12.03.1936
Neðri deild: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (1820)

32. mál, landssmiðja

*Emil Jónsson:

Það eru aðeins örfá orð út af ræðu síðasta ræðumanns og orðum, sem féllu hjá hv. þm. V.-Sk. hér í gær.

Ég vil þá fyrst víkja aðeins að síðustu ræðu hv. 3. þm. Reykv. og þá einkum því, sem hann talaði um útboð á vinnu fyrir það opinbera. Hv. þm. var á því, enda enginn ætlazt til annars, að frv. þyrfti að vera gert svo úr garði, að landssmiðjan gæti ekki tekið verk hjá ríkisstofnunum, nema hún sýndi, að hún væri samkeppnisfær. Þetta finnst mér vera tekið ljóst fram í 2. gr. frv.: „enda séu vinnubrögð og verðlag að dómi ríkisstj. ekki óhagstæðari en annarsstaðar innanlands.“

Ríkisstj. getur ekki gengið úr skugga um þetta atriði nema með útboði eða kynna sér það á annan hliðstæðan hátt. Mér finnst því, að þetta sé fullljóst eins og það er, en skal ekki vera á móti, að það sé ákveðið skýrara.

Þá vildi ég segja aðeins nokkur orð við hv. þm. V.-Sk. út af þeirri þýðingu, sem hann lagði upp úr umsögnum þeirra aðilja, sem hafa sagt álit sitt um málið. — Það eru 3 aðiljar, sem hafa sagt álit sitt á þessu máli, Helgi H. Eiríksson skólastjóri, fiskiþingið og Félag járniðnaðarmanna. Ég ætla að láta fiskiþingið liggja milli hluta, en halda við hinar tvær umsagnirnar frá Helga H. Eiríkssyni og Félagi járniðnaðarmanna, sem eru alveg gagnstæðar. Hv. þm. V.-Sk. vildi ekki taka tillit til umsagnar Félags járniðnaðarmanna vegna þess, að í því væru ekki fagmenn eða sérfræðingar, heldur aðeins óbreyttir verkamenn, sem ekkert vit hefðu á þessum hlutum og kæmi þetta ekki við að öðru leyti en því, sem vinnan veitti þeim lifibrauð. En mér finnst undarlegt ósamræmi í rökum hv. þm. Hann leggur mikið upp úr umsögn Helga Eiríkssonar og vitnar til þess, að hann er trúnaðarmaður þeirrar stéttar, sem mikið mark verði að taka á. En þegar stéttin kemur svo sjálf og segir sitt álit, þá er ekkert mark á því takandi. Ég verð að segja, að mér finnst þetta undarlegt ósamræmi, og mér er ekki ljóst, hvað fyrir hv. þm. vakir.

Það er verið að tala um að vísa frv. til iðnráðsins, en einu mennirnir í því, sem vit hafa á þessum hlutum, eru fulltrúar frá Félagi járniðnaðarmanna, sem nú þegar eru búnir að segja sitt álit um málið. Eða kannske það eigi að senda frv. til umsagnar manna í einhverjum öðrum iðngreinum.

Ég hefi grun um, að hér ráði flokkspólitískar ástæður, og vegna þess að Félag járniðnaðarmanna er í Alþýðusambandi Íslands, má ekki taka til greina ummæli þess í málinu. En ég hefi einnig grun um, að umsögn Helga Eiríkssonar sé ekki síður með pólitískum lit.

Þá nefni hv. þm. tilboð frá landssmiðjunni, sem hefði verið hærra en eitthvert annað, en þó verið tekið. Það er mjög oft svo af ýmsum ástæðum, að ekki þykir hyggilegt að taka lægsta tilboði. Ég get líka nefnt dæmi, þar sem landssmiðjan hefir verið lægst. — Þá held ég, að það sé ekki annað í ræðu hv. þm. V.-Sk., sem ég hirði um að taka til meðferðar. Það er nú búið að ræða málið frá flestum hliðum, en þá pólitísku hlið, sem dregin hefir verið inn í umr., hirði ég ekki um að ræða, því frá minni hálfu hefir málið aldrei verið pólitískt.