verksmiðja sé studd fjárhagsleg, eða á annan hátt til slíkrar tilraunar, svo úr því verði skorið, hvort sú framleiðsla sé möguleg.“

Með öðrum orðum, fiskiþingið hefir hallazt að þeirri skoðun, að það væri eðlilegt fyrir fjárveitingavaldið að styðja einhverja verksmiðju í þessu efni, og nefnir þar fyrst til landssmiðjuna. Mér finnst þetta álit skynsamlegt og að það bendi til þess, að nm. hafi einvörðungu haft í huga hagsmuni útgerðarinnar og hins íslenzka athafnalífs, en ekki pólitísk sjónarmið, eins og skína virðast út úr hverri línu hjá Helga Eiríkssyni; er því að mínu viti hægt að leggja meira upp úr þeirra ályktun heldur en álitsgerð hans, sem prentuð er með nál. minni hl. — Hér með ætla ég því, að fyrir liggi álitsgerð þess félagsskapar, sem ætti að hafa fullkomnasta aðstöðu til þess að kynna sér málavöxtu, og hún hnígur ótvírætt í þá átt að mæla með framgangi frv. í aðalatriðum, að ríkið eigi, ef hægt er, að gera landssmiðjun, þess megnuga að leggja inn á nýjar brautir í járniðnaðinum. Hv. frsm. minni hl. taldi, að til þess mundi þurfa að verja of fjár, ef að notum ætti að koma. Ég treysti mér ekki að dæma um það, en með frv., sem fyrir liggur, er nokkuð markaður bás í því efni. Það er gert ráð fyrir, að ríkið ábyrgist lán fyrir landssmiðjuna til kaupa á vélum og öðrum tækjum til aukinnar starfsemi. Auk þess er gert ráð fyrir, að landssmiðjunni sé lagt eitthvað á fjárlögum. Eru fjárframlögin þannig komin undir fjárveitingavaldinu á hverjum tíma, en í eitt skipti fyrir öll er gert ráð fyrir, að ríkið gangi í ábyrgð fyrir láni handa þessari stofnun til þess að auka starfstæki sín. Hvernig sem síðar tekst til með tilraunir til mótorsmíði, ætla ég, að því fé, sem varið yrði til kaupa á vélum, væri ekki á glæ kastað, heldur yrðu þær notaðar áfram til eflingar íslenzkum járniðnaði, hvað sem mótorgerðinni liði.

Hv. frsm. minni hl. gat þess, að hann teldi ekki sambærilega við landssmiðjuna þá stofnun, sem ég gat um, eða viðgerðarstofu útvarpsins. Ég ætla, að þessi stofnun sé mjög sambærileg; veit ég ekki betur en að viðgerðarstofan geri við öll útvarpstæki á landinu, ekki aðeins þau tæki, sem ríkisútvarpið hefir með höndum, heldur einnig tæki einstaklinganna og þau, sem einstaklingar hafa annazt sölu á. Þannig annast ríkisútvarpið þessar viðgerðir, og hefir enginn haft neitt við það að athuga. Á sama hátt er ekkert við það að athuga, þó að landssmiðjan verði aukin og efld, svo að hún gæti farið inn á nýjar leiðir í járniðnaðinum. Ætla ég, að það sé bábilja ein, að önnur fyrirtæki muni af þeim sökum líða undir lok; sérstaklega þó ef landssmiðjunni yrði gert kleift að fást við ný viðfangaefni, og starfssvið hennar þannig útvíkkuð, yrði hennar hagur betri, án þess að gengið væri á hluta annara samskonar fyrirtækja á nokkurn hátt.

Skilst mér, að hér gæti orðið alveg eins og með ríkisprentsmiðjuna „Gutenberg“; þó að hún hafi gengið í eign ríkisins og starfi að þeirri prentun, sem ríkið þarf að láta annast, og þó hún hafi verið efld að tækjum, þá þrífast aðrar prentsmiðjur vel hér í bænum við hlið hennar.

Ég ætla því, að það sé bábilja ein, að önnur fyrirtæki leggist í rústir, þó að þetta frv. verði samþ., og það er önnur fjarstæðan frá, að frv. þetta muni leiða af sér atvinnuleysi manna í járniðnaðinum, heldur mun verða þvert á móti. Ég hefi áður leitt rök að því, að útlit er einmitt fyrir, að atvinna muni aukast, ef frv. þetta nær lögfestingu. Ef svo gæti farið t. d., að unnt væri að smíða alla mótora hérlendis, sem við þurfum að nota, þá mundi það verða atvinnuauki, er næmi um 130 þús. kr. á ári. Og þó t. d. landssmiðjan eða önnur hliðstæð fyrirtæki keyptu inn stærstu mótorhlutana tilbúna eða steypta og settu þá hér saman, þá mundi atvinnan í járniðnaðinum aukast verulega frá því, sem nú er.

Ég fæ því ekki heldur séð, að hér sé nein árás á Reykjavík eða reykvíska skattþegna, og ég sé heldur ekki, að þetta geti gengið út yfir neina aðra íslenzka skattþegna. Landssmiðjan er hér í Reykjavík og greiðir hér sín gjöld eftir sérstökum lögum; á því yrði engin breyting. Hér er því alls ekki um neina árás á Reykjavík að ræða, og fer því svo fjarri, að þetta gæti orðið bæjarfélaginu til mestu gagnsemi, ef takast mætti með eflingu þessa fyrirtækis að auka atvinnu í járniðnaðinum, t. d. með mótorsmíði.

Loks fór hv. þm. V.-Sk. inn á stórpólitískar dugleiðingar út af afgreiðslu þessa máls. Talaði hann um, að það mundi ekki líðast til lengdar, að svona, stórmál væru afgr. hér með eins atkv. meiri hl. En hvað er lýðræði? Í hverju er það fólgið, ef ekki þeim meiri hl., sem er á hverjum tíma? Þó að sá meiri hl. sé veikur, og aðeins 1 atkv., þá hlýtur hann að ráða, og á að ráða samkv. venjulegum lýðræðisreglum.

Ég get bent á unnað dæmi um veikan meiri hl., þ. e. í bæjarstjórn Reykjavíkur, þar sem flokkur borgarstjórans, hv. 5. þm. Reykv., hefir aðeins 8 atkv. gegn 7. Þó minni hl. sé ekki einlitur, er hann í mjög mörgum málum sammála og andvígur stefnu íhaldsins, en ekki höfum við í bæjarstjórninni haft þau orð, að samþykktir meiri hl. gætu ekki þolazt, þó hann sé svona veikur. Enda getur enginn fundið að því með rökum eða mælt því í gegn, að meiri hl. Alþingis eða meiri hl. bæjarstjórnar knýi fram sín mál með eins atkv. mun. Er slíkt og einkenni þingræðis og lýðræðis, að meiri hlutinn ráði á hverjum tíma, hvort sem hann er stór eða lítill.