12.03.1936
Neðri deild: 22. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

32. mál, landssmiðja

*Emil Jónsson:

Ég ætlaði ekki að taka til máls aftur, en síðustu orð hv. þm. Ak. gáfu mér tilefni til andsvara. Hann sagði, að sér þætti hart, að ég skyldi koma fram sem flugumaður til að eyðileggja hagsmuni iðnaðarmanna, þar sem ég hefði verið kosinn til að gæta hagsmuna þeirra. Ég veit ekki, hvaðan honum kemur réttur til að halda slíku fram. Hann bar ekki fram nein rök fyrir þessari fullyrðingu, og skora ég hér með á hann að færa rök fyrir máli sínu. Iðnaðarmenn hafa ekki látið það í ljós, að ég hafi rækt illa þau störf, er ég hefi fyrr og síðar haft á hendi fyrir þá. Ég hefi átt sæti í stj. félag, þeirra, ekki aðeins eitt kjörtímabil, heldur þrjú, og ég hefi verið endurkosinn eftir að frv. það kom fram, sem ég hefi flutt í þessu máli. Þeir hefðu getað rekið mig eftir að frv. kom fram. En það er svo langt frá, að þeir líti á mig sem flugumann, að þeir endurkjósa mig. (GSv: Þeir héldu, að hv. þm. myndi bæta ráð sitt). Það má vera að þeir hafi haldið það. En það hefir víst enginn haldið um hv. þm. V.-Sk.

Mér þykir leitt, að hv. þm. Ak. skyldi láta sér þessi orð um munn fara, því að hann hefir hvorki ástæðu né heimild til að kalla mig flugumann.

Hv. þm. Ak. sagði, að allt stæði óskerf, sem hann og minni hl. hefðu sagt, en sannleikurinn er sá, að þar stendur ekki steinn yfir steini. Þeir sögðu, að þetta frv. yrði til að draga úr atvinnu meðal járniðnaðarmanna. En nú hefir einmitt borizt bréf frá þeim, þar sem þeir mæla með frv., af því að þeir álíta, að það muni auka atvinnu þeirra.

Þá hafa þeir haldið því fram, að landssmiðjan hafi aldrei verið samkeppnisfær, þó að þeir hafi engin rök fært fyrir því. Þeir notuðu sér það, sem ég sagði, að hætta væri á því, að hún drægist aftur út vegna þess, hve illa væri að henni búið. En auðvitað er það skylda eigendanna, í þessu tilfelli ríkisins, að búa svo að fyrirtækjum sínum, að þau dragist ekki aftur úr. En landssmiðjan hefir skilað góðum arði undanfarin ár, að fráskildu einu, og sýnir það, að hún getur vel verið samkeppnisfær.

Það væri ýmislegt fleira af því, sem hv. þm. hafa sagt, sem ástæða væri til að fara frekar út í, en fyrst ég sagði í síðustu ræðu minni, að pólitísku hlið málsins vildi ég ekki ræða, sleppi ég því. Ég ætla aðeins að svara því fáum orðum, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að við hefðum eyðilagt sjávarútveginn, verzlunina og landbúnaðinn í landinu, og nú ætluðum við að snúa okkur að iðnaðinum. Hann trúir okkur auðsjáanlega til mikilla valda á þingi, þessum fáu alþýðuflokksmönnum, sem ekki höfum verið hér á þingi nema fá ár, ef hann heldur, að við höfum getað eyðilagt þetta allt. Ég held það hafi fremur verið vegna slæmra ástæðna þessara atvinnugreina og örðugs árferðis, að þær hafa farið niður á við, en ekki vegna aðgerða sósíalista. Og að við ætlum að eyðileggja iðnaðinn, er misskilningur, því að hér er einmitt um það að ræða að byggja hann upp. Það hefir ekki verið tilgangurinn með þessu frv. að ganga inn á svið einstaklinganna. Ef þessir hv. þm. eru svo hræddir við þetta frv., sem þeir láta, þá er það af því, að þeir treysta ekki lengur einstaklingunum.